Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Jakob Bjarnar skrifar 28. júlí 2026 11:06 Þrjár kynslóðir loksins sameinaðar á ný; April, dóttir hennar Imani og móðir hennar Taffie. En það gekk ekki stórslysalaust að koma þeim til landsins. aðsend Móðir April Dobbins og dóttir eru meðal þeirra sem lentu í miklum hremmingum á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins nú fyrir helgi. April segir móður sína, sem er á áttræðisaldri, hafa verið algjörlega búna eftir að hafa staðið í tveggja tíma röð í Leifsstöð. „
Hún hefur aldrei farið frá Bandaríkjunum áður. Ég hef búið hér í nokkur ár og hef verið að leggja að henni að sækja mig og landið heim. Hún lét loksins verða af því,“ segir April. April segir að sem betur fer hafi dóttir hennar Imani, sem er við nám í Bandaríkjunum, verið með Taffie móður hennar í för. Hún veit ekki hvernig þetta hefði farið öðrum kosti. „Dóttir mín er 22 ára gömul en þær voru báðar í Alabama. Þær flugu til Nashville og þaðan fóru þær í vél frá Icelandair og héldu til Íslands.“ Örtröðin eins og á tónleikum Vísir hefur fjallað ítarlega um örtröðina sem myndaðist á Keflavíkurflugvelli fyrir helgi en þar myndaðist til að mynda mikil teppa við töskufæriböndin: April á íslenskan eiginmann og hann var að fara til Mallorca þannig að það hentaði vel að þau hjónin færu saman út á Leifsstöð til að sækja þær Imani og Taffie. Biðin ætlaði engan enda að taka. „Þetta tók svakalega langan tíma. Ég hef aldrei vitað annað eins. Það var gríðarleg örtröð í móttökusalnum. Þetta var eins og á tónleikum og fólk var afar ráðvillt. Þarna voru íslenskir ökumenn sem voru að hringja í ofboði; ég heyrði þá tala um að þetta væri stórslys. Ég hef aldrei séð nokkuð í líkingu við þetta.“ Er að jafna sig eftir þessa erfiðu upplifun Eftir að þær Imani og Taffie komust loks í gegnum vegabréfaeftirlitið og út voru þær gersamlega búnar á því að sögn April. Hún segir varla hægt að leggja svona nokkuð á gamla konu. „En hún er baráttujaxl og jákvæð að upplagi. Ég hef farið með hana og sýnt henni staði sem gera Ísland algjörlega einstakt. April hefur farið um með móður sína og sýnt henni það helsta. Hún er að jafna sig eftir þessa reynslu.aðsend Fólkið hér er líka einstaklega vingjarnlegt og hún er að ná sér,“ segir April sem lætur þessa hörmulegu reynslu af umferðaröngþveitinu í Leifsstöð ekki slá sig út af laginu. En hún telur að þau á Leifsstöð geti gert svo miklu miklu betur. Leiðinlegt sé að eiga heimsmet fyrir skipulagsslys af þessu tagi. Vísir hefur sent fyrirspurn til Isavia þar sem meðal annars er grennslast fyrir um hvenær fólk getur vænst þess að hlutirnir á Keflavíkurflugvelli verði komnir í eðlilegt horf? Háannatími, fleiri flug en líka nýtt kerfi Bjarni Ólafur Ólafsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, ræddi tafir síðustu vikna við fréttastofu í síðustu viku. Aukning á flugi og árlegur háannatími ylli því að biðtími lengdist. Nú væri biðin þó enn lengri en vanalega á landamærunum fyrir ferðamenn sem komi hingað frá ríkjum utan Schengen-svæðisins. Bandaríkin eru utan Schengen. Innleiðing nýs komukerfis Schengen-ríkja hófst í október á síðasta ári hér á landi en þar af leiðandi þurfa farþegar frá löndum utan svæðisins nú að gefa lífkennaupplýsingar, s.s. fingraför, við komuna til Íslands. Bjarni sagði að breytingin ylli því að nú taki ríflega þrefalt lengri tíma að skrá fólk inn í landið en áður. Sjálfsafgreiðsluvélar sem hafi átt að gera ferlið skilvirkt og fljótlegt hafi ekki enn komist í gagnið. „Í fyrra, áður en þetta nýja kerfi var tekið inn, vorum við að skoða vegabréf sem tók um það bil tuttugu sekúndur en núna erum við að skoða vegabréf og skrá viðkomandi inn í þetta EES-kerfi, Entry/Exit-kerfi sem allar þjóðir í Evrópu eru að gera,“ sagði Bjarni. Sá tími tæki sextíu til sjötíu sekúndur. Það þyki ansi gott miðað við önnur lönd sem hafi tekið kerfið upp á sama tíma. Hann sagði lögregluna á Suðurnesjum hafa lagt sig fram við að gera breytinguna sem skilvirkasta og meðal annars aukið við mannskap þegar flestir færu í gegnum landamærahliðin, á morgnana og síðdegis. Það gæfi þó auga leið að raðirnar í landamæraeftirlitið lengist í kjölfar þessarar breytingar en Bjarni sagðist vona að nýjar sjálfsafgreiðsluvélar yrðu komnar í lag í haust.“
Keflavíkurflugvöllur Vegabréf Ferðalög Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Sjá meira