Af vanrækslu og myglu Róbert Ragnarsson skrifar 5. maí 2026 07:03 Fasteignir Reykjavíkurborgar hafa drabbast niður vegna skorts á viðhaldi. Við í Viðreisn höfum verið að hitta borgarbúa, starfsfólk og stjórnendur í borginni sem öll tala um að það sé óljóst hver ber ábyrgð á að taka ákvarðanir. Það eru mörg dæmi um að eignir borgarinnar standi auðar og engum til gagns. Borg sem lætur eigið húsnæði grotna niður getur ekki talist vera vel rekin. Viðreisn ætlar að snúa þessu við! Reykjavíkurborg er með eitt stærsta fasteignafélag landsins í höndunum. Viðreisn ætlar að setja stjórn yfir fasteignir borgarinnar og reka eins og alvöru fasteignafélag. Þar sem leigutakarnir, skólastjórar og forstöðumenn stofnana borgarinnar, vita nákvæmlega hver leigusalinn er og hvernig á að krefja hann um úrbætur. Fyrirmynd má t.d. sækja til Noregs. Ég hef sem ráðgjafi og bæjarstjóri aðstoðað sveitarfélög við að taka til í fasteignarekstri og fjárfestingum, með góðum árangri fyrir starfsfólk og íbúa. Samkvæmt lögum um rekstur sveitarfélaga skulu sveitarfélög reka Eignasjóð sem sér um rekstur, nýbyggingar og kaup og sölu fasteigna. Eignasjóður leigir fasteignir út til skóla, leikskóla, sundlauga og svo framvegis. Leigutakarnir greiða leigu og eiga að fá afhent húsnæði í rekstrarhæfu ástandi. Tilgangurinn er að reka fasteignir eins og um fasteignafélag sé að ræða. Á þann hátt verða hlutverk skýrari og myndast viðskiptasamband milli leigutaka og leigusala. Reykjavík missti boltann Reykjavíkurborg hefur misst sjónar á þessu hlutverki Eignasjóðsins, sem leiðir til þess að reksturinn er óskilvirkur, verkefni klárast ekki og eignirnar drabbast niður. Það er óljóst hver fer með ábyrgð á Eignasjóði og kemur fram sem leigusali fyrir hönd borgarinnar, og ber ábyrgð á framkvæmdum. Leigutakarnir, þ.e. skólastjórar og forstöðumenn, og borgarbúar vita ekki hver ber ábyrgð og því er viðhaldi sinnt hægt og illa. Stjórn með skýrt umboð og fjármagn Viðreisn ætlar að setja stjórn yfir Eignasjóð sem ber skýra ábyrgð sem leigusali. Stjórn fær skýrt umboð, og fjármagn, til að fara í átak í að laga eignir borgarinnar, og ekki síst til að bæta rekstur fasteignanna. Það er að hægjast um á byggingamarkaði og það er góð efnahagsstjórn að nýta þann slaka til að fá góð verð í viðhaldsverkefni, og stuðla að því að verktakar hafi nóg að gera. Gott húsnæði er lykillinn að eftirsóknarverðu starfsumhverfi, og góðri þjónustu við borgarbúa. Höfundur er stjórnmálafræðingur og skipar annað sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Róbert Ragnarsson Mygla Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar