Lögreglumál
67 68 69 70 71 72 73 74 75 … 275 ›
Erilsöm nótt hjá lögreglu Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í nótt en 120 mál voru skráð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá fimm í gærkvöldi til fimm í nótt. Þar af snerust mörg um umferð og bíla, þar sem fólk var stöðvað vegna öryggisbelta, nagladekkja ljósa og aksturs án ökuréttinda. Innlent 3.6.2023 07:35
Verkferlar í Reykjadal hafi verið bættir strax í haust Verfkerlar í Reykjadal, sumarbúðum fyrir fötluð börn, hafa verið uppfærðir og þeir lagfærðir, eftir að stúlka sem dvaldi þar síðasta sumar sagði þroskaskertan starfsmann hafa beitt hana kynferðisofbeldi. Forstöðumaður segir athugasemdir við viðbrögðum teknar alvarlega. Innlent 2.6.2023 19:44
Gæsluvarðhald vegna manndrápsins á Selfossi framlengt Í dag féllst dómari við Héraðsdóm Suðurlands á kröfu Lögreglustjórans á Suðurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni, vegna rannsóknar á andláti ungrar konu á Selfossi frá því í apríl síðastliðnum. Gæsluvarðhald var framlengt til sextánda júní næstkomandi. Innlent 2.6.2023 17:58
„Þetta hefur hangið yfir okkur mjög lengi og valdið okkur mikilli vanlíðan“ Faðir stúlku með fötlun sem sagði þroskaskertan starfsmann sumarbúðanna í Reykjadal hafa brotið á sér kynferðislega síðasta sumar segir nýútkomna skýrslu um málið vera lið í því að ljúka málinu af hálfu fjölskyldunnar. Málið hafi tekið mikið á fjölskylduna. Innlent 2.6.2023 12:36
Kölluð út vegna nokkurra ofurölvi einstaklinga Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð úr vegna nokkurra ofurölvi einstaklinga í miðborg Reykjavíkur í nótt. Tveir þeirra höfðu verið sérstaklega til vandræða. Innlent 2.6.2023 06:14
Viðbrögð starfsmanna hafi verið alvarleg, ómarkviss og ámælisverð Viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal voru ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun sagði þroskaskertan starfsmann hafa brotið á sér kynferðislega. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála þar sem úrbætur eru boðaðar. Innlent 1.6.2023 19:01
„Þau áttuðu sig á því sjálf að þau réðu ekki við þetta“ Matvælastofnun (MAST) hefur bannað dýrahald á sauðfjárbýli á Vesturlandi og falið lögreglustjóra að gefa út ákæru. Bæði búpeningur og gæludýr eru þegar farin af bænum. Innlent 1.6.2023 10:54
Lögregla kölluð til vegna deilna um flokkun í grenndargáma Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna ágreinings nokkurra einstaklinga um hvers konar sorpi mætti henda í endurvinnslugáma. Atvikið átti sér stað í hverfi 104 í Reykjavík og var „leyst með samtali“. Innlent 1.6.2023 06:12
Þóttust betla peninga fyrir heyrnarskerta Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði í gær afskipti af tveimur karlmönnum sem stóðu fyrir utan verslanir á Akureyri og betluðu pening sem þeir sögðust vera að safna fyrir heyrnarskerta. Síðar kom í ljós að ekki ræddi um neins konar góðgerðarsöfnun. Innlent 31.5.2023 12:04
„Ógeðslega óþægilegt“ ástand eftir piparúða á LÚX Uppi varð fótur og fit á öðrum tímanum aðfaranótt sunnudags þegar piparúða var spreyjað yfir hóp af fólki á skemmtistaðnum LÚX Nightclub í Austurstræti. Vitni lýsir ástandinu sem myndaðist sem ógeðslega óþægilegu. Innlent 31.5.2023 09:59
Útilokar að kerfislæg spilling sé innan lögreglunnar Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafnar því að kerfislæg spilling þrífist innan lögreglunnar. Mikil áhersla sé lögð á mannauðsmál og fátítt sé að lögreglumenn séu reknir. Innlent 31.5.2023 06:30
Vopnaður maður handtekinn vegna þjófnaðar úr verslun Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann vegna þjófnaðar, en maðurinn hafði tekið vörur fyrir andvirði 200 þúsund króna. Við handtöku kom í ljós að maðurinn reyndist vera með vopn á sér, en hann var svo látinn laus að lokinni skýrslutöku. Innlent 31.5.2023 06:10
Þungir dómar fyrir að streyma enska boltanum Fimm menn hafa verið dæmdir fyrir að streyma ólöglega leikjum úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Höfuðpaurinn Mark Gould fékk ellefu ára fangelsisdóm. Erlent 30.5.2023 16:56
Vaknaði við innbrotsþjófa inni á heimilinu Töluverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á milli klukkan 05 og 17 í dag. Á sjötta tímanum í morgun var til að mynda tilkynnt um innbrot í heimahús í Breiðholti. Tveir innbrotsþjófar flúðu vettvang þegar þeir urðu varir við húsráðanda. Innlent 29.5.2023 17:46
