Innlent
262 263 264 265 266 267 268 269 270 … 334 ›
Fór inn á flugbraut, inn í flugvél og handtekinn við lendingu Maður var handtekinn í dag eftir að hann fór yfir grindverk og inn á virka flugbraut á flugvellinum í Reykjavík. Þar fór hann þó upp í flugvél og var ekki handtekinn fyrr en við lendingu, samkvæmt dagbók lögreglu. Innlent 28.2.2024 19:29
Sér fram á verkfallsboðun Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist sjá fram á að samninganefnd Eflingar muni á fundi sínum í kvöld samþykkja verkfallsboðun. Innlent 28.2.2024 19:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka atvinnulífsins virðast í uppnámi. Samninganefnd Eflingar mætti ekki til fundar hjá ríkissáttasemjara í morgun og ræðir nú hvort mögulega verði gripið til verkfallsaðgerða. Við verðum í beinni frá skrifstofu Eflingar í kvöldfréttum Stöðvar 2 og heyrum í Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni félagsins. Innlent 28.2.2024 18:01
„Gjörsamlega misboðið yfir stöðunni“ Fundi dagsins í Karphúsinu er lokið og ekki hefur verið formlega boðað til þess næsta. Gert er þó ráð fyrir að fundað verði aftur á morgun. Formenn Starfsgreinasambandsins og Samiðnar eru sammála um að staðan sé flókin og erfið. Innlent 28.2.2024 16:37
Bjarni ræddi við Israel Katz og bíður eftir grænu ljósi Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra ræddi við Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, símleiðis síðdegis í dag. Þar óskaði Bjarni liðsinnis um afgreðislu á lista yfir dvalarleyfishafa á Gaza. Erindinu hafi verið vel tekið af hálfu ísraelska ráðherrans en þó alls óvíst hvenær grænt ljós fáist. Innlent 28.2.2024 16:31
Skoða að byggja nýja slökkvistöð Bæjarstjóri Ísafjarðar skoðar nú að reisa nýja slökkvistöð í bænum. Elsti hluti núverandi byggingar er 86 ára gömul og glíma slökkviliðsmenn við tíð lekavandamál þar vegna fjölþættra vandamála. Innlent 28.2.2024 15:51
Gekk berserksgang á billjardstofu Karlmaður hefur verið dæmdur til sextíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir tilefnislausa líkamsárás á billjardstofu í júní í fyrra. Innlent 28.2.2024 15:16
Þegar Ari Trausti rauk úr beinni útsendingu Harðlífi er hlaupið í framboð væntanlegra forsetaframbjóðenda en kosið verður 1. júní 2024. Þegar Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti um að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér þriðja kjörtímabilið kom það mörgum á óvart. Aðdragandi forsetakjörs er ekkert grín eins og dæmin sanna. Innlent 28.2.2024 14:30
Pétur Jökull handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald Pétur Jökull Jónasson, sem lýst var eftir á vef Interpol þann 16. febrúar síðastliðinn, hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann er hvergi að finna á vef Interpol lengur. Innlent 28.2.2024 14:26
Bílstjóri rútunnar var starfsmaður á verkstæði Rútan, sem ekið var á móti umferð á Reykjanesbraut í gær, var í umsjón bifreiðaverkstæðisins Vélrás. Eigandi fyrirtækisins segir ljóst að um mannleg mistök hafi verið að ræða og að tekið verði á málinu innanhúss. Innlent 28.2.2024 12:53
Illvirki hafi verið unnið Árni Tómas Ragnarsson læknir segir Ölmu Möller landlækni hafa framið illvirki á skjólstæðingum sínum þegar hún stöðvaði starfsemi hans. Þá gagnrýnir hann Valgerði Rúnarsdóttur yfirlækni á Vogi og sakar um blekkingar. Innlent 28.2.2024 12:34
Fundar með samninganefnd um mögulega verkfallsboðun Samninganefnd Eflingar mun funda í kvöld í ljósi þess að Samtök atvinnulífsins opnuðu á viðræður um launaliðinn við aðra en láglaunafólk. Formaður Eflingar segir vel koma til greina að boðað verði til verkfallsaðgerða. Innlent 28.2.2024 12:17
Gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga viðhalda verðbólgunni Hækkun á gjaldskrám sveitarfélaga ræður mestu um að minna dróg úr verðbólgu í febrúar en vænst hafði verið. Verðbólga mælist nú 6,6 prósent. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er eftir þrjár vikur. Innlent 28.2.2024 11:45
„Fyrir mér er meirihlutinn óstarfhæfur“ Fulltrúi Fjarðarlistans greiddi atkvæði gegn tillögu síns meirihluta á fundi bæjarstjórnar Fjarðarbyggðar í gær. Tillagan snerist um breytingar í skólamálum sveitarfélagsins en unnið er að því að sameina alla grunnskóla sveitarfélagsins í eina stofnun. Sama á við um leikskóla Fjarðabyggðar. Innlent 28.2.2024 11:45
Ekki eftirsóknarverður staður til að vera á Þegar lögum um útlendinga var breytt vorið 2023 var ákveðið að þau sem hefðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd myndu missa rétt á allri þjónustu 30 dögum síðar. Eftir það ætti fólk að yfirgefa landið. Fámennur hópur gerir það ekki og er heimilis- og réttindalaus á Íslandi. Innlent 28.2.2024 11:40
