
Landslið kvenna í handbolta

Lovísa Thompson dregur sig úr landsliðshópnum
Breytingar hafa orðið á leikmannahópnum sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari valdi fyrir komandi leiki Ísland í forkeppni HM 2023.

Ísland á sex stórmót í handbolta á næsta ári
Evrópska handknattleikssambandið tilkynnti í dag að Ísland yrði meðal þátttakenda í lokakeppni EM U19 og U17 landsliða kvenna næsta sumar. Þar með spila sex landslið Íslands á stórmóti í handbolta á næsta ári.

Sautján ára nýliði í landsliðinu
Tveir nýliðar á táningsaldri eru í hópi íslenska kvennalandsliðsins í handbolta sem mætir Ísrael í tveimur leikjum í forkeppni fyrir HM í næsta mánuði.

Ný þjóðarhöll: Skrýtið ef einhver segir „allt í plati“
Það er ekki annað að heyra á Gunnari Einarssyni, formanni framkvæmdanefndar um nýja þjóðarhöll, en að verkefnið gangi vel. Hann segir mikinn hug í þeim sem að koma.

HSÍ tilkynnir 22 leikmanna æfingahóp fyrir forkeppni HM
HSÍ hefur tilkynnt 22 leikmanna æfingahóp íslenska kvennalandsliðsins í handbolta sem undirbýr sig fyrir komandi leiki í forkeppni HM 2024.

Helgi nýr verkefnastjóri hjá nefnd um uppbyggingu þjóðarhallar
Helgi Geirharðsson er nýr verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal.

Áttunda sæti niðurstaðan eftir tap í vítakeppni
Íslenska átján ára landslið kvenna í handbolta tapaði fyrir Egyptalandi í vítakastkeppni í leiknum um 7. sætið á HM í Norður-Makedóníu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 31-31, en Egyptar unnu vítakeppnina, 4-2.

Íslenska liðið spilar um sjöunda sætið
Íslenska stúlknalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri laut í lægra haldi fyrir Frakklandi í dag í fyrri leiknum í keppni um fimmta til áttunda sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Skopje í Norður-Makedóníu.

Íslensku stúlkurnar úr leik eftir mark á lokasekúndunum
Íslenska U-18 ára landsliðið í handbolta tapaði í dag með minnsta mun, 27-26, fyrir Hollandi á HM kvenna í aldursflokknum. Mark á lokasekúndum leiksins réði úrslitum.

Kynning: Íslensku stelpurnar sem hafa slegið í gegn á HM
Kvennalandslið Íslands í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri hefur slegið í gegn á HM í Norður-Makedóníu og er komið í átta liða úrslit mótsins.

Enn vinna íslensku stúlkurnar sem fara ósigraðar í 8-liða úrslit
Landslið Íslands í handbolta kvenna skipað leikmönnum 18 ára og yngri vann 25-22 sigur á Norður-Makedóníu í seinni leik sínum í milliriðli 1 á HM í Skopje í kvöld. Liðið vann því milliriðilinn og er enn taplaust á mótinu.

Íslenska liðið komið í átta liða úrslit
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri er komið í átta liða úrslit heimsmeistaramótsins sem fram fer í Skopje í Norður-Makedónínu þessa dagana.

Sigur í fyrsta leik í milliriðli hjá íslenska liðinu
Ísland vann sannfærandi 28-17 sigur þegar liðið mættir Íran í fyrri leik sínum í millriðli 1 á heimsmeistaramóti U-18 ára í handbolta kvenna í Skopje í Makedóníu í dag.

Tryggðu sig inn í milliriðil með risasigri
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri tryggði sér sæti í milliriðli á HM í Norður-Makedóníu með risasigri á Alsír í dag, 18-42.

Búin að verja flest víti allra á HM og frábærlega úr dauðafærum
Ísland er greinilega búið að eignast nýjan öflugan framtíðarmarkmann í HK-stelpunni Ethel Gyðu Bjarnasen.

U18 gerði jafntefli við Svartfjallaland
U18 ára landslið Íslands í handbolta er að standa sig vel á HM sem fram fer í Norður-Makedóníu þessa dagana.

