Borgarstjórn
1 2 3 4 5 6 … 72 ›
Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna sjálfstætt starfandi leikskóla hækkar um 290 milljónir króna á ári með nýjum samningi sem hefur verið samþykktur. Samningurinn felur meðal annars í sér að sjálfstæðu leikskólarnir tengist inn í leikskólakerfi borgarinnar. Innlent 21.11.2024 15:59
Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Borgarstjóri og rektor Háskóla Íslands skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu sem felur í sér uppbyggingu fullburða vísindaseturs opnu almenningi í Háskólabíói. Innlent 21.11.2024 15:54
Ríkið þarf ekki að greiða borginni milljarðana Hæstiréttur Íslands hefur sýknað íslenska ríkið af nokkurra milljarða króna kröfu Reykjavíkurborgar í tengslum við framlög ríkisins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Innlent 20.11.2024 21:14
Eldræða Sölku Sólar í ráðhúsinu Tónlistarkonan Salka Sól hélt eldræðu í Ráðhúsi Reykjavíkur af svölum borgarstjórnarsalsins þegar fundur borgarstjórnar fór þar fram í hádeginu í gær. Salka hélt ræðuna fyrir hönd foreldra leikskólabarna vegna verkfalls kennara en hún segir verkfallið hafa djúpstæð áhrif á börnin. Lífið 20.11.2024 15:45
„Það var reitt hátt til höggs“ Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018. Uppbyggingin á bragganum fór tæpar 260 milljónir fram úr kostnaðaráætlun sem gerð hafði verið og það sauð upp úr þegar í ljós kom að flutt höfðu verið inn sérstök „höfundarréttarvarin“ strá frá Danmörku á 757 þúsund krónur til þess að gróðursetja fyrir utan braggann. Innlent 20.11.2024 07:02
Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið. Innlent 15.11.2024 20:00
Niðurskurðarhnífnum beitt á skólana Allt of gróflega er verið að skera niður, draga úr þjónustu við börn eins og rakið er í mörgum liðum í yfirliti frá skóla- og frístundasviði í Greinargerð fagsviða sem birt var með í Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025. Skoðun 9.11.2024 11:32
Viðræður hafnar um kaup á Perlunni, Toppstöðinni og 125 bílastæðum Viðræður standa nú yfir á milli Reykjavíkurborgar og Perlunnar þróunarfélags ehf. um kaup á Perlunni og tveimur tönkum. Í tilkynningu frá borginni segir að Perlan þróunarfélag ehf. hafi verið leigutaki síðustu átta ár. Þá kemur fram í sömu tilkynningu að gengið verði til samningaviðræðna við hæstbjóðendur í Toppstöðina í Elliðaárdal og 125 bílastæði í bílakjallara Hörpu. Innlent 7.11.2024 17:59
Eignasala fjármagnar taprekstur Kostulegt var að sjá fyrirsagnir miðlanna í kjölfar birtingu uppgjörs og fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar. Á einum miðlinum var talað um „Hagnað upp á hálfan milljarð”, og á hinum ýmist um „viðsnúning“ og að „hagræðingaraðgerðir“ væru að bera árangur. Innherji 7.11.2024 09:56
Ummæli borgarstjóra og óbragð í munni Þann 15. október síðastliðinn fjölmenntu kennarar í Ráðhúsið í Reykjavík á fund borgarstjórnar til að mótmæla ummælum sem borgarstjóri hafði látið falla um kennara á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skoðun 6.11.2024 09:15
Rekstur borgarinnar allur að braggast segir borgarstjóri Borgarstjóri segir að takast muni að snúa halla í afgang á rekstri borgarsjóðs strax á þessu ári. Afgangurinn verði síðan tæpir tveir milljarðar á næsta ári. Oddviti Sjálfstæðisflokksins sakar meirihlutann um að hagræða sannleikanum. Innlent 5.11.2024 19:32
Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir yfirlýsingar meirihlutans um rekstrarafgang og vel heppnað aðhald í rekstri borgarinnar. Hálfs milljarðs væntur rekstrarafgangur skýrist alfarið af sölu Perlunnar, sem þurfi að fara fram fyrir áramót. Innlent 5.11.2024 12:14
Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári Útkomuspá A-hluta Reykjavíkurborgar sýnir rekstrarafgang upp á ríflega hálfan milljarð króna á þessu ári og áætlanir gera ráð fyrir að rekstur borgarinnar batni enn frekar næstu fimm árin. Á næsta ári er gert ráð fyrir 1,7 milljarða króna hagnaði. Innlent 5.11.2024 11:51
Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg hefur boðað til blaðamannafundar til að kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2029. Innlent 5.11.2024 10:32
Eru vaxtarmörkin vandinn? Þak yfir höfuðið eru mannréttindi og þörfin fyrir meira húsnæði er brýn. Fyrsta skref í átt að lausn er að skilja hvar pottur er brotinn - og hvar ekki. Skoðun 5.11.2024 09:45
Búum til „vandamál“ – leysum það með samræmdum prófum Umræða um skólastarf hefur verið hávær frá því í vor. Viðskiptaráð var leiðandi í þeirri umræðu en framkvæmdarstjóri þess talaði um „neyðarástand“ í grunnskólum landsins. Nú sjáum við að tilgangurinn helgar meðalið. Sjálfstæðisflokkurinn boðar „umbreytingu á menntakerfinu.“ Skoðun 5.11.2024 09:32