Aukin skjálftavirkni og þolmörk að nálgast Skjálftavirkni við kvikuganginn á Reykjanesskaga hefur aukist sem bendir til þess að kvikumagnið sé komið að þolmörkum. Fagstjóri hjá Veðurstofunni segir áhyggjuefni að fólk sé að gista í Grindavík en vonar að það sé tilbúið að yfirgefa bæinn í flýti. Innlent 28.2.2024 11:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um nýjar verðbólgutölur en verðbólgan hjaðnaði lítið eitt á milli mánaða. Innlent 28.2.2024 11:37
Gaslykt í Reykjanesbæ vegna blöndu frá hrauninu og virkjuninni Umhverfisstofnun hafa borist ábendingar um sterka gaslykt í Reykjanesbæ undanfarna daga. Fólk hafi jafnvel fundið fyrir einkennum á borð við sviða í hálsi og höfuðverk. Innlent 28.2.2024 10:13
Traust til Seðlabankans heldur áfram að minnka Traust almennings til Seðlabankans hefur minnkað og þá hefur traust til borgarstjórnar Reykjavíkur aukist. Annars mælist traust til flestra stofnana svipað og á síðasta ári. Innlent 28.2.2024 08:40
Grófu dauðar merarnar í snarhasti og leyni eftir skipun Ísteka Hrossabóndi í Landeyjum segir Ísteka hafa beðið hana um að þagga niður þegar fjórar merar hennar drápust í tengslum við blóðtöku á bænum hennar. Hún þurfti að berjast fyrir að krufningsskýrsla yrði gerð og hefur ekki fengið bætur frá fyrirtækinu. Innlent 28.2.2024 06:01
Þremur sekúndum frá endalokunum á Reykjanesbrautinni Sólborgu Guðbrandsdóttur brá mikið á leið sinni til Reykjavíkur eftir Reykjanesbrautinni þegar hún mætti rútu á fleygiferð á móti henni á öfugum vegarhelmingi. Hún og fleiri bílstjórar fyrir aftan hana neyddust til að sveigja út í kant til að verða ekki fyrir rútunni. Innlent 28.2.2024 01:03
Þingeyingar sprengdu áður stíflu en vilja núna virkja Sú óvenjulega staða er komin upp í Þingeyjarsveit að mikill meirihluti íbúa í nærsamfélaginu vill fá svokallaða Einbúavirkjun í Skjálfandafljóti inn á aðalskipulag, virkjun sem sveitarstjórnin hafði hafnað. Innlent 27.2.2024 22:22
Spyr sig hvað fylli mælinn hjá íslenskum bændum Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir stöðu íslenskra bænda dapra en að engin mótmæli hafi verið skipulögð líkt og víða í Evrópu um þessar mundir. Hún segir Bændasamtökin fylgjast vel með aðgerðum bænda úti í heimi. Innlent 27.2.2024 21:09
Varar við óafturkræfum skaða við notkun nikótínpúða Stefán Pálmason tannlæknir og sérfræðingur í lyflækningum munns varar notendur nikótínpúða sem hefur fjölgað gríðarlega á Íslandi undanfarin ár við óafturkræfum skaða fyrir tannholdið. Nikótínpúðar valdi því að tannholdið hörfi ásamt því að hafa álíka slæm áhrif á hjarta- og æðakerfið og reykingar. Innlent 27.2.2024 20:30
Bjartsýni og góður gangur í kjaraviðræðum Fulltrúar nánast allra félaga innan Alþýðusambandsins annarra en verslunarmanna hafa haldið áfram viðræðum við Samtök atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í dag. Innlent 27.2.2024 19:30
Vona að jarðvegur verndi nýja lögn renni hraun aftur sömu leið Vinnuflokkar keppast nú við að klára frágang í kringum nýja Njarðvíkurlögn og nýja og hærri háspennulínu, sem liggur yfir varnargarðinn við Svartsengi, áður en eldgos hefst. Um átta milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi að mati Veðurstofunnar en enginn gosórói mælist enn sem komið er. Innlent 27.2.2024 19:21
Alma Möller leiðir hugann að forsetaframboði Alma Möller landlæknir segist vera að íhuga að íhuga framboð til forseta Íslands. Margir hafi komið að máli við sig og hvatt hana í framboð og því hafi hún leitt hugann að því. Innlent 27.2.2024 18:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Búist er við eldgosi á næstu klukkustundum eða dögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 skoðum við varnargarða sem verið er að reisa í kappi við tímann og heyrum í viðvörunarflautum sem komið hefur verið fyrir í Grindavík. Innlent 27.2.2024 18:05
Fór huldu höfði á landinu í samtals tvö ár Hælisleitandi sem hafði farið huldu höfði í heilt ár fannst þegar lögregla hafði afskipti af honum vegna þjófnaðar í verslun við Tryggvagötu. Þá kom í ljós að hann hafði verið í felum á Íslandi tvisvar í samtals tvö ár yfir sex ára skeið. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var staðfestur af Landsrétti í dag. Innlent 27.2.2024 18:03
DNA konu fannst á typpi karlmanns en dugði ekki til Karlmaður hefur verið sýknaður af nauðgun með því að hafa á árshátíð stungið lim sínum í munn samstarfskonu eiginkonu sinnar á klósettinu. DNA úr konunni fannst á typpi mannsins, sáðfrumur í munni hennar en engar í nærbuxum mannsins. Of mikill vafi þótti á því hvort maðurinn hefði verið að verki. Innlent 27.2.2024 16:43