Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Birgir Olgeirsson skrifar 27. júlí 2026 21:01 Þessi slökkviliðsmenn reyna að slökkva eldana. AP Á fjórða hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda í Frakklandi og á Spáni. Evrópusambandið segir þetta eina umfangsmestu rýmingaraðgerð sem ráðist hefur verið í í álfunni. Íslensk kona var meðal þeirra sem þurftu að leita í fjöldahjálparstöð í Toledo.
Langvarandi þurrkar og hitabylgjur hafa skapað mikla eldhættu í vestanverðri Evrópu. Stór eldur í Gironde-héraði í Frakklandi hefur brennt tugi þúsunda hektara og komist nærri Bordeaux. Slökkviliði tókst að hægja á útbreiðslunni í nótt en yfirvöld sögðu í morgun hættuna langt frá liðna. Rýmingarnar eru meðal þeirra umfangsmestu í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Á Ítalíu voru hundruð ferðamanna flutt frá Peschici vegna elds þar. Slökkviflugvélar og viðbragðssveitir hafa verið sendar milli Evrópuríkja til aðstoðar. Á Spáni hafa margir tugir þúsunda þurft að yfirgefa heimili sín eða halda sig innandyra. Eldar í Madríd, Ávila og Toledo hafa brennt tugi þúsunda hektara. Ellefu bæir í Toledo-héraði voru rýmdir um helgina vegna reyks frá eldunum. Einn þeirra er Nuño Gómez þar sem Hildur Kolbrún Andrésdóttir býr. „Það var bara bankað á dyrnar hjá mér og mér tilkynnt að við þyrftum að rýma,“ segir Hildur. „Reykinn í gær og í fyrradag byrjaði að leggja yfir okkur, alveg þykkur mökkur sem lá yfir okkur. Þess vegna vorum við látin fara, ekki út af eldinum heldur reyk og öskufalli.“ Líkt og eldgos á Íslandi Hún segir ástandið minna á þegar eldgos verður á Íslandi. „Ennþá þykkara og dekkra á litinn. Sólin var orðin appelsínugul og þegar við lögðum af stað í gærkvöldi þá var tunglið orðið appelsínugult,“ segir Hildur. Hún var flutt í iðnsýningarskála í Talavera de la Reina. Þar hefur hún dvalið með hundruðum annarra. Hildur segir íbúa rólega á meðan eldarnir hafa ekki áhrif á líf þeirra. „Ég held að þetta hafi komið flestum á óvart þegar var rýmt.“ Heimilið hennar er því ekki í hættu, heldur er heilsu fólks stofnað í voða af reyknum. „Það er eitthvað um að gamalt fólk sem er ósjálfbjarga komist ekki sjálft og þá hafa þeir verið að fara og sækja fólkið, bera það út og fara með í sjúkrabíl. En það eru ekki allir sammála þessu, sumir vilja meina að það sé nóg að vera inni og loka glugganum.“ Þegar rætt var við Hildi fyrr í dag vissi hún ekki hvenær hún mætti snúa heim. Yfirvöld vöruðu við því að meiri hiti, þurrkur og vindur gætu torveldað slökkvistarf næstu daga.
Íslendingar erlendis Spánn Gróðureldar Frakkland Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira