Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík 2023
1 2 3 4 ›
Stöðvið stríðið í Úkraínu strax - semjið um frið og samvinnu í Evrópu Við undirritaðir friðarsinnar á Íslandi skorum á leiðtoga evrópskra ríkja að stöðva stríðið í Úkraínu nú þegar og vinna í kjölfarið að friði og samvinnu í Evrópu. Skoðun 16.5.2023 11:01
Almenningur sé ekki í hættu vegna netárása Nokkrir stjórnsýsluvefir, eins og vefir Alþingis og dómstóla, hafa legið niðri í morgun. Forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir þá aðila sem hafa hótað netárásum af þessu tagi yfirleitt herja á slíka vefi. Almenningur sé ekki í hættu en þurfi að bíða af sér vesen sem fylgir árásunum. Innlent 16.5.2023 10:36
Verið að fremja árásir á íslenska vefi Verið er að fremja árásir á íslenska vefi að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra. Embættið telur sig hafa hugmynd um hvaðan árásirnar koma en ekkert hefur fengist staðfest. Innlent 16.5.2023 10:19
Vefur Alþingis liggur niðri: „Málið er í athugun“ Vefur Alþingis liggur niðri. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, staðfestir í samtali við fréttastofu að bæði vefur þingsins og innri vefurinn liggi niðri sem stendur. Innlent 16.5.2023 09:36
Vaktin: Rishi Sunak farinn af landi brott Leiðtogafundur Evrópuráðsins hefst í Hörpu í dag. Víðtækar lokanir tóku gildi í gærkvöldi og er stór hluti miðbæjarins lokaður umferð og svæðið umhverfis Hörpu alfarið lokað almenningi. Innlent 16.5.2023 07:57
Ekki láta plata þig Ertu viss að tölvupósturinn sem þú fékkst sé frá þeim sem virðist hafa sent hann? Þriðjungur af öllum gagnalekum byrja sem venjulegur tölvupóstur til starfsmanna þar sem þeir eru beðnir um að opna skjal, ýta á hlekk eða skrá sig inn upp á nýtt í sín eigin kerfi. Um er að ræða mjög hnitmiðaðar veiðar, árás, oft á góðri íslensku sem er líklega eina neikvæða hliðin á miklum fjárfestingum okkar Íslendinga í máltækni. Skoðun 16.5.2023 07:31
Harpa komin í búning alþjóðastofnunar Framkvæmdastjóri Leiðtogafundar Evrópuráðsins segir landsmenn geta verið stolta af fundinum sem hefst á morgun. Víðtækar lokanir hafa áhrif á veitingahúsaeigendur sem hafa undanfarna daga þurft að birgja sig upp. Innlent 15.5.2023 23:15
Bandaríkin vilja koma að tjónaskrá Evrópuráðsins Bandaríkin hafa lýst því yfir að þau séu reiðubúin til þess að taka þátt í því að koma á sérstakri tjónaskrá sem kynnt verður á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bandarískum yfirvöldum. Innlent 15.5.2023 23:00
Leita að vopnum og biðja farþega að mæta tímanlega Isavia biðlar til farþega í innanlandsflugi að mæta tímanlega næstu tvo daga þar sem vopnaleit mun fara fram í fyrsta sinn hér á landi, tímabundið á meðan leiðtogafundi Evrópuráðsins stendur. Icelandair biðlar til fólks að mæta níutíu mínútum fyrir brottför. Innlent 15.5.2023 20:46
Mest áhrif á umferð síðdegis á þriðjudag Götulokanir í miðbænum vegna leiðtogafundarins í Reykjavík næstu tvo daga munu hafa mikil áhrif á strætóferðir. Innlent 15.5.2023 17:38
Myndir: Viðbúnaður og vegalokanir vegna leiðtogafundarins í Hörpu Í miðborg Reykjavíkur má víða sjá brynjaða lögreglumenn með byssukjaftana á lofti. Viðbúnaður hefur sjaldan eða aldrei verið meiri enda von á flestum þjóðarleiðtogum Evrópu í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins í vikunni. Innlent 15.5.2023 14:40
„Afskaplega glæsilegur viðburður og Íslandi til sóma“ Hundruð manna vinna nú hörðum höndum í Hörpu við að gera allt klárt fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins sem hefst á morgun. Framkvæmdastjóri fundarins segir undirbúningsvinnuna ganga vel og að mikill metnaður sé settur í vinnuna. Viðburðurinn verði afar glæsilegur og Íslandi til sóma. Innlent 15.5.2023 12:42
Katrín og von der Leyen funda á morgun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Úrsúla von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, munu eiga tvíhliða fund í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík á morgun. Innlent 15.5.2023 10:55
Bein útsending: Sveitarstjórnir, lýðræði, mannréttindi og réttarríki Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins (Congress of Local and Regional Authorities) stendur fyrir málþingi í dag þar sem fjallað verður um hlutverk og ábyrgð sveitarstjórna í að viðhalda lýðræði, mannréttindum og réttarríki. Innlent 15.5.2023 08:38
Þessi hafa boðað komu sína á leiðtogafundinn Mikill fjöldi fólks hefur boðað komu sína á leiðtogafund Evrópuráðsins sem fram fer í Hörpu í vikunni. Forsetar, forsætisráðherrar, aðrir ráðherrar og kardínáli eru á meðal þeirra sem eru á gestalistanum. Ekki hefur verið gefið upp hvort einhver frá Úkraínu komi á fundinn. Innlent 14.5.2023 20:17
Konur berjast við Rússa á öllum vígstöðvum í Úkraínu Þingkona frá Úkraínu segir konur ekki vera fórnarlömb innrásar Rússa í Úkraínu fremur en karla og börn því þær taki þátt í að verja landið á öllum vígstöðvum. Mikilvægast af öllu væri að frelsa fólk á herteknum svæðum og draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi þeirra. Innlent 12.5.2023 19:30
Gefa Evrópuráðinu fundarhamar eftir Siggu á Grund að gjöf Íslensk stjórnvöld munu gefa ráðherranefnd Evrópuráðsins útskorinn fundarhamar eftir listakonuna Sigríði Kristjánsdóttur, betur þekkt sem Sigga á Grund, að gjöf í tilefni af leiðtogafundinum sem hefst í Reykjavík á þriðjudag. Innlent 12.5.2023 13:46
Eiga sérstakan búnað til drónavarna Allt drónaflug verður bannað á stóru svæði á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi á meðan leiðtogafundi Evrópuráðsins stendur. Brot geta varðað fimm ára fangelsi. Innlent 11.5.2023 14:15
Fulltrúar fjórðungs fullvalda ríkja heims á leið til Reykjavíkur Von er á fulltrúum fjórðungs allra fullvalda ríkja í heiminum á leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík í næstu viku. Þetta verður lang stærsti viðburður sem haldinn hefur verið hér á landi og kallar á samvinnu fjölda ráðuneyta og nær alls lögregluliðs landsins. Innlent 10.5.2023 19:30
Sýndarveruleiki útilokar íslensk fyrirtæki Nú stendur undirbúningur vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Reykjavík sem hæst. Fréttir berast af því að víðtækar lokanir muni eiga sér stað í miðborg Reykjavíkur og að um 50 einkaflugvélar muni flytja erlend fyrirmenni og fylgdarlið þeirra til landsins. Skoðun 9.5.2023 15:01
Örfáir þjóðarleiðtogar ekki boðað komu sína Leiðtogar rúmlega fjörutíu af 46 aðildarríkjum Evrópuráðsins hafa boðað komu sína hingað til lands í næstu viku. Þeirra á meðal eru Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands. Komist leiðtogar ekki á fundinn mæta í flestum tilfellum utanríkisráðherrar í þeirra stað. Innlent 9.5.2023 14:53
Kaupa skotvopn fyrir lögregluna fyrir leiðtogafundinn Skotvopn eru á meðal búnaðar sem keyptur hefur verið inn fyrir íslenska lögreglumenn í tengslum við öryggisgæslu á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík. Erlendir lögreglumenn sem aðstoða við öryggisgæsluna og erlendir öryggisverðir verða einnig vopnaðir. Innlent 5.5.2023 07:00
Reikna með netárásum ógnahópa og mótmælenda Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda reiknar með að ógnahópar og mótmælendur nýti sér leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík til þess að vekja á sér athygli með netárásum. Þær árásir gætu ekki aðeins beinst að fundinum sjálfum heldur íslenskum fyrirtækjum og stofnunum sem tengjast honum ekki. Innlent 3.5.2023 14:10
Lokað fyrir bíla og strætó í nágrenni leiðtogafundarins Stórum hluta miðborgarinnar verður lokað fyrir umferð ökutækja, þar á meðal strætisvagna, á meðan á leiðtogafundi Evrópuráðsins stendur í Hörpu eftir tvær vikur. Reikna má með umferðartöfum á öllu höfuðborgarsvæðinu vegna fundarins. Innlent 2.5.2023 14:29
Aukin hætta á netárásum vegna leiðtogafundarins Gera má ráð fyrir aukinni hættu á netárásum hér á landi dagana fyrir og á meðan leiðtogafundi Evrópuráðsins stendur. Forstjóri Syndis telur ljóst að óprúttnir aðilar muni reyna að nýta sér fundinn til að valda usla. Innlent 26.4.2023 18:27
Stærsti alþjóðlegi viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi framundan Stór hluti miðborgarinnar verður lokaður allri bílaumferð í tæpa tvo sólarhringa á meðan rúmlega fjörutíu þjóðarleiðtogar funda í Hörpu um miðjan næsta mánuð og mesta öryggisgæsla sem sést hefur hér á landi. Forsætisráðherra segir fundinn sögulegan enda eru þjóðarleiðtogar Evrópuráðsins að koma saman í aðeins fjórða skipti frá stofnun þess. Innlent 22.4.2023 19:32
Macron staðfestir komu á leiðtogafundinn í Reykjavík Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur boðað komu sína á leiðtogafundinn sem haldinn verður í Hörpu í næsta mánuði. Innlent 19.4.2023 21:36
Vopnaðir lögreglumenn á götum borgarinnar vegna fundarins Mikill viðbúnaður lögreglu verður í höfuðborginni í maí vegna fundar leiðtogafundar Evrópuráðsins. Gera má ráð fyrir vopnuðum fylgdarmönnum þjóðarleiðtoga og umferðartöfum. Tónlistarhúsinu Hörpu og nærliggjandi umhverfi verður lokað. Innlent 4.4.2023 20:46
Meirihluti þjóðarleiðtoga staðfest komu sína til Reykjavíkur Meirihluti þeirra 46 þjóðarleiðtoga sem boðið hefur verið á leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík eftir átta vikur hefur staðfest komu sína. Gríðarlegar öryggisráðstafanir verða í kringum fundinn. Innlent 29.3.2023 19:45
Telja Pírata svíkja stefnu sína um eftirlitssamfélag Fyrirkomulag öryggismyndavéla í Reykjavík verður endurskoðað árlega en ekki á fimm ára fresti eins og nú er, samkvæmt breytingartillögu sem er til afgreiðslu í borgarstjórn í dag. Sósíalistar í borgarstjórn segja Pírata svíkja stefnu sína um eftirlitssamfélagið. Innlent 21.3.2023 19:52