Eldgos og jarðhræringar
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 132 ›
Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Ný löng gossprunga getur opnast á hverri stundu og fyrirvaralaust við Sundhnúksgíga að sögn fagstjóra hjá Veðurstofu Íslands. Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að fara ekki fótgangandi að núverandi gosi. Innlent 27.4.2024 12:30
Vara við því að fara gangandi að gosinu Lögreglan á Suðurnesjum varar við því að fara fótgangandi að gosstöðvum. Fram hefur komið í fréttum að líkur aukast með hverjum degi á að ný gossprungja opnist eða að nýtt eldgos hefjist. Vegna þess er fólk varað við því að fara fótgangandi. Innlent 27.4.2024 07:37
Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og er enn einn gígur skammt austan við Sundhnúk, virkur. Landris í Svartsengi hefur áfram á sama hraða og eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega, haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða. Innlent 26.4.2024 13:17
Enn kröftugt gos úr einum gíg Enn gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk. Frá 5. apríl hefur aðeins gosið úr einum gíg í eldgosinu sem hófst þann 16. mars síðastliðinn. Myndatökumaðurinn Björn Steinbekk var á vettvangi í vikunni og myndaði gosið. Innlent 23.4.2024 15:46
Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Sýnileg gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi liggur yfir Suðvesturlandi. Mælt er gegn því að börn sofi úti og að viðkvæmir reynir á sig utandyra þegar móðan er sýnileg jafnvel þó að mengun mælist ekki yfir mörkum á loftgæðamælum. Innlent 23.4.2024 15:24
Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum. Innlent 22.4.2024 18:40
Skjálfti 3,1 að stærð út af Reykjanestá Skjálfti 3,1 að stærð varð rétt út af Reykjanestá klukkan 04:54 í morgun. Nokkrir minni skjálftar hafa svo fylgt í kjölfarið. Innlent 22.4.2024 07:28
Atvinnurekendur í Grindavík krefjast úrræða Hópur grindvískra atvinnurekenda segir fyrirtæki í Grindavík komin að þolmörkum og kalla eftir að úrræði sem kynnt verða fyrir þinglok verði úrræði sem miða að fyrirtækjum sem geta og vilja starfa í Grindavík, fyrirtækjum sem þurfa að flytja starfsemi sína og þeim sem sjá hvorki rekstrargrundvöll í né utan Grindavíkur og vilja uppkaup á atvinnuhúsnæði. Innlent 21.4.2024 23:16
Göngumennirnir illa haldnir þegar komið var að þeim Björgunarsveitir björguðu í gær þremur göngumönnum sem höfðu ætlað sér að labba að gosstöðvunum við Litla-Hrút en urðu örmagna á leið sinni. Einn þeirra sem fór í útkallið segir mennina hafa verið illa haldna þegar komið var að þeim. Innlent 21.4.2024 12:29
„Þetta lítur svolítið út eins og eldstöðin sé að taka við sér aftur“ Jarðskjálftinn sem mældist í Bárðarbunguöskjunni í morgun gæti verið til marks um að eldstöðin sé að taka við sér. Þetta segir náttúruvársérfræðingur sem mælir aukna virkni á svæðinu. Skjálftinn var 5,4 að stærð og sá stærsti sem mælst hefur í Bárðarbungu frá eldgosinu í Holuhrauni árið 2015. Innlent 21.4.2024 11:45
Stór skjálfti í Bárðarbungu Stór jarðskjálfti mældist í Bárðarbunguöskjunni snemma í morgun. Innlent 21.4.2024 07:18
„Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segist alls ekki sjá neitt sem bendi til þess að annað eldgos sé að hefjast. Innlent 20.4.2024 11:46
Getur gosið hvenær sem er Sviðsstjóri almannavarna segir að nýtt gos geti hafist á Reykjanesi hvenær sem er. Líklegast sé að gjósi þar sem kvika kemur upp núna á Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 19.4.2024 23:29
Telja líkur á öðru eldgosi Áframhaldandi landris eykur líkur á öðru kvikuhlaupi þó eldgos sé yfirstandandi Meiri óvissa um þróun jarðhræringanna næstu daga eða vikur. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19.4.2024 15:51
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ „Ég er föst á nýjum stað. Ég verð að geta komið fótunum undir mig og fjölskyldu mína,“ segir Birna Rún Arnarsdóttir um erfiða stöðu sem myndast hefur fyrir Grindvíkinga, meðal annars vegna fasteignafélagsins Þórkötlu. Innlent 18.4.2024 23:04
Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Landris í Svartsengi heldur áfram á stöðugum hraða. Flatarmál hraunbreiðunnar á svæðinu er nú 6,15 ferkílómetrar og rúmmál hennar 33,2 milljón rúmmetrar. Innlent 18.4.2024 21:11
Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Grindvíkingar og stuðningsmenn þeirra söfnuðust saman á Austurvelli í dag til þess að mótmæla vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu. Krafan er einföld, þeir vilja fá greitt strax. Innlent 18.4.2024 19:04
Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Búið er að samþykkja kaup á 126 eignum Grindvíkinga en Þórkötlu, fasteignafélagsins sem stofnað var til að annast kaup á þessum eignum, hefur borist 711 umsóknir. Innlent 18.4.2024 12:06
Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Fasteignamarkaðurinn hitnaði verulega í febrúar og líklega í mars líka. Sömu áhrifa er á gæta á leigumarkaði þar sem verð hefur hækkað. Áhrifanna er að mestu að gæta á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögunum í kring. Staða íbúa í Grindavík hefur þarna mikil áhrif. Á sama tíma hefur byggingaframkvæmdum fækkað og er yfirvofandi samdráttur í byggingariðnaði. Viðskipti innlent 18.4.2024 07:55
Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu Boðað hefur verið til mótmæla á Austuvelli klukkan 17 á morgun, þar sem vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu verður mótmælt. Borið hefur á mikilli óánægju meðal Grindvíkinga, sem vilja fá eignir sínar keyptar upp sem fyrst. Innlent 17.4.2024 19:39
Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að leggja af safnskóla fyrir leik- og grunnskólabörn bæjarins. Á næsta skólaári munu öll börn sækja skóla sem næst sínu heimili og þurfa foreldrar og forráðamenn að sækja þar um skólavist. Innlent 17.4.2024 16:39
Ný staða uppi á Reykjanesskaga Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina nú hefur staðið yfir í mánuð. Í byrjun apríl fór landris að aukast og nú er um það bil jafn stór hluti kvikunnar að flæða upp á yfirborð og safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Ný staða er komin upp að sögn náttúruvásérfræðings hjá Veðurstofunni. Innlent 16.4.2024 15:33
Engin skjálftavirkni eftir miðnætti Smáskjálftahrinunni sem hófst í gær við Lágafell, rétt norðvestan við Grindavík, lauk um klukkan hálf fjögur í gær. Alls voru skjálftarnir um 90 talsins og var virknin mest um klukkan 13 og 14 í gær þegar 35 skjálftar mældust. Innlent 15.4.2024 11:26
Fundu veg nær gosinu fyrir tilviljun Æ fleiri hafa undanfarið reynt að komast að eldgosinu við Sundhnjúk og bera það augum undanfarið þrátt fyrir að svæðið sé lokað. Bandarískir ferðamenn sem fréttastofa ræddi við voru himinlifandi með útsýnið. Innlent 14.4.2024 21:40
Hafa tapað milljörðum vegna endurtekinna lokana Forsvarsmenn Bláa lónsins áætla að beinn kostnaður vegna lokana sökum jarðhræringa sé um fimm milljarðar króna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem rætt var við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins. Viðskipti innlent 14.4.2024 20:45
Ekki merki um að kvika sé á ferðinni Skjálftavirkni sem mælst hefur í dag norðvestur af Grindavík er sambærileg virkni sem mældist á svæðinu um miðjan mars. Skjálftavirknin er því ekki merki um einhverjar breytingar í virkni í eldgosinu á Reykjanesi, né að kvika sé á ferðinni á svæðinu. Innlent 14.4.2024 18:38
Smáskjálftahrina á Reykjanesi Fjölmargir smáir jarðskjálftar hafa greinst á Reykjanesi í dag. Fáir þeirra hafa náði yfir eitt stig að styrk en skjálftavirknin hefur ekki verið meiri frá því eldgosið við Sundhnjúka hófst þann 16. mars. Innlent 14.4.2024 16:34
Loka Bláa lóninu vegna gasmengunar Vegna mengunar frá eldgosinu í Sundnhjúkagígaröðinni á Reykjanesskaga þurfti að loka öllum starfsstöðvum Bláa lónsins í morgun. Opnað verður aftur klukkan 14. Innlent 14.4.2024 11:15
Skjálfti á Reykjanesi fannst á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti varð á Reykjanesi um klukkan tíu í morgun og fannst hann á höfuðborgarsvæðinu. Skálftinn var 3,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu íslands. Innlent 13.4.2024 10:06
Alls 42 andmælt ástandsskoðunum NTÍ í Grindavík Alls hafa 42 sent inn andmæli vegna matsgerðar Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) vegna tjónamála í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík. Alls hafa borist 495 tilkynningar til NTÍ þannig um er að ræða um 8,5 prósent tilkynninga. Innlent 13.4.2024 08:59