Úkraína
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 79 ›
Farnir að nota fjörutíu ára sprengikúlur Rússneski herinn hefur gengið verulega á skotfærabirgðir Rússlands fyrir stórskotalið og framleiðsla þar í landi heldur ekki við notkunina í innrás Rússa í Úkraínu. Bandaríkjamenn segja herinn byrjaðan að nota rúmlega fjörutíu ára skot sem eru líkleg til að virka ekki sem skildi. Erlent 12.12.2022 23:41
Fimm þúsund heimaprjónaðar lopaflíkur sendar til Úkraínu í dag Heimaprjónaðar lopapeysur og ullarteppi voru meðal þess sem kanadíski herinn flaug með til Úkraínu frá Keflavíkurflugvelli síðdegis. Þúsundir Íslendinga hafa tekið upp prjónana undanfarna mánuði og lagt sitt af mörkum til að halda hita á úkraínsku þjóðinni í vetur. Innlent 12.12.2022 21:02
Hættir við blaðamannafund í fyrsta sinn í tíu ár Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur hætt við að halda árlegan blaðamannafund í lok árs. Er það í fyrsta sinn í tíu ár sem þessi fundur fer ekki fram. Forsetinn hefur notað fundina til að styrkja ímynd sína í Rússlandi og svara spurningum blaðamanna ríkismiðla Rússlands. Erlent 12.12.2022 18:07
Ein og hálf milljón manns án rafmagns eftir árásir Rússa Viðbúið er að það muni taka einhverja daga að koma rafmagni aftur á í hafnarborginni Odesa í Úkraínu eftir árásir Rússa í gærkvöldi. Um ein og hálf milljón manns eru nú án rafmagns eftir árásirnar. Erlent 11.12.2022 10:11
Sex hundruð Úkraínumenn á jólaballi í Vesturbænum Úkraínskt og íslenskt jólaball verður haldið í samfélagshúsi fyrir flóttamenn frá Úkraínu í dag. Von er á um sex hundruð manns í hangikjöt og annan jólamat. Talsmaður samtakanna sem skipuleggur ballið þakkar Íslendingum fyrir velvild í garð flóttamanna. Jól 10.12.2022 14:36
Settu upp eldflaugaskotpalla við stærsta kjarnorkuver Evrópu Rússar eru nú sagðir hafa sett upp fjölda eldflaugaskotpalla við kjarnorkuverið í Zaporizhzhia í Úkraínu. Erlent 9.12.2022 07:30
Halda jólaball fyrir úkraínsk börn og óska eftir gjöfum Samtökin Flotta Fólk sem hafa rekið viðamikla starfsemi í þágu Úkraínskra flóttamanna, halda jólaball fyrir Úkraínsk börn í næstkomandi laugardag. Samtökin bjóða þeim sem vilja gefa barni gjöf, að skila innpakkaðri gjöf í úthlutunarmiðstöð þeirra að Neskirkju milli klukkan17:30 og 19:30 í dag eða á Aflagranda 40 á morgun á milli klukkan 11-12:00. Jól 8.12.2022 11:24
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín segir stríðið lengra en hann bjóst við Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur viðurkennt að hin „sértæka hernaðaraðgerð“ eins og hann kallar innrás Rússa í Úkraínu, hefði staðið lengur yfir en hann bjóst við. Hins vegar hefði Rússum tekist að ná landsvæði og sagði hann að kjarnorkuvopn Rússlands hefðu komið í veg fyrir að átökin stigmögnuðust. Erlent 8.12.2022 11:04
Hörmungar, djörfung og dáð Hinn 24. febrúar síðastliðinn réðust Rússar inn í Úkraínu og umbreyttu stöðu öryggis- og varnarmála í Evrópu. Erlent 8.12.2022 07:01
Selenskí og „andi Úkraínu“ valin manneskja ársins hjá Time Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraínu, og „andi Úkraínu“ hefur verið valinn manneskja ársins hjá bandaríska tímaritinu Time. Erlent 7.12.2022 14:01
