Fréttir
93 94 95 96 97 98 99 100 101 … 334 ›
Hæstiréttur tekur ummæli Páls ekki fyrir og sýknan stendur Hæstiréttur mun ekki taka fyrir meiðyrðamál tveggja blaðamanna gegn Páli Vilhjálmssyni, bloggara og kennara. Páll var sýknaður af öllum kröfum blaðamannanna í Landsrétti, og því standa ummæli hans. Innlent 5.9.2024 14:31
„Guðs mildi að þetta hafi stoppað þarna“ „Það er alveg með hreinum ólíkindum að koma að þessu. Hún hefur ekki hreyfst girðingin, en hraunið vafði sér eiginlega utan um hornið þarna,“ segir Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og Grindvíkingur, um hraun sem stoppaði við hús í Grindavík í janúar á þessu ári. Innlent 5.9.2024 14:18
Rúmar fimmtíu milljónir á mánuði fyrir Rússaáróður Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sökuðu í gær ráðamenn í Rússland um að verja milljónum dala til áróðursherferða gegnum ríkismiðil Rússlands, RT (sem áður hét Russia Today). Áróðrinum var ætlað að hjálpa Donald Trump við forsetaframboð hans og grafa undan stuðningi Bandaríkjamanna við Úkraínu. Erlent 5.9.2024 14:06
Vísbendingar um að land rísi enn á ný GPS mælingar sýna vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Á sama tíma hefur dregið úr flæði frá eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Það bendir til þess að innflæði í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé meira en flæði úr eldgosinu á yfirborðinu. Innlent 5.9.2024 14:03
Kennir börnum að verjast stunguárás án leyfis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við mann sem hefur kennt börnum í Kópavogi að verjast hnífaárás og að nota kylfur og sverð. Maðurinn birti myndbönd af sjálfum sér í gær og í dag með kylfur og hnífa á leikvelli við ærslabelg við Gerðasafn í Kópavogi. Innlent 5.9.2024 14:00
Munu fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Lögreglan á Austurlandi mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 5.9.2024 13:48
Höfundalögin „þarfnast ástar“ til að virka Stjórnarformaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kallar eftir því ráðherra breyti höfundalögum á Íslandi og uppfæri til samræmis við nútímann. Allur hugverkaiðnaðurinn sé undir sem neyðist til að styðja sig við úrelt lög. Málaflokkurinn „þarfnast ástar,“ líkt og stjórnarformaðurinn komst að orði, einkar skemmtilega. Innlent 5.9.2024 13:36
Eldur kom upp í Grafarvogi Eldur kom upp í húsnæði í Fossaleyni í Grafarvogi í Reykjavík í dag. Starfsmönnum á vettvangi tókst að slökkva eldinn og svo kom slökkvilið og er að reykræsta húsnæðið. Innlent 5.9.2024 13:23
Kannast ekki við fleiri líflátshótanir í garð Helga Magnúsar Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari áréttar að ástæða þess að hún sendi mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara til dómsmálaráðherra sé ekki vegna persónulegs ágreinings. Hún hafi verið úrræðalaus eftir áminningu sem hún veitti honum árið 2022. Henni hafi ekki verið kunnugt um frekari líflátshótanir í garð Helga Magnúsar. Innlent 5.9.2024 13:15
Gæti tafið virkjanaframkvæmdir um tvö ár og skaðað samfélagið Forstjóri Landsvirkjunar segir kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps á virkjanaleyfi Búrfellslundar geta tafið framkvæmir um tvö ár og skaðað samfélagið sem þurfi á orkunni að halda. Hreppurinn hafi ekkert með útgáfu framkvæmdaleyfis að gera og hafi ekki nýtt sér ítrekuð tækifæri til athugasemda. Innlent 5.9.2024 12:16
Allir austur um helgina Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar hvetur alla landsmenn að ferðast austur í veðurblíðuna um helgina. Á Vestfjörðum og Norðurlandi eru gular veðurviðvaranir, og losnaði bátur frá bryggju á Ísafirði vegna veðurofsans. Innlent 5.9.2024 12:14
Unglingspiltur dæmdur fyrir þrjár hnífaárásir Unglingspiltur hefur hlotið átján mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna ýmissa brota, en þrjú þeirra voru ofbeldisbrot framin með hníf. Innlent 5.9.2024 12:14
Barnier nýr forsætisráðherra Frakklands Michel Barnier verður næsti forsætisráðherra Frakklands. Emmanuel Macron, forseti landsins, tilkynnti um það í morgun. Barnier var áður aðalsamningamaður Evrópusambandsins og leiddi til dæmis samningaviðræðurnar þegar Bretar gengu úr úr samningu, Brexit. Erlent 5.9.2024 11:49
Forstjóri Landsvirkjunar ósáttur með kæru frá Skeiða- og Gnúpverjum Í hádegisfréttum verður rætt við Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar sem er ekki par sáttur með boðaða kæru frá sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps er varðar vindorkugarð í Búrfellslundi. Innlent 5.9.2024 11:35
Skúta slitnaði frá bryggju í aftakaveðri fyrir vestan Bálhvasst hefur verið á Norðvesturlandi og á Vestfjörðum í morgun og björgunarsveitum á svæðinu hafa borist fjölmargar tilkynningar. Á Ísafirði slitnaði lítil skúta frá bryggju og rak upp í grjótgarðinn við Pollinn. Innlent 5.9.2024 11:21
