Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Hvoru megin ætlar þú að sitja?

Það fyrsta sem ég heyrði þegar ég mætti á leik FH og Hauka á dögunum var hvoru megin ég ætlaði að sitja. Spurningin kom aftur og aftur, sögð með brosi, stundum með smá kímni en alltaf með sömu undirliggjandi merkingu, nú þarf að velja.

Skoðun
Fréttamynd

Að­för að verðmæta­sköpun

Ég var ánægð að heyra í upphafi kjörtímabilsins að sitjandi ríkisstjórn ætlaði að kenna sig við verðmætasköpun. Verðmætasköpun sem myndi felast í því að efla byggðir landsins, styðja við vöxt fyrirtækja, auka gjaldeyristekjur, efla innviði, skapa störf og auka hagsæld.

Skoðun
Fréttamynd

Skjárinn sem stal æskunni

Farsímanotkun barna og áhrif samfélagsmiðla á þroska þeirra liggur mér verulega á hjarta. Sem tveggja barna faðir hef ég sjálfur upplifað hvernig tæknin getur smám saman tekið meira pláss en maður gerir sér grein fyrir í fyrstu. Það sem byrjar sem saklaus leið til að fá smá „frið“ að rétta barni iPad í hendurnar getur þróast yfir í mynstrið þar sem skjárinn verður aðalafþreying barnsins. Ég sá þetta gerast á mínu eigin heimili.

Skoðun
Fréttamynd

Loftslagssvindlið

Útgjöld Íslands til svokallaðra loftslagsmála hafa aukist gríðarlega á síðustu árum. Við erum að tala um hundruð milljarða. Hafa gagnrýnendur á þessa peningasóun verið uppnefndir loftslagsafneitarar eða eitthvað slíkt.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað gerist þegar sam­fé­lag verð­launar eignar­hald meira en ný­sköpun?

Við höfum smám saman byggt upp eignarsamfélag þar sem tekjuöflun byggist fyrst og fremst á eignarhaldi. Eign verður tekjulind og afnot verða vara. Markmiðið verður ekki endilega að skapa ný verðmæti, heldur að eignast eitthvað sem hægt er að rukka fyrir. Samþjöppun eigna fylgir þá arðsemi frekar en samfélagslegri uppbyggingu.

Skoðun
Fréttamynd

Halló boltafjörðurinn Hafnar­fjörður

Nú hefur Hafnarfjörður kynnt með stolti að til standi að byggja nýjan golfvöll í Hafnarfirði, sem eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir þá fjöldamörgu iðkendur sem stunda þá íþrótt. Hins vegar er tölfræðin fyrir þá íþrótt frekar sláandi fyrir okkur, sem berjumst fyrir öðrum íþróttum, en hvergi í heiminum, já öllum heiminum, eru fleiri golfvellir miðað við höfðatölu en á Íslandi eða sirka 5300 manns á hvern völl.

Skoðun
Fréttamynd

Ert þú nýr for­maður vinstrisins?

Eftir áratug af svikum í garð þjóðarinnar úr formannssæti VG er komið að því að velja nýjan formann vinstrisins á Íslandi. Hingað til hefur aðeins ein manneskja boðið sig fram í verkefnið sem er áhyggjuefni því að nú er tækifærið fyrir vinstrimenn á Íslandi að sækja langþráðan sigur í pólitík á Íslandi eftir að hafa verið hafnaðir með öllu í síðustu Alþingiskosningum á grunni fyrrnefndra svika.

Skoðun
Fréttamynd

Stöndum með Græn­lendingum

Undanfarna mánuði hefur staða Grænlands verið með ólíkindum. Bandaríkin, eitt mesta stórveldi heims, hafa með óbilgirni krafist yfirráða og eignarhalds á landi þar sem býr sjálfstæð þjóð, með eigin sögu og eigin framtíð.

Skoðun
Fréttamynd

Frítt

Strax frá og með næstu mánaðamótum verða leikskólar í Ölfusi gjaldfrjálsir. Með ákvörðun sem var tekin á fundi bæjarráðs núna fyrr í dag mun öllum börnum standa til boða 36 tíma skólaganga foreldrum þeirra að kostnaðarlausu, án tillits til tekna þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Hversu oft þarf að kveikja í?

Á Alþingi árið 2021 fékk ég samþykkta þingsályktunartillögu um alhliða úttekt á starfsemi vist- og meðferðarheimila á Íslandi. Þingsályktunartillögur eru eins konar viljayfirlýsing af hálfu löggjafarvaldsins.

Skoðun
Fréttamynd

Veljum vist­vænar sam­göngur

Þrátt fyrir endalaus loforð um Borgarlínu eru ennþá að minnsta kosti fimm ár í að fyrsta lota af sex verði tilbúinn. Ég vil standa vörð um Borgarlínu því það er sótt að þessu mikilvæga verkefni úr ýmsum áttum, en ég vil líka flýta henni.

Skoðun
Fréttamynd

Sterk rödd Ís­lands skiptir máli

Í heimi þar sem mannréttindi veikjast á örfáum dögum og alþjóðalög eru sífellt oftar véfengd er spurningin ekki hvort Ísland eigi að hafa skoðun, heldur hvort við höfum efni á að hafa hana ekki.

Skoðun
Fréttamynd

Jafnara að­gengi að Frí­stunda­styrk í Reykja­vík

Á borgarstjórnarfundi þann 16. febrúar var samþykkt tillaga samstarfsflokkanna um að unnið verði að breytingum á reglum um frístundastyrk og aðheimilt verði að nýta styrkinn til að greiða fyrir sumarnámskeið eða styttri námskeið. Í dag er skilyrði að námskeið verða að vara í átta vikur til að hægt sé að nýta styrkinn.

Skoðun
Fréttamynd

Aumingjar

Vorið 2022 tók Ísland sögulega ákvörðun. Í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins var ákveðið að virkja 44. grein útlendingalaga vegna fjöldaflótta. Við opnuðum faðminn fyrir Úkraínumönnum sem flúðu hræðilegt stríð og sögðum einfaldlega: hingað eruð þið velkomin.

Skoðun
Fréttamynd

Byggjum fleiri skauta­svell

Skautaíþróttir hafa verið stundaðar í Reykjavík, með hléum, frá árinu 1873. Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi íþróttafélag á landinu, stofnað formlega 1873 en endurvakið árið 1893. Félagið var svo endurvakið öðru sinni árið 1938. Árið 1967 mættust úrvalslið Skautafélags Reykjavíkur og Akureyrar í fyrstu eiginlegu ísknattleiksviðureigninni.

Skoðun
Fréttamynd

Reykjavíkurleiðin í leik­skóla­málum

Samstarfsflokkarnir í meirihluta borgarstjórnar kynntu í dag Reykjavíkurleiðina í leikskólamálum eftir mikla vinnu þverpólitísks spretthóps borgarfulltrúa, afburða vinnu starfsfólks skóla- og frístundasviðs og ítarlegt samráðsferli.

Skoðun
Fréttamynd

Reykjavíkurleiðin ekki rétta leiðin

Reykjavíkurborg kynnti í dag breytingar á leikskólakerfinu, svonefnda Reykjavíkurleið. Tillögurnar voru fyrst lagðar fram í október 2025, fóru í umsagnarferli og hlutu mikla gagnrýni, og hafa nú lítillega verið endurskoðaðar.

Skoðun
Fréttamynd

Byggjum fyrir fólk en ekki fjár­festa

Við þurfum að byggja meira ódýrt, óhagnaðardrifið og félagslegt húsnæði þar sem græn svæði, ljósvist og góðar tengingar við öflugar almenningssamgöngur ráða för.

Skoðun
Fréttamynd

Samgönguráð: Fyrir landið allt eða eitt kjör­dæmi?

Samkvæmt lögum nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skipar ráðherra samgönguráð. Hlutverk þess er að gera tillögu til ráðherra um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar, stefnu og forgangsröðun framkvæmda að fengnum áherslum ráðherra.

Skoðun