Frábær byrjun hjá U18 á HM í Norður-Makedóníu
Íslenska U18 landsliðið í handbolta fer frábærlega af stað á HM í Norður-Makedóníu en íslensku stelpurnar mættu Svíum í fyrsta leik í dag.

EM í dag: „Við verðum að fá þessi þrjú stig, við verðum að klára þetta“
„Það eru allir orðnir aðeins stressaðir. Það er alveg ástæða fyrir því, af því við gerðum jafntefli í fyrsta leiknum þá vitum við hvað þessi leikur þýðir,“ sagði Helena Ólafsdóttir, sérlegur sérfræðingur Stöðvar 2 og Vísis, um leik Íslands og Ítalíu á EM.

Verður frá í sex til átta mánuði
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, markvörður Ringköbing og íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, verður frá keppni vegna mjaðmarmeiðsla næstu sex til átta mánuði.

Ísland á HM í stað Rússlands og klístrið bannað
Íslenska U18-landsliðið í handbolta kvenna öðlaðist í dag sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Norður-Makedóníu í sumar.

„Vonandi förum við á EM eftir tvö ár“
Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennaliðsins í handbolta, var svekktur eftir sex marka tap á móti Serbíu, 28-22, í lokaumferð undankeppni EM. Með sigri hefði Ísland tryggt sér sæti en Serbía var of stór biti að þessu sinni.

Umfjöllun: Serbía - Ísland 28-22| Draumurinn um EM úti
Ísland mætti Serbíu í Zrenjanin í lokaumferð undankeppni EM 2022 í handbolta kvenna. Með sigri hefðu Íslendingar komist á sitt fyrsta stórmót í tíu ár. Það gekk hinsvegar ekki eftir, Serbía náði strax forystu og var með yfirhöndina allan leikinn. Lokatölur 28-22.

Gæti spilað fyrir landsliðið í fyrsta sinn í úrslitaleik um sæti á EM
Margrét Einarsdóttir, markvörður Hauka, fór með íslenska kvennalandsliðinu út til Zrenjanin þar sem það mætir Serbíu í úrslitaleik um sæti á EM í nóvember.

Arnar tekur 17 leikmenn með til Serbíu
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Serbíu ytra á laugardaginn kemur, þann 23. apríl. Er þetta síðasti leikur Íslands í undankeppni Evrópumótsins og er ljóst að þetta er hreinn úrslitaleikur um 2. sæti riðilsins. Gefur það sæti á Evrópumótinu sem fram fer í nóvember á þessu ári.

„Við þurfum að eiga toppleik til þess að láta draumana rætast“
Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, var svekktur eftir tap á móti Svíþjóð í undankeppni EM í handbolta í kvöld. Íslenska liðið lenti undir strax í byrjun leiks og náði aldrei að koma sér almennilega inn í leikinn, lokatölur 23-29.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Svíþjóð 23-29| Svíþjóð vann með sex mörkum
Ísland mætti ógnarsterku liði Svíþjóðar í næstsíðasta leik sínum í undankeppni EM 2022 í handbolta kvenna á Ásvöllum í kvöld. Með sigrinum tryggði Svíþjóð sér farseðil á EM í handbolta. Svíþjóð náði strax forystu á fyrstu mínútum leiksins og hélt henni út til leiksloka. Lokatölur 23-29.

Markadrottningin utan hóps í kvöld
Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson hefur tilkynnt hvaða sextán leikmenn mæta Svíum í kvöld í næstsíðasta leik Íslands í undankeppni EM kvenna í handbolta.

„Ætlum að treysta á það að við munum eiga okkar besta dag“
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tekur á móti því sænska á Ásvöllum í dag í seinasta heimaleik liðsins í undankeppni EM 2022. Arnar Pétursson, þjálfari liðsins, segir að íslensku stelpurnar eigi erfitt verkefni fyrir höndum.

Karen snýr aftur í landsliðið fyrir úrslitaleikina í undankeppninni
Karen Knútsdóttir, leikmaður Fram, snýr aftur í íslenska landsliðið sem mætir Svíþjóð og Serbíu í síðustu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM 2022.