Skoðun

Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer!

Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar

Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja á venjulegt fólk. Fjölskyldur geta ekki endalaust unnið meira, sparað meira og frestað því sem þarf að gera. Einhvern tímann er komið að þolmörkum. Ábyrg stjórnvöld eiga að bregðast við áður en þeim þolmörkum er náð.

Þetta er kjarninn í þeirri nálgun sem Framsókn á að standa fyrir. Að horfa á samfélagið í heild. Staða heimila landsins og atvinnulífsins er nefnilega samofin afkomu ríkissjóð. Afkoman verður ekki tryggð til lengdar með því að veikja stöðu vinnandi fólks og fyrirtækja sem standa undir velferðinni.

Samt er umræðan um álögur of oft þannig að hver hækkun virðist standa ein og sér. Eitt gjald hækkar hér. Stuðningur skerðist þar. Stuðningur sem fjölskyldur stóla á heldur ekki í við verðlag og svo má lengi telja. Hvert skref er útskýrt sérstaklega og sagt viðráðanlegt í hlutfalli við álögur síðasta árs.

Þess vegna er þarft að spyrja áður en ráðist er í skatta og gjaldahækkanir hvaða áhrif fjölmargar hækkanir hafa á heildar útgjöld fjölskyldunnar. Hvernig leggjast breytingarnar á fólk útfrá húsnæðiskostnaði og daglegum útgjöldum. Hversu mikið svigrúm hefur fólk í raun til þess að mæta hækkunum? Ég vil hvetja fólk til þess að fara inn á utreikningur.is og skoða hvernig fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar mun hafa áhrif á þeirra heimilisbókhald.

Það er vænlegt til árangurs að byggja hagstjórnina á hófsemi, sanngirni og langtímahugsun. Það er mikilvægt að viðurkenna nauðsynlegt aðhald en gera jafnframt kröfu um skynsamlega forgangsröðun. Ríkið verður að vanda eigin rekstur og ráðstöfun fjármuna um leið og það gerir kröfur til annarra.

Hófsemin verður líka að ná til ríkisins

Of þungar álögur geta haft áhrif langt út fyrir heimilisbókhaldið. Þegar ráðstöfunartekjur dragast saman minnka viðskipti. Þá þrengir að fyrirtækjum, fjárfestingar bíða og störf geta tapast. Harðri lendingu fylgir þá aukinn kostnaður fyrir samfélagið allt. Þess vegna skiptir máli að almenningur geti reiknað úr áhrifin á fjölskylduna og einnig metið hvernig nálgun Framsóknar mun koma út í heimilisbókhaldinu. Áherslan á hóflegri gjaldahækkanir, barnabætur sem halda verðgildi sínu og áframhaldandi vaxtabætur snýst um að verja svigrúm heimila sem minnst hafa á milli handanna.

Við eigum að standa vörð um grunnþjónustu, styðja verðmætasköpun og skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og vexti. Það krefst samvinnu og að stjórnvöld skilji hvernig höggið lendir á skattgreiðendum. Ég er sannfræður um að flestir vilja leggja sitt af mörkum til samfélagisns. Fók á líka rétt á að stjórnvöld virði þolmörk þess og skilji að á bak við hverja tölu er daglegt líf fólks, matur á borðið, öruggt húsnæði og tækifæri barna til virkni og félagsþroska.

Áður en ríkisstjórnin samþykkir frekari álögur verður að meta áhrifin. Ríkissjóður þarf að ná endum saman en sú krafa verður líka, eðli málsins samkvæmt, að gilda fyrir fjölskyldurnar í landinu.

Höfundur er varaþingmaður Framsóknar í Suðurkjödæmi




Skoðun

Sjá meira


×