Fyrirmyndarstjórn Viðreisnar og Samfylkingar á Reykjavíkurborg? Að undanförnu hefur lítt spennandi stjórnarmynd verið teiknuð upp. Þótt Samfylking hafi nú nýverið dalað í skoðanakönnunum hefur Viðreisn vaxið ásmegin. Þar birtist sú ógnvænlega mynd að flokkarnir sem eiga ýmislegt sameiginlegt gegni lykilhlutverki við myndun stjórnar eftir næstu kosningar. Skoðun 5.11.2024 08:16
Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar. Innlent 3.11.2024 22:51
Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Meirihlutinn í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar ætlar að leggja til að fallið verði frá tillögu um að fækka áramótabrennum. Ástæðan er sögð mikil hvatning frá íbúum og íbúaráðum. Innlent 1.11.2024 12:17
Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Fækka á áramótabrennum í Reykjavík úr tíu í sex. Erindi þess efnis var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær. Þær brennur sem lagt er til að verði lagðar af eru þær sem haldnar hafa verið við Rauðavatn, í Suðurfelli , Laugardal og Skerjafirði. Innlent 31.10.2024 12:58
Úkraínski fáninn verði við ráðhúsið þar til fullnaðarsigur hefur unnist Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að úkraínski fáninn muni blakta við ráðhús Reykjavíkur þar til Úkraína hefur unnið fullnaðarsigur. Fáninn hefur verið blaktandi við við Ráðhúsið síðan stríðið hófst fyrir meira en tveimur árum. Innlent 29.10.2024 15:46
Sporin hræða vissulega Viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, við áhyggjum kjósanda af því að Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarstjóri um árabil, taki líklega sæti á Alþingi fyrir hönd flokksins eftir þingkosningarnar eru auðvitað afar skiljanleg í ljósi þess hvernig haldið hefur til að mynda verið á fjármálum og skipulagsmálum borgarinnar undir forystu hans í samstarfi við einkum Pírata og Viðreisn sem meðal annars á stóran þátt í verðbólgunni hér á landi undanfarin misseri. Hvað sem þannig líður viðbrögðum Kristrúnar er í öllu falli ljóst að sporin hræða vissulega í þeim efnum. Skoðun 29.10.2024 08:17
Botnar ekkert í hegðun Kristrúnar „Ég er gáttuð á þessari hegðun Kristrúnar, eins ágæt og hún nú er gamla handboltavinkona mín. Mér finnst þetta afhjúpa ótrúlega takmarkaðan skilning á vægi Dags til lengri tíma við mótun borgarinnar, dýpt hans þekkingar á stjórnmálunum og málefnunum og getu til að halda utan um flókið samstarf.“ Innlent 26.10.2024 21:51
„Algjörlega óforsvaranlegt að borgarstjóri skuli gera lítið úr okkur” Íbúar í Grafarvogi segja ummæli borgarstjóri í Bítinu á Bylgjunni í morgun hvorki honum né meirihluta borgarstjórnar til sóma. Einar Þorsteinsson borgarstjóri ræddi í Bítinu áform um uppbyggingu í Grafarvogi en íbúar eru margir afar óánægðir. Innlent 23.10.2024 23:28
Umræða um „ofurþéttingu“ sé leidd af Diljá og Guðlaugi Þór Mikil óánægja er meðal íbúa Grafarvogs vegna áforma um uppbyggingu og meints samskiptaleysis borgarstjóra. Formaður íbúasamtaka Grafarvogs segir suma íbúa vilja láta kanna klofning frá Reykjavíkurborg. Borgarstjóri segir aldrei hafa verið farið í jafn ítarlegt samráð við íbúa og umræðan í Grafarvogi sé leidd af kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 23.10.2024 22:49
Isavia sækir um leyfi til að færa flugvallargirðingu Isavia undirbýr núna afhendingu flugvallarlands í Skerjafirði til Reykjavíkurborgar með færslu flugvallargirðingar í samræmi við tilmæli Svandísar Svavarsdóttur, þáverandi innviðaráðherra, frá því í síðasta mánuði. Innlent 23.10.2024 12:21
Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Frá því greinir Sanna í tilkynningu á Facebook. Innlent 20.10.2024 14:39
Spurt um áhuga fólks á Degi í forystu í Reykjavík Keyptar voru spurningar í spurningavagn Prósents til að kanna áhuga á framboði Dags B. Eggertssonar fyrrverandi borgarstjóra fyrir Samfylkinguna. Innlent 20.10.2024 09:43
Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra að afturkalla tilmæli Svandísar Svavarsdóttur, fyrrverandi innviðaráðherra, til Isavia um að færa girðingu Reykjavíkurflugvallar í Skerjafirði. Innlent 20.10.2024 06:20
Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Kostnaður við snaga sem settir voru upp í Álftamýrarskóla var 1,7 milljónir en ekki 12 milljónir eins og haldið hafði verið fram í fréttum. Milljónirnar tólf voru heildarkostnaður við umfangsmikið viðgerðarverkefni sem snagarnir voru aðeins hluti af. Innlent 19.10.2024 14:35