„Þetta hefur verið helvíti“ Tæknitröllið og útvarpsmaðurinn Þráinn Steinsson var mættur á kunnuglegar slóðir í morgun, en nú sem viðmælandi í Bítinu en þar sat hann við takkana árum saman og var í raun þriðji hluti í tvíeyki þeirra Heimis Karlsson og Gulla Helga. Þráinn rakti snarlega ótrúlega sjúkrasögu sína sem er með þeim hætti að hroll setti að hraustustu mönnum meðal hlustenda. Innlent 5.9.2024 11:06
Meirihluti vill að hið opinbera nýti vindinn Mikill meirihluti þjóðarinnar telur mikilvægt að vindorkuframleiðsla sé í höndum opinberra aðila, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Helmingur þjóðarinnra er hlynntur fyrirhugaðri vindorkuframleiðslu í Búrfellslundi. Innlent 5.9.2024 10:39
„Þeir komu fram við mig eins og tuskudúkku“ Frönsk kona sem nauðgað var ítrekað af ókunnugum mönnum eftir að eiginmaður hennar til fimmtíu ára byrlaði henni yfir tíu ára tímabil, segir lögregluna hafa bjargað lífi sínu með því að koma upp um hann. Réttarhöld yfir manninum og 51 öðrum sem nauðguðu henni standa nú yfir en þau fara fram fyrir opnum dyrum, að kröfu konunnar. Erlent 5.9.2024 10:36
Grunur um íbúðir í óleyfi stoppar frekari framkvæmdir Theódóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi, segir mikilvægt að byggingafulltrúi fái heimild til að skoða hús að Melgerði á Kársnesi áður en gefið verður leyfi til að byggja við húsið. Eigandi hefur óskað eftir leyfi til að stækka húsið þannig það verði tvær íbúðir. Skipulagsráð frestaði í vikunni afgreiðslu málsins. Innlent 5.9.2024 10:00
Skutu vopnaðan mann til bana í München Karlmaður var skotinn til bana eftir skotbardaga við lögreglu í München í morgun. Lögreglan segir hættuna liðna hjá eftir að maðurinn var skotinn til bana en lögregluþjónar særðust í skotbardaganum. Erlent 5.9.2024 08:24
Enn ein „lokatilraun“: Samkomulag sagt stranda á tveimur atriðum Yfirvöld í Egyptalandi og Katar vinna nú að breytingum á tillögum um vopnahlé á Gasa og eiga í samráði við Bandaríkjamenn. Enn er talað um „lokatilraun“ til að brúa bilið milli Ísrael og Hamas. Erlent 5.9.2024 07:56
Lífeyrisþegar halda atkvæðarétti sínum í Blaðamannafélaginu Tillögur stjórnar Blaðamannafélagsins um að afnema grein í lögum félagsins um birtingu félagatals á opinberum vettvangi og að afnema atkvæðisrétt lífeyrisþega í félaginu voru felldar á framhaldsaðalfundi Blaðamannafélagsins í gærkvöldi. Meirihluti greiddi atkvæði með tillögunum en aukinn meirihluta hefði þurft til að fá þær samþykktar. Innlent 5.9.2024 07:48
Slær sums staðar í storm norðvestantil Veðurstofan spáir hvassri suðvestanátt og að sums staðar slái í storm þar sem hvassast verður á norðvestanverðu landinu. Gular viðvaranir eru í gildi á norðanvestanverðu og norðanverðu landinu fram á kvöld. Veður 5.9.2024 07:10
Segja yfirburði Bandaríkjanna ógn við stöðugleika í heiminum Tveir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum segja hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna og bandamanna þeirra gagnvart Kína og Rússland mögulega ógn við stöðugleika í heiminum. Erlent 5.9.2024 07:08
Á þriðja hundrað kíló tekin á landamærunum Ríflega 230 kíló, tæpir tíu lítrar og 40 þúsund töflur af ólöglegum fíkniefnum hafa verið haldlögð á landamærum Íslands það sem af er þessu ári. Alls hefur verið lagt hald á 21 tegund fíkniefna, þar á meðal rúmlega 22,5 kíló af kókaíni, yfir 140 kíló af marijúana og tæplega nítján þúsund töflur af MDMA. Í heildina er um að ræða nokkuð meira magn fíkniefna en haldlagt var á sama tímabili í fyrra, að undantöldum fíkniefnum í vökvaformi sem haldlögð voru í meira magni á síðasta ári. Innlent 5.9.2024 07:03
Skeiða- og Gnúpverjahreppur kærir leyfi vegna Búrfellslundar Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti í gær að fela oddvita í samráði við lögmenn að kæra virkjunarleyfið sem Orkustofnun hefur gefið út fyrir Búrfellslund til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Innlent 5.9.2024 06:43
Undrast klappstýrur nasista í umræðunni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson undrast þróun umræðunnar á samfélagsmiðlum, ekki síst í Bandaríkjunum. Óhugnanlegt sé að sjá fólk upphefja nasista og mála bandamenn upp sem illmenni Seinni heimsstyrjaldarinnar. Innlent 5.9.2024 00:04
Guðmundur enn undir feldi Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hann bjóði sig fram til áframhaldandi formannssetu á landsfundi Vinstri grænna í október. Innlent 4.9.2024 22:59
Bolli baðst afsökunar eftir orrahríð dagsins Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um stúlkur í Sjálfstæðisflokknum. Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna segir ummælan dæma sig sjálf en tekur afsökunarbeiðninni og býður Bolla aftur velkominn í flokkinn. Innlent 4.9.2024 21:35
„Ég held að við höfum öll sofnað á verðinum“ Kennari með áratugareynslu af íslenskukennslu fyrir útlendinga segir þjóðina hafa sofnað á verðinum hvað varðar að kenna innflytjendum málið. Fyrirtækin í landinu þurfi að taka ábyrgð og Íslendingar þurfi líka að sýna útlendingum áhuga. Innlent 4.9.2024 20:25