
Tíska og hönnun

Skór dauðans og antík Adidas-peysa
"Uppáhaldsflíkin mín er Adidas-hettupeysa sem ég keypti þegar ég var unglingur," segir Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélagsins.
Ný gervibrúnkulína
Nú er komin á markaðinn ný lína gervibrúnkuvara í N°7 snyrtivörunum frá snyrtivöruframleiðandanum Boots.
Swatch
Swatch, eitt fyrirtækja hinna heimsþekktu svissnesku úraframleiðenda, var stofnað upp úr 1980 eftir töluverða lægð á swissneskum úramarkaði.

Svart passar við margt
Ef þú finnur svartar buxur eða pils sem passa alveg fullkomlega þá ættir þú að hugleiða að kaupa meira en eitt par.

Gallabuxur ómissandi árið um kring
Eitt af því sem óhætt er að segja að sé ómissandi hverri manneskju er að minnsta kosti eitt par af gallabuxur.

Tískuverslunin Nonnabúð
Á horni Klapparstígs og Laugarvegar er verslunin Nonnabúð, en hún flutti þangað nýlega eftir ársdvöl á Smiðjustíg og má fullyrða að hún eigi ekki sína líka í borginni.

Nýtt gel frá Lancóme
Body Sculptesse er silkikennt gel frá Lancóme sem þéttir og mýkir húðina.

Þægileg föt sem passa
"Mér finnst bara langbest að vera í mjög þægilegum fötum sem passa," segir Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari. "Ég á einar þröngar, léttar og venjulegar æfingabuxur sem ég er mjög oft í og eru svona í uppáhaldi.

Skór sem vekja athygli
Uppáhaldsskórnir mínir þessa dagana eru eldrauðir og kafloðnir skór frá X18," segir Guðný María Jónsdóttir leikstjóri um uppáhaldsskóna sína.

Parker fékk tískuverðlaun
Leikkonunni Sarah Jessica Parker hefur verið veitt tískuverðlaunin Facion Icon frá samtökum bandarískra tískuhönnuða. Parker, sem hefur vakið mikla athygli fyrir klæðaburð sinn, m.a. í þáttunum Sex and the City, var hæstánægð með útnefninguna.

Plastað prjón er spennandi
Vestast í Kópavoginum í risastóru verksmiðjuhúsnæði starfar Þorbjörg Valdimarsdóttir textílhönnuður. Vinnustofunni deilir hún með vinkonu sinni og hyggur senn að stórframkvæmdum á húsnæðinu við hliðina á vinnurýminu þar sem hún ætlar að búa í framtíðinni. Þorbjörg útskrifaðist frá Listaháskólanum fyrir fjórum árum og hefur síðan verið að feta sig áfram í hönnunarheiminum.

Gömul sjúkrahúsnærföt endurnýjuð
Ragna Fróðadóttir er fatahönnuður og rekur saumastofu í Lundi við Nýbýlaveg í Kópavogi. Ragna er þekkt fyrir fallega og óvenjulega hönnun og frumlegar hugmyndir og margir hafa gert góð kaup í fötum eftir hana. En hver skyldu nú vera bestu kaupin sem hún hefur gert?