Síminn
1 2 3 ›
Allir styrkirnir í RÚV-verkefni Kvikmyndasjóður hefur verið tæmdur til Ríkisútvarpsins þetta árið en engin verkefni hjá öðrum miðlum virðast fá styrk. Framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum segir jafnræðis ekki gætt og að þetta sé enn eitt dæmið um slæma samkeppnisstöðu, en Ríkisútvarpið hafi þegar gríðarlegt forskot. Ríkið leiti lausna en það sé í raun vandinn. Innlent 16.4.2023 15:01
IFS mælir með sölu á Símanum og Sýn IFS greining mælir með því að fjárfestar selji í Símanum og Sýn. Markaðsvirði félaganna er lítillega hærra en virðismat IFS gefur til kynna. Innherji 6.4.2023 11:01
Lánastarfsemi Símans gæti orðið „eins og sparisjóður að stærð“ Útlánastarfsemi er orðin það stór þáttur í rekstri Símans að ekki er hægt að líta fram hjá honum lengur og haldi vöxturinn áfram gæti starfsemin nálgast það að verða „eins og sparisjóður að stærð“ eftir nokkur ár. Innherji 1.4.2023 09:08
Gildi minnkar stöðu sína í Símanum um meira en fjórðung Lífeyrissjóðurinn Gildi, sem hefur verið einn allra stærsti hluthafi Símans um langt skeið, seldi meira en fjórðung bréfa sinna í fjarskiptafélaginu í liðnum mánuði. Að undanförnu hafa stærstu lífeyrissjóðir landsins verið að selja sig nokkuð niður í Símanum. Innherji 3.3.2023 12:06
Síminn vill gera fjártæknilausn að „nýjum kjarnastöpli“ í rekstrinum Síminn vill gera fjártæknilausnina Síminn Pay, sem hefur skilað fjarskiptafélaginu miklum útlánavexti á síðustu mánuðum, að „nýjum kjarnastöpli“ í rekstrinum og einnig sér félagið tækifæri í „dæmigerðum stafrænum áskriftarvörum“ sem hægt er að selja á mánaðarlegum grunni. Þetta kom fram í máli Orra Haukssonar, forstjóra Símans, á uppgjörsfundi sem félagið stóð fyrir í morgun. Innherji 15.2.2023 14:15
Áskriftir að knattspyrnuútsendingum hækka um allt að 33 prósent „Kostnaður vegna samninga við Premier League hefur hækkað, veiking krónunnar hefur mjög neikvæð áhrif og annar kostnaður til dæmis aðföng, laun, útsendingarkostnaður og fleira hefur hækkað.“ Neytendur 30.1.2023 09:00
Klukkan játar sig sigraða eftir 86 ára þjónustu Síminn hefur ákveðið að leggja klukkunni, sjálfvirkri þjónustu þar sem landsmenn gátu fengið að vita hvað klukkan væri. Eftir 86 ára þjónustu hefur klukkan hætta að svara í símann og játað sig sigraða gagnvart tæknibyltingunni. Innlent 17.1.2023 11:58
Logi nýr framkvæmdastjóri hjá Símanum Logi Karlsson hefur verið ráðinn til Símans sem framkvæmdastjóri tækniþróunarsviðs. Hann kemur til starfa fljótlega á nýju ári. Viðskipti innlent 16.12.2022 16:20
IFS mælir með sölu á hlutabréfum í Símanum IFS mælir með sölu á hlutabréfum í Símanum. Markaðsgengið er fjórum prósentum lægra en matsgengið. Reksturinn á þriðja ársfjórðungi gekk vel. Framlegðin batnaði samhliða auknu kostnaðaraðhaldi. Innherji 2.12.2022 16:00
Ríkið sýknað af kröfu Símans um veiðirétt Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfu Símans um að fjarskiptafyrirtækið ætti veiðirétt fyrir landi sínu sem liggur að Sandá í Þjórsárdal. Umfangsmikil skógrækt Skógræktarinnar á jörðinni skipti sköpum í málinu. Viðskipti innlent 28.11.2022 15:29
Fresta jólaglögg vegna áhyggna af öryggi í miðbænum Starfsmannafélag Símans hefur ákveðið að fresta jólaglögg starfsmanna sem átti að fara fram í miðbænum annað kvöld vegna óvissu í kring um átök í undirheimum. Hótanir um árásir í miðbænum um helgina hafa gengið manna á milli á samfélagsmiðlum. Innlent 24.11.2022 17:50
Ráðinn forstjóri Mílu eftir tíu ár hjá Símanum Míla hf. hefur ráðið Erik Figueras Torras sem nýjan forstjóra og mun hann taka við stöðunni frá og með 1. desember 2022. Viðskipti innlent 8.11.2022 11:59
Framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar á förum Framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá Símanum lætur af störfum í lok nóvember og verður staðan auglýst á næstu dögum. Viðskipti innlent 7.11.2022 19:45
Voru „ekki augljós tækifæri“ að nýta söluhagnað Mílu í fjárfestingar erlendis Forstjóri Símans segir að það hafi verið kannað gaumgæfilega hvort það væru fyrir hendi ákjósanlegir fjárfestingarkostir erlendis til að nýta að hluta þá miklu fjármuni sem félagið fékk við söluna á Mílu. Svo hafi ekki verið og því ákveðið að greiða þá alla út til hluthafa en félagið hafi ekki viljað vera „yfirfjármagnað“ nema að fyrir lægju skýr markmið um hvað ætti að gera við þá fjármuni. Innherji 26.10.2022 16:40
Síminn braut ekki samkeppnislög með sölu enska boltans Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæða sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport, í svonefndum Heimilispakka. Viðskipti innlent 12.10.2022 10:53
Einungis þrjú fyrirtæki hækkuðu í virði í september Virði nítján fyrirtækja á aðallista Kauphallarinnar lækkaði í september. Vísitala Kauphallarinnar í heild sinni lækkaði um 8,3 prósent sem er það næst mesta yfir heilan mánuð á árinu. Mesta lækkunin var hjá Eimskip. Viðskipti innlent 11.10.2022 09:57
Stjórn Símans vill greiða nær allt söluandvirði Mílu út til hluthafa Á hluthafafundi sem stjórn Símans hefur boðið til verður lögð fram tillaga um lækkun hlutafjár félagsins með greiðslu til hluthafa upp á 31,5 milljarða króna, sem nánast allt reiðuféð sem fjarskiptafélagið fékk fyrir söluna á Mílu. Jafnframt er til skoðunar að selja eða greiða út til hluthafa 17,5 milljarða króna skuldabréf sem var hluti af sölunni. Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar. Innherji 30.9.2022 12:48
Lífeyrissjóðir með helmingi minni hlut í Mílu en þeim stóð til boða að kaupa Takmörkuð aðkoma sumra af stærstu lífeyrissjóðum landsins við kaup á hlutum í Mílu í samfloti með franska sjóðastýringarfélaginu Ardian þýðir að samanlagður eignarhlutur sjóðanna í fjarskiptafyrirtækinu verður talsvert minni en áður var áætlað. Íslensku lífeyrissjóðirnir munu tilnefna fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Símanum sem fulltrúa sinn í stjórn Mílu eftir að viðskiptin klárast. Innherji 29.9.2022 07:01
Hætta á því að tekjuvöxtur Símans haldi ekki í við verðbólgu Hætta er á því að tekjuvöxtur Símans haldi ekki í við verðbólgu og fjárfestar hljóta að velta fyrir sér framtíðarsýn fjarskiptafélaganna á meðan tekjuvöxturinn er eins hægur og raun ber vitni. Þetta kemur fram í nýju verðmati greiningarstofunnar Jakobsson Capital, sem Innherji hefur undir höndum. Innherji 23.9.2022 14:00
Salan á Mílu stóð tæpt eftir óvænt útspil Í byrjun september leit út fyrir að kaup franska sjóðastýringarfélagsins Ardian á Mílu, sem Samkeppniseftirlitið blessaði í síðustu viku eftir undirritun sáttar við Ardian, myndu renna út í sandinn. Klinkið 19.9.2022 10:53
Biðstaða á meðan fjárfestar bíða eftir planinu hjá stjórn Símans Efnahagsreikningur Símans tekur stakkaskiptum núna þegar loksins er orðið ljóst að salan á Mílu fyrir tæplega 70 milljarða króna gengur í gegn. Stóra spurningin, sem ætti að opinberast á allra næsta vikum, er hvað félagið hyggst gera við það mikla reiðufé sem það situr á eftir söluna. Flestir eiga von á því að þeir fjármunir verði meira eða minna allir greiddir út til hluthafa. Klinkið 18.9.2022 13:20
