Stj.mál
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 187 ›
Sjálfstæði fjölmiðla verði tryggt Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög sem tryggja sjálfstæði íslenskra fjölmiðla með hagsmuni samfélagsins af heiðarlegri og vandaðri fjölmiðlun að leiðarljósi. Þetta kemur fram í ályktun nefndar um menningarmál sem samþykkt var á fundinum í dag. Innlent 23.10.2005 15:05
Barátta um varaformannsembætti Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll, sem staðið hefur síðan á fimmtudag, lýkur um miðjan dag í dag. Geir H. Haarde utanríkisráðherra tekur við sem formaður flokksins af Davíð Oddssyni en Geir er sá eini sem hefur boðið sig fram til starfans. Þá verður kosið um eftirmann Geirs í embætti varaformanns flokksins klukkan þrjú í dag, en þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri hafa þegar gefið kost á sér. Innlent 23.10.2005 15:04
Níu konur í miðstjórn Kosningu í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins sem fram fór á landsfundi í Laugardalshöll er lokið, en alls börðust 24 um ellefu sæti í stjórninni. Alls voru níu konur kjörnar í miðstjórnina og tveir karlar, en það eru Birna Lárusdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Elínbjörg Magnúsdóttir, Grímur Gíslason, Magni Kristjánsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Stefanía Katrín Karlsdóttir, Sigríður Ásthildur Andersen. Innlent 23.10.2005 15:05
Bensínstyrkir verði ekki skertir Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag að hvetja til þess að fallið verði frá því að skerða bensínstyrk til öryrkja. Þá vilja sjálfstæðismenn að styrkir hreyfihamlaðra til bifreiðakaupa verði auknir. Innlent 23.10.2005 15:05
Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða Geir H. Haarde utanríkisráðherra var rétt í þessu kjörinn áttundi formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Geir hlaut 94,3 prósent atkvæða, en hann gaf einn kost á sér til formanns. 23 aðrir sjálfstæðismenn hlutu samtals 65 atkvæði, en auðir seðlar voru 40. Nú stendur yfir varaformannskjör en þar höfðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, gefið kost á sér. Innlent 23.10.2005 15:05
500 milljarða halli í sjö ár Steingrímur J. Sigfússon vill yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um að stjóriðjuframkvæmdir verði stöðvarðar til ársins 2012. Engin höft segir forsætisráðherra. Innlent 23.10.2005 15:05
Framsókn minnst í borginni Framsóknarflokkurinn mælist minnstur allra flokka í borginni samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, en aðeins 2,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu styðja hann. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur fylgis tæplega 46 prósenta en Samfylkingin er með næstmest fylgi, eða 30,8 prósent. Vinstri - grænir fengju 14,8 prósent ef kosið yrði nú en frjálslyndir 3,9 prósent. Innlent 23.10.2005 15:04
Lýsir eftir baráttuanda Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri og frambjóðandi til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins, segist undrast hversu fáir gefi kost á sér í forystusveit flokksins og spyr hvað sé orðið um grasrótina og baráttuandann. Innlent 23.10.2005 15:04
Geir vill selja Landsvirkjun Geir H. Haarde, verðandi formaður Sjálfstæðisflokksins, segir tímabært að selja Landsvirkjun eftir nokkur ár. Hann segir einkavæðingu ríkisfyrirtækja hafa losað um mikið fé og stuðlað að jöfnuði. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar hafa hins vegar orðið berir að miklum fordómum að hans mati. Innlent 23.10.2005 15:04
Vilja úttekt á flutningi flugs Samgöngunefnd landsfundar Sjálfstæðisflokksins hefur lagt til að gerð verði flugtæknileg, fjárhagsleg, öryggisleg og hagsmunaleg úttekt á því að hvort færa eigi miðstöð innanlandsflugs úr Vatnsmýrinni og byggja upp flugvöll á stórhöfuðborgarsvæðinu, sem sátt gæti náðst um á landsvísu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi nefndarinnar í dag. Innlent 23.10.2005 15:04
Fleiri vilja Vilhjálm í forystu Rúm 62 prósent þeirra sem spurðir voru í skoðanakönnun IMG Gallups og tóku afstöðu vilja að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leiði lista Sjálfstæðsiflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Þá vilja tæp 38 prósent að Gísli Marteinn Baldursson geri það. Mjórra var á mununum þegar aðeins sjálfstæðismenn voru spurðir en þar vildu 53 prósent Vilhjálm og 47 prósent Gísla Martein. Innlent 23.10.2005 15:04
Hækka skatt þegar þeir sjá hann Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi félagshyggju í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og kvað talsmenn hennar vilja skattahækkanir. Innlent 23.10.2005 15:04
Formaður kjörinn einróma Ingólfur Sveinsson var einróma kjörinn formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis suður á aðalfundi félagsins á fimmtudagskvöld. Sigrún Jónsdóttir, fyrrum formaður félagsins, hafði ákveðið að gefa ekki kost á sér að þessu sinni. Innlent 23.10.2005 15:04
Engin kona forstjóri skráðu félagi Engin kona er forstjóri í skráðu fyrirtæki í Kauphöll Íslands og konur eru aðeins sjö komma fjögur prósent stjórnarmanna. Nefnd, sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði, hefur kynnt tillögur um hvernig fjölga megi konum í stjórnum fyrirtækja. Innlent 23.10.2005 15:04