Mikið um ölvunarakstur aðfararnótt hvítasunnu Töluvert var um umferðaróhöpp og slys aðfararnótt hvítasunnu, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29.5.2023 07:41
Meint hópslagsmál reyndust gamnislagur Á sjöunda tímanum í morgun barst lögreglu tilkynning um slagsmál þriggja manna í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að mennirnir þrír voru vinir að gantast, eins og það er orðað í dagbók lögreglu. Innlent 28.5.2023 17:40
Margir stútar gripnir í nótt Níu einstaklingar voru stöðvaðir af lögreglu í nótt þar sem ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum. Í þrígang reyndist ökumaðurinn án ökuréttinda vegna fyrri afskipta lögreglu. Innlent 28.5.2023 07:28
Buðu ferðamanni gistingu í fangageymslu Laust fyrir klukkan 06 í morgun barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregluþjónar ræddu við manninn kom í ljós að um erlendan ferðamann var að ræða, sem gat með engu móti gefið upp hvar hann dveldi. Brugðist var á það ráð að bjóða honum gistingu í fangageymslu. Innlent 27.5.2023 17:48
Ferðamenn misstu stjórn á bílnum í vindinum Ferðamenn sem voru á leið yfir Fagradal urðu fyrir svo sterkri vindhviðu að bíll þeirra fauk út af veginum, valt og endaði á hliðinni. Veginum hefur verið lokað vegna veðurs og er appelsínugul viðvörun enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 27.5.2023 13:39
Pink Floyd stjarna til rannsóknar vegna búnings Lögreglan í Þýskalandi hefur opnað sakamálarannsókn á breska tónlistarmanninum Roger Waters, fyrrverandi meðlim hljómsveitarinnar Pink Floyd. Er honum gefið að sök að hafa klæðst búning á sviði sem minnir á einkennisbúning nasista. Erlent 27.5.2023 09:27
Ofurölvi gestur neitaði að fara í herbergið sitt Óskað var eftir aðstoð lögreglu í nótt á hóteli í miðborg Reykjavíkur vegna ofurölvi gests. Var gesturinn til vandræða og neitaði að fara til herbergis. Innlent 27.5.2023 07:09
Óþekktur maður kramdi bíl með gröfu Á níunda tímanum í morgun barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk á Kjalarnesi. Þar hafði bifreið verið kramin með gröfu. Lögregla veit ekki hver framdi skemmdarverkið bíræfna. Innlent 26.5.2023 18:18
„Lögreglan getur ekki veitt neina þjónustu ef hún veit ekki af ofbeldinu“ Ný lög um heilbrigðisstarfsmenn skýra heimildir þeirra til að tilkynna lögreglu um heimilisofbeldi í samráði við þolanda sem leitar á heilbrigðisstofnun. Sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu segir þetta lið í nýju verklagi sem verið er að innleiða hér á landi. Innlent 26.5.2023 13:21
Lögregla tvisvar kölluð til vegna grunsamlegra mannaferða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur útköllum í gærkvöldi og nótt vegna grunsamlegra mannaferða. Í öðru tilvikinu var maður sagður vera að skoða inn í bíla en í hinu tilvikinu var maður handtekinn í Hálsahverfi og vistaður í fangageymslu sökum ástands. Innlent 26.5.2023 06:16
Draumur um trekant varð að martröð með vændiskonum Maður óskaði eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að hafa farið heim með tveimur konum eftir næturlífið. Innlent 25.5.2023 16:53
Áfram í haldi fyrir síendurtekið ofbeldi gegn eiginkonu sinni Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni í Keflavík sem gefið er að sök að hafa nauðgað eiginkonu sinni og beitt hana síendurteknu ofbeldi síðastliðin fjögur ár. Innlent 24.5.2023 13:11
Ölvaðir neituðu að yfirgefa verslun og veitingastað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gær þegar bifreiðareigandi komst að því að búið var að stinga á tvo hjólbarða bílsins. Í yfirliti lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar kemur ekkert fram um eftirmála. Innlent 24.5.2023 06:19
Þjófurinn tróð tveimur nautalundum í buxur sínar Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var þjófur nokkur gripinn glóðvolgur en sá virðist hafa ætlað að gera sér glaðan dag og elda dýrindis nautasteik. Innlent 23.5.2023 17:06
Þrír í annarlegu ástandi og fjórir handteknir vegna vímuaksturs Fjórir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær, grunaðir um akstur undir áhrifum. Í einu tilviki var ökumaður handtekinn eftir snarpa eftirför en í öðru voru maður og kona handtekinn, einnig grunuð um þjófnað og fleira. Innlent 23.5.2023 06:26
Meirihluti gerenda og þolenda heimilisofbeldis yngri en 36 ára Rúmlega helmingur þeirra sem beitti og varð fyrir heimilisofbeldi á fyrsta fjórðungi ársins var yngri en 36 ára samkvæmt tölum lögreglunnar. Afgerandi meirihluti gerenda var karlar og konur yfirleitt þolendur. Innlent 22.5.2023 15:38