Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Eftir ellefu ár í dönsku landsliðstreyjunni hefur bakvörðurinn Mads Mensah Larsen ákveðið að ljúka sínum ferli með danska landsliðinu í handbolta. Handbolti 5.2.2026 17:15
Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Björgvin Páll Gústavsson er mættur heim eftir EM í handbolta og á fyrir höndum stórleik í kvöld með liði Vals gegn Haukum í Olís deildinni. Það getur verið krefjandi að skipta um gír eftir stórmót en Björgvin býr að mikilli reynslu frá fyrri árum. Handbolti 5.2.2026 13:33
Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Þorsteinn Leó Gunnarsson var í mjög litlu hlutverki í íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í handbolta en var í hópnum í sex síðustu leikjunum. Handbolti 5.2.2026 13:00
Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Mathias Gidsel fór hlaðinn verðlaunum af Evrópumótinu í handbolta sem lauk um helgina, ekki í fyrsta skiptið. Handbolti 3. febrúar 2026 14:33
Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum Króatar unnu Íslendinga í leiknum um bronsið á Evrópumótinu eins og flestir vita en það vita ekki eins margir að þeir fengu í leiknum svakalegan stuðning frá einni stærstu stjörnu handboltans. Handbolti 3. febrúar 2026 12:31
„Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Fyrrum landsliðsmaður í handbolta telur að íslenska landsliðið geti farið alla leið á næstu árum. Þá þarf allt að ganga upp en efniviðurinn er nægilega góður. Ísland hafnaði í fjórða sætinu á Evrópumótinu. Liðið hefur ekki komist í undanúrslit á stórmóti frá árinu 2010 og því skráðu drengirnir nöfn sín í sögubækurnar á síðustu tveimur vikum. Leikmenn liðsins eru flestallir á frábærum aldri og því ætti framtíðin að vera björt. Handbolti 3. febrúar 2026 10:32
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Dagur Sigurðsson þjálfari Króata vakti menn af værum blundi á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleikina á Evrópumótinu í handbolta en sérfræðingar Besta sætisins á Vísi segja að það hafi alls ekki verið rétti tíminn fyrir slíka umræðu. Handbolti 3. febrúar 2026 07:30
Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Danska handboltalandsliðið fagnaði gullverðlaunum Evrópumótsins með rútuferð um Kaupmannahöfn og mikilfenglegri móttöku á Ráðhústorginu en skyttan Simon Pytlick virðist hafa gengið aðeins of hratt um gleðinnar dyr í gærkvöldi. Handbolti 2. febrúar 2026 20:32
Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska handboltalandsliðinu eru þjóðhetjur og þeim verður fagnað í dag eftir bronsverðlaunin á EM, rétt eins og eftir silfrið á HM fyrir ári síðan. Handbolti 2. febrúar 2026 16:02
Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Ein stærsta stjarna nýafstaðins Evrópumeistaramóts í handbolta er án efa Dagur Sigurðsson sem stýrði Króötum til bronsverðlauna og jós úr skálum reiði sinnar á eftirminnilegum blaðamannafundi. Dagur er orðinn svo mikil stjarna að króatískur förðunarfræðingur setti sig í líki þjálfarans. Lífið 2. febrúar 2026 13:48
Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Íslenska landsliðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í handbolta þrátt fyrir að fá lítið sem ekkert af mörkum með langskotum. Tölfræði mótsins sýnir það svart á hvítu hversu langt á eftir íslenska liðið var á eftir bestu liðum mótsins. Handbolti 2. febrúar 2026 13:02
75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson. Handbolti 2. febrúar 2026 11:01
Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu. Handbolti 2. febrúar 2026 10:01
Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Gísli Þorgeir Kristjánsson varð tíundi íslenski leikmaðurinn til að vera valinn í úrvalslið stórmóts í handbolta karla þegar hann var valinn í úrvalslið Evrópumótsins í handbolta í gær. Ísland hefur átt leikmann í úrvalsliði fimmtán sinnum frá því farið var að velja slík lið. Handbolti 2. febrúar 2026 09:01
Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Framtíð íslenska karlalandsliðsins í handbolta var til umræðu í Besta sætinu eftir að íslenska liðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í ár. Þar eru sérfræðingarnir sammála um að liðið sé á góðum aldri til að vinna enn frekari afrek á næstu árum. Handbolti 2. febrúar 2026 08:02
Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Íslensku landsliðsmennirnir eru áberandi meðal efstu manna í tölfræði Evrópumótsins í handbolta sem lauk í gær og Ísland á menn í efsta sætinu á tveimur listum. Handbolti 2. febrúar 2026 06:33
„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. Handbolti 1. febrúar 2026 21:31
Biður Dag afsökunar Króatinn Nenad Kljajic, fyrrverandi landsliðsmaður og handboltaþjálfari, sem var hluti af liði Króatíu sem vann Ólympíugull á leikunum í Atlanta árið 1996, biður Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu afsökunar í færslu á samfélagsmiðlum í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 19:46
Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti. Handbolti 1. febrúar 2026 19:00
EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona EM ævintýri strákanna okkar er lokið. Fjórða sætið var niðurstaðan að þessu sinni. Handbolti 1. febrúar 2026 18:47
„Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. Handbolti 1. febrúar 2026 17:16
„Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 16:58
Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik. Handbolti 1. febrúar 2026 16:46
„Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Ég er náttúrulega eðlilega bara súr og svekktur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Króatíu í bronsleik EM í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 16:44