Útilokaði nánast Samfylkinguna Davíð Oddsson fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins gerði það eitt af sínum síðustu verkum sem formaður, í setningaræðu sinni á landsfundinum í gær, að nánast útiloka stjórnarmyndun með Samfylkingunni, þegar þar að kemur. Innlent 23.10.2005 15:04
Eggert sækist eftir 7. sæti Eggert Páll Ólason, héraðsdómslögmaður og formaður samtakanna Vinir einkabílsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjöunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor. Innlent 23.10.2005 15:04
Vilja banna kanínur í fuglaeyjum Frjálslyndi flokkurinn ætlar að leggja fram þingmál þar sem gert verður ráð fyrir að lagt verði bann við kanínum í öllum fuglaeyjum umhverfis landið. Þetta kemur fram á heimasíðu Magnúar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns flokksins, þar sem hann vísar meðal annars í skýrslu um kanínupláguna í Heimaey. Þar segir að kanínurnar nagi rætur og grafi út lundaholur sem auki hættu á uppblæstri og jarðvegseyðingu. Innlent 23.10.2005 15:04
Viðræður í næstu viku Viðræðum um framtíð bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður fram haldið í Washington í næstu viku. Innlent 23.10.2005 15:04
Segir eftirlaunafrumvarpið dýrara Umdeilt eftirlaunafrumvarp alþingis sem samþykkt var naumlega á þingi fyrir tveimur árum jók lífeyrrisskuldbindingu ríkisins um 650 milljónir á árinu 2004. Þetta segir Helgi Hjörvar alþingismaður á heimasíðu sinni í dag. Hann segir kostnaðinn orðinn miklu mun hærri en gert hafi verið ráð fyrir. Innlent 23.10.2005 15:04
Atburðir kalla á fjölmiðlalög Í fyrirspurnartíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær vísaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra til þverpólítískrar samstöðu sem náðs hefur í fjölmiðlanefnd á hennar vegum. Innlent 23.10.2005 15:04
Lóðaverð hækkar um fimmtíu prósent Lóðaverð í Hafnarfirði hækkar um fimmtíu prósent með nýjum úthlutunarreglum og skilmálum sem samþykktir voru í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Bæjarstjórinn segir helstu ástæðuna vera brask þeirra sem hafa fengið úthlutað lóðum langt undir markaðsverði. Hafnfirðingar ganga ekki lengur fyrir um lóðir. Innlent 23.10.2005 15:04
Liðssöfnuður suðurnesjamanna Sjálfstæðismenn á Suðurnesjum safna nú liði á Landsfundi Sjálfstæðismanna í þeim tilgangi að fá umdeildum drögum að ályktun um innanlandsflug hnekkt. Í þeim er gert ráð fyrir því að verði innalandsflugið fært úr Vatnsmýrinni þá verði það ekki fært til Keflavíkur. Innlent 23.10.2005 15:04
Vilja iðgjöld í heilbrigðiskerfinu Um 1.200 manns eiga seturétt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í dag og stendur í fjóra daga. Davíð Oddsson flytur setningarræðu á sjötta tímanum og verður það í síðasta sinn sem hann gegnir þessu hlutverki en eftirmaður hans á formannsstóli verður kjörinn á sunnudag. Innlent 23.10.2005 15:04
Alltaf gaman að mæta Ólafur G. Einarsson fyrrum þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins segir alltaf gaman að hitta gamla félaga á landsþingi Sjálfstæðisflokksins. Bæði hann og Guðmundur H. Garðarsson, fyrrum þingmaður, ætla að tala fyrir bættum kjörum aldraðra. Innlent 23.10.2005 15:04
Erfitt bú mætti Sjálfstæðismönnum Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hófst í Laugardalshöllinn í kvöld. Fjölmenni er á fundinum eins og venja er en vel á annað þúsund manns hvaðan af á landinu er á fundinum. Dagskráin hófst á því að Sinfoníuhljómsveit Íslands tók nokkur lög og svo hófst setningarræða Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins Innlent 23.10.2005 16:58
Samfylkingin dótturfélag auðhrings <font size="1"> </font>Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins var harðorður í garð 365 fjölmiðlasamsteypunnar í setningarræðu sinni á 36. landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær og sagði hana misnotaða af eigendum sínum. > Innlent 23.10.2005 17:31
Átta sækjast eftir fyrsta sætinu Spennandi prófkjör er framundan vegna lista Framsóknarflokks í sveitarstjórnarkosningum í Kópavogi og sækjast átta eftir fyrsta sæti. Kosið verður um sex efstu sætin. Þar verða þrír af hvoru kyni samkvæmt reglum flokksins. Innlent 23.10.2005 15:04
Síðasta Landsfundarræða Davíðs Davíð Oddsson er þessa stundina að ávarpa flokksmenn sína í síðasta sinn á landsfundi í sæti formanns. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur í dag í Laugardalshöll líkt og fyrir 14 árum þegar Davíð var kosinn formaður flokksins og varð í kjölfarið forsætisráðherra. Innlent 23.10.2005 15:04
Bolli vill fimmta sætið Bolli Thoroddsen, formaður Heimdallar - félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sækist eftir fimmta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor. Innlent 23.10.2005 15:03
Vilja tvo nýja framhaldsskóla Þingmenn vilja setja á fót tvo nýja framhaldsskóla. Níu af tíu þingmönnum Norðausturkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð, þar vilja þeir að boðið verði upp á nám til stúdentsprófs auk þess sem skólinn sérhæfi sig í sjávarútvegsmenntun. Innlent 23.10.2005 15:03