Segjast hvorki hafa hvatt né stutt Úkraínu til árása í Rússlandi „Við höfum hvorki hvatt Úkraínumenn né stutt þá til að gera árásir í Rússlandi,“ sagði Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í samtali við blaðamenn í gær. Stjórnvöld í Kænugarði hafa ekki lýst árásunum á hendur sér. Erlent 7.12.2022 09:25
Úkraínumenn sagðir gera drónaárásir langt inni í Rússlandi Drónaárás olli tjóni á olíubirgðastöð við flugvöll í Rússlandi nærri landamærunum að Úkraínu í nótt. Hún kemur beint í kjölfar úkraínskra árása á flugvelli langt inni í Rússlandi í gær. Erlent 6.12.2022 09:01
Taka rafmagn af stórum svæðum Stjórnvöld í Úkraínu þurfa að grípa til þess að taka rafmagnið af stórum svæðum tímabundið til þess að raforkukerfið sem eftir stendur í landinu fari ekki á hliðina. Erlent 6.12.2022 07:22
Fölsuðu sjúkraskýrslur barna svo þeim yrði ekki rænt Starfsfólk á barnaspítala í Kherson falsaði sjúkraskýrslur munaðarlausra barna og sögðu þau veikari en þau voru í rauninni. Þetta gerðu þau svo Rússar, sem náðu tökum á borginni snemma í innrás þeirra í Úkraínu, flyttu börnin ekki til Rússlands og rændu þeim. Erlent 5.12.2022 20:00
Víða rafmagnlaust eftir enn eitt stýriflaugaregnið Rafmagnslaust varð víða í borgum Úkraínu í dag eftir að Rússar skutu tugum stýriflauga að ríkinu. Loftvarnir Úkraínu eru sagðar hafa skotið niður flestar stýriflaugarnar en minnst tveir eru látnir í Saporisjía-héraði. Erlent 5.12.2022 15:35
Dularfullar sprengingar á tveimur herstöðvum í Rússlandi Nokkrir eru látnir eftir sprengingar á tveimur herflugvöllum í Rússlandi. Báðir vellirnir eru í hundruð kílómetra fjarlægð frá landamærunum að Úkraínu; nærri borginni Ryazan og í Saratov. Erlent 5.12.2022 12:48
Segjast ætla að draga Rússa til ábyrgðar Forsetar bandaríkjanna og Frakklands sögðust á blaðamannafundi í gær ætla að draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og önnur ódæði þeirra í Úkraínu. Joe Biden sagðist tilbúinn til viðræðna við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en eingöngu ef Pútín væri að leita leiða til að binda enda á innrásina í Úkraínu. Erlent 2.12.2022 13:40
Bréfsprengjurnar taldar heimagerðar og sendar innan Spánar Spænska lögreglan telur að sex bréfsprengjur sem hafa fundist undanfarna tvo sólarhringa hafi verið heimasmíðaðar. Bréfin eru sögð hafa innihaldið lítið magn af púðri og sprengjubrotum og verið send innan Spánar. Erlent 2.12.2022 09:00
„Án Bandaríkjanna værum við í vanda“ Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur kallað eftir því að Evrópuríkin efli varnargetu sína í kjölfar átakanna í Úkraínu. Hún segir styrk Evrópu ónógan án Bandaríkjanna. Erlent 2.12.2022 08:06
Sprengifimt efni sent forsætisráðherra Spánar Innanríkisráðuneyti Spánar upplýsti í dag að sprengifimt efni hefði verið sent til Pedro Sánchez, forsætisráðherra, í síðustu viku. Fréttirnar koma í kjölfar þess að í það minnsta fjögur önnur slík bréf hafa borist stofnunum og fyrirtækjum síðasta sólarhringinn. Erlent 1.12.2022 11:53