SKE samþykkir söluna á Mílu og kaupverðið lækkar í 69,5 milljarða Samkeppniseftirlitið og sjóðastýringarfyrirtækið Ardian hafa náð samkomulagi um þau skilyrði sem verða sett við kaupin á Mílu en erfiðar viðræður hafa staðið yfir milli eftirlitsins og franska félagsins allt frá því í júlí. Forstjóri Símans segist „afskaplega ánægður“ með að söluferlið hafi loksins klárast. Innherji 15.9.2022 08:53
Innviðakaup Ljósleiðarans kunna að vekja blendnar tilfinningar hjá Ardian Sýn og Ljósleiðarinn tilkynntu í gær um að náðst hefði samkomulag um einkaviðræður sem lúta að sölu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans. Samið hefur verið um kaupverð að fjárhæð 3 milljarðar króna og gert er ráð fyrir 10 ára þjónustusamningi á milli fyrirtækjanna. Klinkið 6.9.2022 14:21
Síminn gerir ekki ráð fyrir að frekari breytingum á söluverði Mílu Orri Hauksson, forstjóri Símans, segist gera ráð fyrir því að salan á Mílu klárist án þess að frekari breytingar verði á kaupsamningnum. Þetta kom fram í máli Orra á uppgjörsfundi Símans í morgun. Innherji 24.8.2022 09:37
Skiptir mestu að „fá botn í söluna á Mílu,“ segir stjórnarformaður Símans Það sem skiptir mestu í rekstri Símans þessi misserin er að „fá botn í söluna á Mílu,“ segir stjórnarformaður og stærsti hluthafi fjarskiptafélagsins. Gangi viðskiptin eftir má vænta þess að boðað verði til hluthafafundar í haust þar sem sagt verði frá því hvernig til standi að ráðstafa söluandvirðinu á Mílu sem hefur nú þegar lækkað um fimm milljarða frá því sem fyrst var samið um við franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian. Innherji 15.8.2022 09:57
Áframhaldandi sáttaviðræður milli Ardian og Samkeppniseftirlitsins Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur fallist á ósk Ardian um framlengdan frest á rannsókn samruna Ardian og Mílu. Fresturinn var framlengdur um tuttugu daga og rennur því út þann 15. september næstkomandi. Viðskipti innlent 11.8.2022 19:33
Markaðsvirði Símans hefur lækkað um 12,4 milljarða frá tilkynningu SKE Markaðsvirði Símans hefur minnkað um 12,4 milljarða króna frá hádegi í gær þegar Samkeppniseftirlitið birti umsagnir keppinauta fjarskiptafyrirtækisins um söluna á Mílu til franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian. Innherji 10.8.2022 16:30
Ekki hlutverk eftirlitsins að vernda Ljósleiðarann, segir Ardian Franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian og Síminn telja ljóst af umsögn Ljósleiðarans um söluna á Mílu að innviðafyrirtækið, sem er í opinberri eigu, vilji atbeina Samkeppniseftirlitsins til þess að takmarka samkeppni og verja „markaðsráðandi stöðu sína“. Þetta kemur ítrekað fram í athugasemdum fyrirtækjanna tveggja um umsögn Ljósleiðarans. Innherji 10.8.2022 10:55
Stærsta innviðasala Íslandssögunnar hangir á bláþræði Kaupin á Mílu eru um margt prófsteinn á það hvort erlendir langtímafjárfestar megi – hafi þeir á annað borð áhuga á með hliðsjón af flækjustiginu sem því oft fylgir – eiga í alvöru viðskiptum hér á landi þar sem ekki er verið að tjalda til einnar nætur, heldur áratuga, líkt og er ætlun Ardian. Þessa dagana erum við fá að svarið við þeirri spurningu. Umræðan 9.8.2022 15:47
Keppinautar vilja skerða einkakaup milli Símans og Mílu til muna Keppinautar Símasamstæðunnar telja að fyrirhugaður einkakaupasamningur á milli Símans og Mílu til 17 ára hafi skaðleg áhrif á samkeppni á íslenskum fjarskiptamarkaði og því þurfi að stytta lengd samningsins til muna. Þetta kemur fram í umsögnum fjarskiptafyrirtækja um tillögur franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian um skilyrði vegna kaupanna á Mílu. Innherji 9.8.2022 12:57