Tónlist
197 198 199 200 201 202 203 204 205 … 226 ›
Stones leggja Evrópu undir fót Hinir gamalreyndu Rolling Stones hrintu Evróputúr sínum úr vör í gær. Fyrstu tónleikarnir fóru fram í Belgíu fyrir framan 33 þúsund áheyrendur. Var eftirvæntingin svo mikil að 50 kílómetra umferðahnútur myndaðist. Tónlist 6.6.2007 11:07
Gísli með lag í mynd Luc Besson Tónlistarmaðurinn Gísli Kristjánsson á lag í kvikmynd franska leikstjórans Luc Besson, Angela-A, sem var tekin til sýninga í Bandaríkjunum þann 25. maí síðastliðinn. Tónlist 5.6.2007 09:15
Frábærir dómar Pétur Ben, Helgi Jónsson og hljómsveitin Reykjavík!, sem tóku þátt í Spot-tónlistarhátíðinni í Árósum um helgina, fengu öll fimm stjörnur af sex mögulegum í tónlistartímaritinu Gaffa fyrir frammistöðu sína. Tónlist 5.6.2007 09:00
Upptökur hefjast í júlí Hljómsveitin Sprengjuhöllin ætlar að gefa út sína fyrstu plötu í haust og hefjast upptökur að öllum líkindum í júlí. Ekki hefur verið ákveðið hvar platan verður tekin upp en Danmörk hefur verið nefnd sem einn af mögulegum upptökustöðum. Tónlist 5.6.2007 07:45
Ópera úr útrýmingarbúðum Óperetta sem samin var í útrýmingarbúðunum í Ravensbrück í Þýskalandi verður flutt í fyrsta sinn í París nú í vikulokin. Þýska vefritið Deutsche Welle greinir frá þessu. Tónlist 5.6.2007 05:00
Söngveröld við Mývatn Árleg kórastefna fer fram við Mývatn nú í vikunni og stefnir fjöldi söngfólks þangað til að stilla saman sína tónlistarstrengi. Að þessu sinni liggja fyrir tvö stór verkefni auk þess sem þátttökukórarnir munu syngja fjölbreytt efni á þrennum tónleikum. Hátíðin stendur yfir frá 7.-10. júní. Tónlist 5.6.2007 04:45
Morr ánægður á Íslandi Þýska útgáfufyrirtækið Morr Music heldur tónleika í Iðnó í kvöld. Fyrirtækið er eitt virtasta raftónlistarfyrirtæki heims og er með þrjár íslenskar hljómsveitir á sínum snærum. Thomas Morr, eigandi fyrirtækisins, er staddur hér á landi af þessu tilefni. Tónlist 5.6.2007 03:00
Þekkt nöfn heiðra Kurt Stór nöfn á borð við R.E.M., David Bowie, Iggy Pop og Leadbelly eiga lög á plötu sem verður gefin út í tengslum við nýja kvikmynd um ævi rokkarans Kurt Cobain úr Nirvana. Tónlist 5.6.2007 02:45
Norskt rokk og ról Quiritatio, ein efnilegasta þungarokkshljómsveit Noregs, spilar á fernum tónleikum hér á landi á næstu dögum. Fyrstu tónleikarnir verða í Hellinum í kvöld. Þar hita upp Myra, Ask the Slave og Peer. Á laugardag og sunnudag spilar sveitin síðan á tvennum tónleikum á Egilsstöðum og á mánudag verður hún á Dillon. Þar spila einnig Atómstöðin og Peer. Tónlist 1.6.2007 10:00
Með ákveðna sýn á hlutina Plötusnúðurinn og upptökustjórinn Mark Ronson hefur nóg að gera þessa dagana. Hann á stóran þátt í velgengni bæði Lily Allen og Amy Winehouse, starfrækir eigið plötufyrirtæki og var að senda frá sér sína aðra plötu, Version. Trausti Júlíusson skoðaði Mark. Tónlist 1.6.2007 09:15