Rýnt í upphaf innrásarinnar: Rússar komust nær sigri en flestir átta sig á Þótt eldflaugar eins og Javelin og NLAW, sem hannaðar eru til að granda skriðdrekum, nytu mikillar athygli og bakhjarlar Úkraínu sendu slík vopn þangað í massavís, var það hið hefðbundna stórskotalið sem gerði Úkraínumönnum kleift að verja Kænugarð í upphafi innrásar Rússa í febrúar og mars. Um tíma voru tólf rússneskir hermenn á móti hverjum úkraínskum hermanni á svæðinu. Erlent 1.12.2022 11:49
Þrjár bréfsprengjur á Spáni á einum sólarhring Bréfsprengjur hafa verið sendar á þrjá staði á Spáni síðasta sólarhringinn, nú síðast til herflugvallar þaðan sem fylgst er með gervihnöttum. Starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid særðist lítillega þegar bréfsprengja sprakk þar í gær. Erlent 1.12.2022 08:55
Sex milljónir án rafmagns á fyrsta degi vetrar Úkraínumenn halda fyrsta vetrardag hátíðlegan í dag, fyrsta desember. Erlent 1.12.2022 07:25
Starfsmaður sendiráðs Úkraínu særður eftir bréfsprengju Einn starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid, höfuðborg Spánar, er sagður særður eftir bréfsprengja sprakk þar um miðjan dag. Lögreglan virkjaði viðbúnað vegna hryðjuverka og sprengjusérfræðingar voru sendir á staðinn. Erlent 30.11.2022 13:54
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Hart barist í hakkavélinni við Bakhmut Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins hétu því í gær að Úkraína fengi á endanum inngöngu í bandalagið og að frekari hernaðaraðstoð yrði send til Úkraínumanna. Því var einnig lofað að bandalagið myndi aðstoða Úkraínumenn við uppbyggingu að stríðinu loknu. Erlent 30.11.2022 11:01
Pyntingar á pyntingar ofan Rúmum tveimur vikum eftir að Rússar hörfuðu frá Kherson-borg og vesturbakka Dniproár fer frásögnum af pyntingum og öðrum ódæðum rússneskra hermanna í héraðinu fjölgandi. Minnst fimm staðir hafa fundist í borginni og fjórir aðrir á svæðinu þar sem íbúar segja að þeir hafi verið yfirheyrðir, pyntaðir, þeim hafi verið misþyrmt og hótað lífláti. Erlent 29.11.2022 23:00
„Við getum ekki leyft Pútín að stela jólunum okkar“ Borgaryfirvöld í Kænugarði hyggjast reisa jólatré út um alla borg til að sýna að Rússum takist ekki að berja niður jólaanda borgarbúa, þrátt fyrir sprengjuárásir og orkuskort. Erlent 29.11.2022 07:45
Þórdís Kolbrún átti fund með Selenskí í Kænugarði: „Dagurinn hefur verið stór og mikill“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir það skipta hana miklu máli að sjá aðstæður í Kænugarði með eigin augum. Í dag átti hún og aðrir utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fundi með Selenskí Úkraínuforseta ásamt forsætisráðherra og utanríkisráðherra landsins. Innlent 28.11.2022 20:37
Utanríkisráðherra í óvæntri heimsókn í Kænugarði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, er nú stödd í heimsókn í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, ásamt sex starfssystkinum sínum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjum. Innlent 28.11.2022 11:21
Segja Rússa ætla að ræna rúmlega tíu þúsund börnum Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar ætli sér að ræna rúmlega tíu þúsund börnum af hernumdum svæðum þeirra í Luhansk-héraði í austurhluta landsins og reyna að þvinga foreldra þeirra til að fylgja þeim eftir. Þegar eru Rússar sakaðir um að hafa rænt minnst tólf þúsund úkraínskum börnum en líklegt er að þau séu mun fleiri. Erlent 27.11.2022 11:21