Efnahagsmál
1 2 3 4 5 6 … 85 ›
Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa ekki vakið hrifningu innan bankanna eða verkalýðshreyfingarinnar. Innt eftir viðbrögðum segir Kristrún Frostadóttir útspilið sem kynnt var í gær væri framlag ríkisstjórnarinnar til þess að „breyta umræðunni og breyta því skjóli sem felst í því að við tölum okkur upp í verðhækkanir“. Innlent 11.4.2026 13:27
Felur í sér „verulega áhættu“ fyrir efnahagsstöðugleika og magnar hagsveiflur Fjármálaráð fer hörðum orðum um ákvörðun stjórnvalda að vísitölutengja bætur almannatrygginga, þar sem verið sé að bregðast við „ofmetnum“ vanda, og segir afleiðingarnar vera „veruleg áhætta“ fyrir stöðugleika í efnahagslífinu með því auka sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magna hagsveiflur og minnka getu ríkisins til að beita mótvægisaðgerðum. Í ljósi reynslu annarra þjóða þá „sætir það furðu“, að mati ráðsins, að slíkt kerfi sé tekið upp, einkum þegar litið er til þess að tekjur öryrkja hafa vaxið hraðar en vinnandi fólks undanfarin áratug. Innherji 11.4.2026 13:12
Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Formaður Eflingar lýsir yfir vonbrigðum með nýkynntar efnahagsaðgerðir stjórnvalda sem taki ekki á raunverulegum vanda heimilanna. Hún telur ólíklegt að aðgerðirnar dugi til að kjarasamningar haldi í haust og sakar stjórnvöld um samráðsleysi. Innlent 11.4.2026 12:53
Spá enn vaxtahækkun í maí Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar virðist vera sérsniðnar utan um forsenduákvæði kjarasamninga. Þó að bensínverð geti lækkað um tíu prósent tímabundið eru enn líkur á því að Seðlabankinn hækki vexti í maí. Innlent 11.4.2026 00:06
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segir stjórnvöld hafa misst tökin á efnahagsástandinu og hún beini spjótum að öllum öðrum en sér sjálfum. Ásdís er ómyrk í máli. Innlent 10.4.2026 16:37
„Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót“ Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja atvinnustefnu Íslands. Þessi fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands er 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífi og samfélagi að verðmætasköpun í landinu. Atvinnustefnunni fylgir einnig aðgerðaáætlun sem nær til áranna 2026 – 2027 þar sem settar eru fram 35 aðgerðir til að stuðla að markvissri innleiðingu stefnunnar. Forsætisráðherra segir um tímamót að ræða. Innlent 10.4.2026 11:49
Vara við lausafjárvanda verktaka þegar bankarnir setja þeim stólinn fyrir dyrnar Vegna fordæmalausrar sölutregðu á nýbyggingum þá er einungis tímaspursmál hvenær bankarnir fara að setja fjármagnsþörf áframhaldandi birgðasöfnunar á nýjum íbúðum „stólinn fyrir dyrnar,“ samkvæmt nýrri greiningu um fasteignamarkaðinn, sem mun þá birtast í lausafjárvanda byggingarverktaka. Sögulega mikið ójafnvægi á milli fasteignaverðs og getu heimila til íbúðakaupa, ásamt horfum á aðhaldssamri peningastefnu, ætti að styðja við að verðið gefi enn eftir á komandi mánuðum og spurningin er aðeins hversu hröð sú aðlögun verður. Innherji 10.4.2026 11:21
Bein útsending: Kynna atvinnustefnu og aðgerðir gegn verðbólgu Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 11:30, þar sem ný atvinnustefna verður kynnt auk aðgerða gegn verðbólgu. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 10.4.2026 10:58
Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðar aðgerðir í efnahagsmálum til að vinna gegn verðbólgu sem kynntar verða á blaðamannafundi á morgun. Ríkisstjórnin hefur samþykkt tíu ára vaxtaplan sem hluta af fyrstu atvinnustefnu Íslands. Viðskipti innlent 9.4.2026 16:37
Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði. Innlent 8.4.2026 20:24
Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt. Skoðun 7.4.2026 22:32
Virðisaukaskattur, ferðaþjónusta og hættulegur misskilningur Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hafa verið kynntar hugmyndir um breytingar á virðisaukaskatti í ferðaþjónustu, gagnvart afþreyingu á borð við baðlón. Umræðan sem hefur fylgt sýnir hins vegar skýrt að grundvallaratriði um hvernig virðisaukaskattur virkar eru víða misskilin. Skoðun 7.4.2026 08:18
Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Stjórn Neytendasamtakanna sér tækifæri til að draga úr verðbólgu í gegnum vátryggingakerfið á Íslandi sem sé óþarflega flókið og kostnaðarsamt samanborið við tryggingakerfið á Norðurlöndunum. Tillögurnar verða kynntar ráðherrum ríkisstjórnarinnar á næstu vikum. Viðskipti innlent 4.4.2026 15:31
Má lækka skatta? Í vikunni kynnti Sjálfstæðisflokkurinn tillögur sínar að umbótum í efnahagsmálum, sem innihélt hugmyndir flokksins um víðtækar skattalækkanir, hagræðingar og takmörkun á umsvifum hins opinbera. Skoðun 3.4.2026 07:01
Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Aprílgabb sem birtist í Morgunblaðinu og mbl.is í morgun um meinta niðurfellingu á kílómetragjaldi var með vitund fjármálaráðherra. Skattstjóri segir blekkingar af þessu tagi ekki heppilegar. Ráðherra segist sennilega ekki hafa gefið grænt ljós á gabbið hefði hann vitað hvernig það yrði útfært. Innlent 1.4.2026 11:40
Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að margt komi til greina til að draga úr verðbólgu, en ekki skattalækkanir; þær „vinni beinlínis gegn Seðlabankanum“. Hann telur að ríkið geti ekki eitt og sér lækkað verðbólgu í landinu. „Þjóðarsátt væri góð,“ segir hann. Neytendur 1.4.2026 00:08
Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Sjálfstæðisflokkurinn boðar 140 milljarða króna skattalækkanir, 160 milljarða króna hagræðingu í ríkisrekstri og sölu ríkiseigna fyrir meira en 680 milljarða króna samkvæmt efnahagstillögum sem flokkurinn kynnti í dag. Tillögunum er ætlað að auka ráðstöfunartekjur heimilanna, bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins og lækka skuldir ríkisins. Innlent 31.3.2026 14:10
Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða Forseti ASÍ segir brýnt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins komi sér saman um aðgerðir til að ná tökum á neikvæðri þróun í efnahagslífinu. Ekki sé hægt að ræða um þjóðarsátt fyrr en þær komi fram. Ríkisstjórnin þurfi að hafa frumkvæði að því að kalla fólk saman. Fyrri fundir hafi þó reynst árangurslausir. Innlent 31.3.2026 12:31
„Fólk er bara að vinna minna“ Hagfræðingur segir þá þróun eiga sér stað í hagkerfinu að hagvöxtur standi í stað milli ára og það eigi erfitt með að vaxa. Hann bendir á samdrátt í útflutningsgreinum á Íslandi undanfarin ár. Lektor við viðskiptafræðideild HÍ segir skorta á traust í samfélaginu til aðgerða til að ná tökum á verðbólgu. Innlent 29.3.2026 12:24
Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Boðaðar viðbótarskatttekjur fjármála- og efnahagsráðherra á fyrirtæki í fjármálageiranum eiga að skila sex milljörðum til ríkisins. Ráðherrann lét það ekki fylgja með í fjármálaáætluninni hversu hárrar upphæðar skatturinn ætti að afla en það gerði framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viðskipti innlent 28.3.2026 11:22
Harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar Fulltrúar Viðreisnar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði samþykktu ekki umsókn Samhjálpar um breytingar á húsnæði sem þau hafa tekið á leigu við Grensásveg og segja í bókunum að þau hafi áhyggjur af ósætti íbúa við opnun kaffistofunnar. Þau harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar. Innlent 27.3.2026 17:02
„Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu segir boðaðar viðbótarskatttekjur frá fyrirtækjum í fjármálageiranum koma verulega á óvart. Algjör óvissa ríki um það um hvers konar viðbótarskatta verður að ræða og þegar hafi verið óskað eftir fundi með fjármálaráðherra. Íslensk fjármálafyrirtæki greiði nú þegar flesta og hæstu skatta allra banka í þeim löndum sem Ísland ber sig saman við. Viðskipti innlent 27.3.2026 16:30
Tekur undir gagnrýni á umdeildan fyrirlestur eigin stofnunar Stjórnarkona Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem er einnig varaformaður Loftslagsráðs segist taka undir gagnrýni á að stofnunin hafi boðið fyrrverandi þingmanni að halda fyrirlestur um loftslagsmál. Alvarlegar vísindalegar athugasemdir hafa verið gerðar fyrir við bók hans um málefnið. Innlent 27.3.2026 11:28
Útlit fyrir tugmilljarða meiri lánsfjárþörf ríkissjóðs en áður var áætlað Þrátt fyrir að afkoma ríkissjóðs stefni í jafnvægi á komandi árum samkvæmt nýrri fjármálaáætlun þá eru horfur á að hallinn á lánsfjárjöfnuði, sem segir til um hversu mikið ríkið þarf að taka af láni til að standa undir rekstri sínum, verði enn meiri út allt tímabilið en áður var áætlað. Fjármála- og efnahagsráðherra boðar eilítið meira aðhaldstig í ríkisfjármálum á árinu 2027 en það mun síðan fara minnkandi árin þar á eftir. Innherji 27.3.2026 09:23
Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Forstjóri Icelandair telur að með markvissum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir að Seðlabankinn sjái sig knúinn til að hækka stýrivexti í maí og hann lækki í stað vexti. Til þess þyrfti að umbylta vinnumarkaðsmódelinu, efla valdheimildir Ríkissáttasemjara og leggja alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld. Til að sýna áherslurnar í verki mætti fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB um ár. Viðskipti innlent 26.3.2026 16:42
Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í henni kemur fram að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Meðal hagræðingaraðgerða sem hann boðar er fækkun stöðugilda hjá ríkinu um eitt prósent. Innlent 26.3.2026 16:30
Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, boðar til blaðamannafundar til að kynna fjármálaáætlun. Fundurinn er í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 26.3.2026 15:52
Raunir íslenska pylsusalans Í upphafi vikunnar steig enn einn einsöngvarinn úr grátkór Samtaka atvinnulífsins á svið og söng af lífsins list í Morgunblaðinu um þær hörmungar sem hlotist hafa launahækkunum í samfélaginu. Að þessu sinni var einsöngvarinn pylsusali sem makað hefur krókinn á því að selja þjóðarréttinn í miðbænum. Skoðun 26.3.2026 13:30
Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Formaður VR telur að innleiða verði einhvers konar verðþak á olíu í ljósi hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu og verðhækkana á dælum hérlendis sem fylgja. Viðskipti innlent 26.3.2026 11:27
Vaxtahækkun í maí blasi við Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra. Viðskipti innlent 26.3.2026 10:42