Gerðu plötu með Ferrell Breska hljómsveitin Kaiser Chiefs hefur hætt við að gefa út plötu með nýju efni á þessu ári. Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti bassaleikarinn Simon Rix að þeir félagar ætluðu að gefa út efni sem þeir tóku upp á sama tíma og þeir tóku upp síðustu plötu sína Yours Truly, Angry Mob. Forsprakki Kaiser Chiefs, Ricky Wilson, hefur borið þetta til baka og segir að Rix hafi einfaldlega verið að grínast. Tónlist 1.6.2007 09:00
Sgt. Pepper fertug Í dag eru fjörutíu ár síðan hljómplatan Sgt. Pepper‘s Lonely Hearts Club Band kom út. Platan, sem kom upprunalega út á vínyl, var áttunda plata The Beatles og er af flestum talin hafa markað tímamót í efnisvali og hljóðritunartækni poppsins. Tónlist 1.6.2007 08:45
Jómfrúardjassinn kynntur Djasstónleikar á veitingastaðnum Jómfrúnni eru orðinn fastur liður í sumarafþreyingu fjölmargra miðborgargesta en á dögunum var kynnt hvaða tónlistarfólk mun troða upp í portinu hjá Jakobi Jakobssyni veitingamanni á laugardagseftirmiðdögum í sumar. Tónlist 1.6.2007 07:45
Íslendingar spila á Spot Pétur Ben, Helgi Hrafn Jónsson og hljómsveitin Reykjavík! koma fram á tónlistarhátíðinni Spot sem verður haldin í Árósum í Danmörku um helgina. Um eitt hundrað hljómsveitir og tónlistarmenn troða upp á hátíðinni, auk þess sem ráðstefnur verða haldnar um stöðu tónlistarheimsins í dag. Tónlist 1.6.2007 07:30
Evróputúr hafinn Hljómsveitin Gus Gus er farin í tónleikaferð um Evrópu sem hefst á skemmtistaðnum Vega í kvöld. Eftir það taka við tónleikar í Suður-Frakklandi, Hollandi, Póllandi og í Þýskalandi. Einnig spilar Gus Gus á tónlistarhátíðinni vinsælu Glastonbury á Englandi 22. og 23. júní. Tónlist 1.6.2007 07:00
Sigrún Vala með nýtt lag Átján ára stúlka frá Selfossi, Sigrún Vala, gaf nýverið út sitt annað lag sem heitir Ekki gera neitt. Það fyrra, Því ástin, gaf hún út þegar hún var aðeins fimmtán ára og komst það í fína spilun á útvarpsstöðvunum. Tónlist 1.6.2007 06:30
„Síðasta“ píanóið til sölu Píanó sem Bítillinn fyrrverandi John Lennon spilaði á kvöldið sem hann var myrtur hefur verið boðið til sölu af fyrirtækinu Moments in Time. Verðmiðinn er um 23 milljónir króna. Tónlist 1.6.2007 05:00
Mæta með hljómsveit Miðasala hefst í dag á tónleika frönsku hljómsveitarinnar Air sem verða í Laugardalshöll 19. júní. Hljómsveitin er þekkt fyrir að leggja mikinn metnað í tónleika sína, leika af fingrum fram og koma áheyrendum á óvart. Þótt eiginlegir meðlimir Air séu tveir koma þeir með heila hljómsveit með sér hingað til lands. Tónlist 1.6.2007 03:00
Stemning á 90s-kvöldi 90s-kvöld verður haldið á Nasa næstkomandi föstudagskvöld á vegum Curvers og Kiki-Ow. Mikil stemning hefur verið á 90s-kvöldunum til þessa og er ólíklegt að nokkur breyting verði þar á. Tónlist 31.5.2007 09:00
Hæfileikaríkur hrokagikkur Noel Gallagher, aðallagahöfundur bresku sveitarinnar Oasis, varð fertugur síðastliðinn þriðjudag. Fréttablaðið skoðaði litríkan feril kappans. Noel Gallagher fæddist í Manchester á Englandi árið 1967. Hann átti fremur erfiða æsku og var oft laminn af drykkfelldum föður sínum. Þrettán ára byrjaði hann að læra sjálfur á gítar með því að herma eftir gítarfrösum í uppáhaldslögunum sínum. Tónlist 31.5.2007 09:00
