

Undarlegur blaðamannafundur Rudy Giuliani, lögmanns Donalds Trump, í dag hefur vakið mikla athygli, ekki síst fyrir þær sakir að staðsetning hans þótti afar undarleg, auk þess sem að á sama tíma og fundurinn stóð yfir var tilkynnt að Joe Biden, frambjóðandi Demókrata, hefði unnið sigur í forsetakosningunum.
Van Jones, álitsgjafi CNN í bandarísku forsetakosningunum, brotnaði niður í beinni útsendingu eftir að sjónvarpsstöðin lýsti Joe Biden sem sigurvegara bandarísku forsetakosninganna.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendir Joe Biden og Kamölu Harris heillaóskir vegna sigurs þeirra í forsetakosningunum vestanhafs.
Stuðningsmenn Donald Trump virðast taka fréttum af sigri Joe Biden illa, ef marka má fjölmiðla vestanhafs.
Joe Biden mun verða 46. forseti Bandaríkjanna eftir að hafa borið sigur úr býtum í forsetakosningum þar í landi samkvæmt mati helstu fjölmiða á úrslitum kosninganna. Biden hefur unnið sigur í ríkjum sem tryggja honum fleiri en þá 270 kjörmenn sem þarf til þess að sigra í kosningunum. En hvað gerist næst?
Donald Trump var í golfi í Virginíu þegar ljóst þótti að engar líkur væru á því að hann færi með sigur úr býtum í Pennsylvaníu.
Augu heimsbyggðarinnar voru á Pennsylvaníu í dag á meðan beðið var eftir úrslitum forsetakosninganna í Bandaríkjunum.
„Hvað sem Trump segir núna um að hann vilji kæra útkomur og þess háttar þá er ólíklegt að það muni gera neitt til að breyta niðurstöðu kosninganna. Þær liggja fyrir.“ segir prófessor í stjórnmálafræði.
Forsætisráðherra Íslands óskar Biden og Harris til hamingju með kjörið.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hyggst ekki viðurkenna ósigur í forsetakosningum ytra þrátt fyrir að fjöldi fjölmiðla hafi lýst Biden sem sigurvegara eftir að sá síðarnefndi rauf 270 kjörmanna múrinn síðdegis í dag.
Joe Biden hefur verið lýstur sigurvegari forsetakosninganna af fjölda erlendra miðla. Hann er sagður hafa borið sigur úr býtum í Pennsylvaníu, sem tryggir Biden 20 kjörmenn og er hann nú kominn með 273 kjörmenn en 270 þarf til að sigra kosningarnar.
Demókratinn Joe Biden hefur nú tryggt sér þá 270 kjörmenn sem þarf til að sigra í forsetakosningunum í Bandaríkjunum eftir hann sigldi fram úr Donald Trump í talningu í Pennsylvaníu. CNN lýsti Biden sigurvegara í ríkinu.
Bandaríski fréttamiðillinn CNN hefur lýst Joe Biden sem sigurvegara forsetakosninganna í Bandaríkjunum.
Starfsmaður sem kom að vinnslu kjörseðla í Atlanta í forsetakosningunum í Bandaríkjunum er nú í felum. Starfsmaðurinn hefur fengið fjölda hótana í kjölfar þess að myndband náðist af honum krumpa saman blað og henda því.
Metfjöldi kórónuveirusmita greindust í Bandaríkjunum í gær, þriðja daginn í röð, samkvæmt nýjum tölum frá Johns Hopkins háskólanum. Meira en 127 þúsund greindust smitaðir í gær og 1.149 létust.
Rapparinn, fatahönnuðurinn og athafnamaðurinn Kanye West reið ekki feitum hesti í forsetakosningunum í Bandaríkjunum sem fram fóru síðastliðinn þriðjudag, og hverra úrslit liggja ekki enn fyrir.
Bandaríkjamenn hafa gengið að kjörborðinu í gríðarlega spennandi forsetakosningum.
Starfsmannastjóri Hvíta hússins, Mark Meadows, hefur greinst með kórónuveiruna sem veldur Covid-19.
Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, sagðist sigurviss í ræðu sem hann hélt í Delaware í nótt þrátt fyrir að talningu atkvæða í nokkrum lykilríkjum sé enn ekki lokið. Lofaði Biden skjótum aðgerðum gegn kórónuveirufaraldrinum og hét kjósendum því að öll atkvæði verði talin.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði telur að velgengni Trumps í fjármálum og ástum eigi þátt í því að honum vegnaði betur í forsetakosningunum en kannanir spáðu fyrir um. Trump sé maður sem marga langi til að vera.
Flestir virðast sammála um að það sé aðeins tímaspursmál þar til einhver stóru miðlanna í Bandaríkjunum ríður á vaðið og lýsir Biden sigurvegara í einhverju þeirra ríkja þar sem enn er talið og þar með kjörinn forseta.
Enn er óljóst hvor vinnur kapphlaupið að Hvíta húsinu; Donald Trump eða Joe Biden en Biden stendur þó betur að vígi sem stendur.
Samfélagsmiðillinn Twitter hefur lokað á Steve Bannon, fyrrum ráðgjafa Donald Trump og ritstjóra Breitbart, eftir að Bannon kallaði eftir afhöfðun Anthony Fauci og Christopher Wray. Ummælin lét Bannon falla í hlaðvarpinu War Room, sem var dreift á samfélagsmiðlum.
Nokkrir leiðtogar Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi tóku undir stoðlausar ásakanir Donalds Trump forseta um kosningasvik eftir ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Einn fyrrverandi forsetaframbjóðandi lýsti yfirlýsingum forsetans aftur á móti sem „hættulegum“.
Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, hefur nú naumt forskot á Donald Trump í Georgíu en aðeins munar nokkur hundruð atkvæðum á frambjóðendunum. Forsetinn má ekki við því að tapa Georgíu og þarf sömuleiðis að tryggja sér kjörmenn Pennsylvaníu til að eiga möguleika á endurkjöri.
Enn er ekki ljóst hver náði kjöri sem forseti Bandaríkjanna í kosningunum sem fram fóru á þriðjudag.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því ranglega fram í ávarpi sínu í Hvíta húsinu í kvöld að hann stæði uppi sem sigurvegari forsetakosninganna ef aðeins „lögleg“ atkvæði væru talin.
Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skrifað uppsagnarbréf að sögn þriggja háttsettra starfsmanna ráðuneytisins.
Svo gæti farið að Donald Trump Bandaríkjaforseti bjóði sig fram í forsetakosningum í Bandaríkjunum eftir fjögur ár, tapi hann í kosningunum nú.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, heitir því að höfða dómsmál vegna forsetakosninganna í vikunni á grundvelli meintra kosningasvika.