Örnefni og götunöfn
Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögu götunafnanefndar um að ný vistgata sem verður til á Kringlureit fái nafnið Mjóamýri. Í rökstuðningi segir að á umræddum reit hafi verið að finna vestustu holur fyrsta golfvallar Reykjavíkur sem kallaðist golfvöllurinn í Mjóumýri. Innlent 12.2.2026 08:45
Fífilsgata verður Túnfífilsgata en ekki Hlíðarfótur Gatnanafnanefnd hefur samþykkt að breyta nafni Fífilsgötu í Túnfífilsgötu. Nefndin hafði áður ákveðið að breyta nafninu götunnar í Hlíðarfótur því nafnið væri of líkt nafni annarrar götu, Vífilsgötu, í Norðurmýri. Innlent 15.1.2026 13:30
Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur óskað eftir því að götunafnanefnd komi með aðra tillögu að nafni á nýrri götu við Grósku í Vatnsmýri. Götunafnanefnd lagði til að gatan fengi nafnið Völugata, meðal annars með vísun í Völuspá og völvur, en ráðið vill frekar að gatan verði nefnd í höfuðið á alvöru manneskju. Innlent 15.5.2025 13:25
Götunöfnin geti ógnað öryggi fólks Örnefnanefnd hefur gert Reykjavíkurborg að nefna bæði Bjargargötu og Fífilsgötu á nýjan leik vegna líkinda við önnur götunöfn í grenndinni. Formaður nefndarinnar segir að um öryggisatriði sé að ræða og lumar á hugmyndum. Innlent 7.3.2025 12:02
Bjarkargata varð Bjargargötu að falli Reykjavíkurborg þarf að velja nýtt nafn á Bjargargötu samkvæmt úrskurði örnefnanefndar. Götuheitið þykir of líkt Bjarkargötu sem er steinsnar frá Bjargargötu. Innlent 6.3.2025 18:21
Sameinað sveitarfélag heitir Vesturbyggð Ákveðið var á fundi bæjarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar í dag að sveitarfélagið eigi að heita Vesturbyggð. Ákvörðunin er í samræmi við niðurstöðu íbúakönnunar sem fór fram frá 11. til 17. júní. Innlent 19.6.2024 19:10
Úr sex nöfnum að velja á nýjasta sveitarfélag landsins Á fyrsta fundi sameiginlegrar sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar var lögð fram umsögn örnefnanefndar um þær tillögur sem bárust um nafn á þetta nýjasta sveitarfélag Íslands. Innlent 10.6.2024 15:25
Óska eftir nafnatillögum á sameinað sveitarfélag Sveitarfélögin Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð hafa óskað eftir tillögum frá íbúum að nafni nýs sameinaðs sveitarfélags. Innlent 18.2.2024 17:45
Samþykkja tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi Skipulagsráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu umhverfissviðs bæjarins um tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi í Kópavogi og hefur málinu verið vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Innlent 19.12.2023 10:41
Nýta mánuðinn til að velja milli tveggja nafna Bæjarfulltrúar í sameinuðu sveitarfélagi Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar munu nýta janúarmánuð til að taka ákvörðun um nýtt nafn á sameinuðu sveitarfélagi. Valið stendur milli tveggja tillagna og verður endanleg ákvörðun tekin á næsta bæjarstjórnarfundi sem haldinn verður 26. janúar næstkomandi. Innlent 12.1.2023 10:30
Mæla ekki með því að nefna örnefni eftir núlifandi fólki Örnefnanefnd telur ekki rétt að mæla með því að ónefndur fjallstindur í Vatnajökli verði kenndur við Helga Björnsson, helsta jöklafræðing landsins. Ekki sé hefð fyrir því að nefna náttúrufyrirbæri eftir núlifandi fólki. Nefndin bendir þó að það sé ekki hlutverk hennar að taka ákvörðun um ný nöfn á náttúrufyrirbærum. Innlent 20.12.2022 19:15
Ræða hvort nafnlaus tindur í Vatnajökli verði kenndur við Helga jöklafræðing Örnefnanefnd mun síðar í dag taka fyrir tillögu um að nafnlaus fjallstindur í Vatnajökli verði kenndur við Helga Björnsson, helsta jöklafræðing landsins. Í tillögunni er lagt til að Helgi verði heiðraður með þessum hætti, meðal annars vegna kortlagningar hans á botni Vatnajökuls sem sé mikið vísindalegt afrek sem hafi haft „ómetanleg áhrif á þekkingu á jöklafræði á Íslandi og í heiminum.“ Innlent 1.12.2022 11:02
Eyþór segir það enga ögrun við Rússa að leggja til Kænugarðsstræti Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir það á engan hátt ögrun við Rússa að leggja til að nafni Garðastrætis verði breytt í Kænugarðsstræti, þrátt fyrir að sendiráð þeirra standi við Garðastræti 33. Fyrst og fremst sé um stuðning við Úkraínu að ræða. Innlent 2.3.2022 11:57
Fjöldi nýrra gatna og torga í höfuðborginni komnar með heiti Stálhöfði, Andvaranes, Otursnes, Blámúli, Barðmúli og Lautarmúli eru meðal nýrra götuheita í Reykjavík. Götunar sem um ræðir verða í Múlunum, Skerjafirði, og á Ártúnshöfða. Innlent 3.11.2021 13:27
Akureyrarbær fær nýtt nafn í afmælisgjöf Akureyrarbær heitir nú formlega Akureyrarbær, en ekki Akureyrarkaupstaður eins og áður, eftir að nafnabreytingin var staðfest opinberlega í dag. Bærinn fagnar 157 ára afmæli í dag, 29. ágúst. Innlent 29.8.2019 11:50
Vilja að nöfn lækna prýði nýjar götur við Landspítalann Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hefur varpað þeirri spurningu til götunafnanefndar hvort ekki sé tilefni til þess að nefna nýjar götur í grennd við Landspítalann "eftir fólki sem hefur lagt fram mikilvægan skerf til lækninga á Íslandi.“ Innlent 6.9.2018 10:01
Njólagata, Fífilsgata og fleiri ný götunöfn við Landspítala ekki samþykkt Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborg virðist ekki hafa verið hrifið af tillögum nafnanefndar um ný götuheiti á lóð Landspítalans Innlent 3.9.2018 16:15
Glimmerskarð í glysgjörnum Hafnarfirði Á laugardaginn verður hægt að sækjast eftir því að búa við nýja götu sem ber heitið Glimmerskarð í nýju hverfi í Skarðshlíð í Hafnarfirði. Innlent 5.9.2013 14:56
Fjórar götur í Reykjavík fá ný nöfn Fjórar götur í Reykjavík hafa fengið ný heiti og í morgun var verið að merkja Bríetartún, en svo heitir nú austurhluti Skúlagötu frá Snorrabraut að Höfðatúni, sem eftir breytingu heitir Katrínartún. Skúlatún hefur fengið heitið Þórunnartún og Sætún ber nafnið Guðrúnartún. Innlent 10.10.2012 13:41