Justin með plötuútgáfu Justin Timberlake virðist hafa ágætt viðskiptavit en hann hefur nú ákveðið að setja á fót sitt eigið útgáfufyrirtæki. Tennman Records heitir fyrirtækið en höfuðstöðvar þess verða í Los Angeles og mun Timberlake gegna hlutverki stjórnarformanns og framkvæmdastjóra þess. Tónlist 31.5.2007 08:15
Stórar tilfinningar hjá Myst Dúettinn Myst hefur gefið út sína fyrstu plötu, Take Me With You, með aðstoð Smekkleysu. Myst, sem er skipuð hjónunum Kolbrúnu Evu Viktorsdóttur og Haraldi G. Ásmundssyni, hefur verið starfandi í um það bil fjögur ár og hefur platan verið í vinnslu nánast frá þeim tíma. Spilar sveitin rólegheita popp undir ýmiss konar áhrifum, meðal annars frá Bítlunum, Emilíönu Torrini og Evu Cassidy. Tónlist 31.5.2007 07:30
Leikið öfganna á milli Sinfóníuhljómsveit Íslands slær botninn í Sjostakovitsj-maraþon sitt á tónleikum í kvöld og frumflytur nýtt verk eftir Þórð Magnússon. Fyrir fimm árum ýtti aðalhljómsveitarstjórinn Rumon Gamba því metnaðarfulla verkefni úr vör að sveitin flytti allar sinfóníur rússneska tónskáldsins Dímítríj Sjostakovitsj. Tónlist 31.5.2007 06:45
Flaming Lips á Hróarskeldu Hin bandaríska Flaming Lips bættist í gær í hóp þeirra hljómsveita sem ætla að troða upp á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar en tuttugu ár eru síðan hljómsveitin spilaði fyrst á hátíðinni. Tónlist 31.5.2007 06:30
Dúopp-lag í loftið Grallararnir í Baggalúti hafa gefið út lagið Sof þú mér hjá. Lagið er tileinkað íslenskum táningum og er ætlað sem innlegg í þá fábreytnu unglingamenningu sem þrífst hérlendis. Tónlist 31.5.2007 05:00
Sautján ára söngdrottning Hin sautján ára Jordin Sparks vann á dögunum söngvarakeppnina American Idol. Bar hún sigurorð af Blake Lewis, 25 ára pilti frá Washington. Úrslitaviðureignin var haldin í Kodak-leikhúsinu í Hollywood og var henni sjónvarpað beint víðs vegar um heiminn, þar á meðal til Íslands. Tónlist 26.5.2007 16:00
Úr handboltanum í rokkið Tónlistarmaðurinn B.Sig gaf nýverið út sína fyrstu plötu, Good Morning mr. Evening, sem hlotið hefur glimrandi undirtektir og er í 10. sæti Tónlistans yfir mest seldu plötur landsins. Tónlist 26.5.2007 14:00
Sixtís „kitsch“ Snillingurinn John Galliano sýndi nýlega strandfatnaðarlínu fyrir Dior sumarið 2008. Sýningin átti sér stað í New York fyrir fullu húsi og stjörnur eins og Penelope Cruz, Dita Von Teese og Charlize Theron sátu á fremstu bekkjum. Tónlist 26.5.2007 10:00
Danspönksveitin the Rapture á leið til landsins Danspönksveitin the Rapture er væntanleg til landsins og heldur tónleika á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll 26. júlí næstkomandi. Sveitin er frá New York og er talin ein af upphafsmönnum danspönkbylgjunnar sem hefur verið áberandi í rokktónlist undanfarin ár. Tónlist 24.5.2007 16:39
Kryddpíur á leynifundi Orðrómurinn um að stúlkurnar í Spice Girls ætli að koma saman á ný fékk byr undir báða vængi í gær þegar sást til þeirra Geri Halliwell og Emmu Bunton yfirgefa heimili Richards Stannard í Brighton, en hann var helsti upptökustjóri hljómsveitarinnar þegar hún var sem vinsælust. Tónlist 23.5.2007 06:30