Viðskipti erlent
227 228 229 230 231 232 233 234 235 … 334 ›
85% fjárfesta telja grískt þjóðargjaldþrot í vændum Í könnun sem Bloomberg fréttaveitan gerði meðal fjárfesta, miðlara og hagfræðinga kom í ljós að 85% þeirra telja að grískt þjóðargjaldþrot sé í vændum. Grikkland geti einfaldlega ekki staðið við skuldbindingar sínar. Viðskipti erlent 13.5.2011 10:16
Þýska aflvélin keyrir áfram af fullum krafti Landsframleiðsla Þýskalands jókst um 1,5% á fyrsta ársfjórðungi ársins m.v. fjórðunginn á undan. Ef miðað er við sama tímabil í fyrra er vöxturinn tæp 5% þegar tekið hefur verið tillit til verðbólgu. Þýska aflvélin á evrusvæðinu keyrir því áfram af fullum krafti þessa dagana. Viðskipti erlent 13.5.2011 09:23
Facebook í rógsherferð gegn Google Facebook gekk skrefinu of langt í baráttu sinni gegn Google með því að ráða almannatengslastofu til að fara í rógsherferð gegn Google. Þetta kemur fram á vefsíðunni business.dk. Viðskipti erlent 12.5.2011 14:49
Axcel með einn mesta hagnað í sögu Danmerkur Fjárfestingarsjóðurinn Axcel skilaði hagnaði upp á 11,5 milljarða danskra kr. eða yfir 250 milljarða kr. á síðasta ári. Í frétt um málið á börsen.dk segir að um sé að ræða einn mesta hagnað á einu ári í sögu Danmerkur. Viðskipti erlent 12.5.2011 10:29
Saab á leið í svaðið Spyker eigandi sænska bílaframleiðendans Saab hefur tilkynnt að kínverskur stórfjárfestir hafi hætt við að setja nýtt fjármagn inn í Saab. Þar með virðast dagar Saab vera taldir. Viðskipti erlent 12.5.2011 09:34
Norrænt hamborgarastríð í uppsiglingu Það stefnir í norrænt hamborgarastríð eftir að sænska hamborgarkeðjan Max lýsti því yfir að hún ætlaði í harða samkeppni við Burger King og McDonalds í Noregi. Viðskipti erlent 12.5.2011 08:50
Annað verðhrun á olíu - viðskiptin stöðvuð Annað verðhrun varð á heimsmarkaðsverði á olíu á markaðinum í New York í gærkvöldi. Vegna hrunsins voru viðskiptin á hrávörumarkaðinum Nymex stöðvuð í fimm mínútur. Viðskipti erlent 12.5.2011 08:38
Breski seðlabankinn spáir minni hagvexti á árinu Verðbólga í Bretlandi verður líklega yfir markmiðum og hagvöxtur minni en áætlað var næstu tvö árin, samkvæmt ársfjórðungsspá Englandsbanka sem birt var í gær. Breska dagblaðið The Guardian hefur eftir seðlabankastjóranum Mervyn King að horfur til skamms tíma hafi versnað frá því í febrúar. Viðskipti erlent 12.5.2011 07:00
Sjórán kosta skipafélög 1.400 milljarða Sómalskir sjóræningjar kostuðu skipafélög heimsins 12 milljarða dollara eða tæpa 1.400 milljarða kr. á síðasta ári. Þetta segir æðsti yfirmaður alþjóðalögreglunnar Interpol. Viðskipti erlent 11.5.2011 14:20
Somaxon höfðar mál gegn Actavis Bandariska lyfjafyrirtækið Somaxon Pharmaceuticals hefur höfðað dómsmál gegn Actavis vegna meintra brota gegn einkaleyfi. Málið snýst um umsókn Actavis um að framleiða samheitalyfsútgáfu og lyfinu Silenor sem notað er gegn svefnleysi. Viðskipti erlent 11.5.2011 13:16
Forbes segir gullfótinn snúa aftur innan 5 ára Steve Forbes aðalritstjóri Forbes tímaritsins spáir því að Bandaríkjamenn taki upp gullfótinn innan fimm ára, það er bindi aftur gengi dollarans við verð á gulli. Viðskipti erlent 11.5.2011 12:52
Mærsk er kóngurinn í dönsku kauphöllinni Danska skipafélagið A.P. Möller-Mærsk skilaði rjómauppgjöri eftir fyrsta ársfjórðung árins. Hagnaðurinn, eftir skatta, nam 6,35 milljörðum danskra kr. eða um 138 milljörðum kr. Hlutir í Mærsk hafa hækkað um rúmlega 3% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun og kosta nú 51.250 danskar kr. stykkið. Viðskipti erlent 11.5.2011 11:13
Merkel styður Draghi í stöðu seðlabankastjóra Evrópu Angela Merkel kanslari Þýskalands styður Mario Draghi seðlabankastjóra Ítalíu í stöðu bankastjóra seðlabanka Evrópu (ECB). Þar með er talið nær víst að Draghi taki við af Jean-Claude Trichet þegar sá lætur af störfum í október n.k. Viðskipti erlent 11.5.2011 10:44
Slegist um hluti í gjaldþrota dönskum banka Slegist er um hluti í eignarhaldsfélagi hins gjaldþrota banka Bonusbanken í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Tískuhúsið DK Company hóf að bjóða í hlutina á mánudaginn var en nú er fataframleiðandinn Smartguy farinn að kaupa hlutina og yfirbýður tískuhúsið. Viðskipti erlent 11.5.2011 10:10
Jackie Kennedy seld fyrir milljarða Málverk Andy Warhol af Jacqueline Kennedy fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna var selt á uppboði hjá Sotheby´s í New York í gærkvöldi fyrir rúmlega 20 milljónir dollara eða vel yfir tvo milljarða kr. Viðskipti erlent 11.5.2011 09:53
Tchenguiz ætlar í skaðabótamál við SFO Vincent Tchenguiz ætlar í skaðabótamál gegn efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar (SFO) vegna húsleita og handtöku hans og bróður hans Roberts í mars s.l. Húsleitirnar og handtökunnar voru liður í umfangsmiklum aðgerðum SFO í samvinnu við Sérstakan saksóknara á Íslandi og eru hluti af rannsókn þessara aðila á Kaupþingi. Viðskipti erlent 11.5.2011 09:17
Berlingske: Morten Lund í íslenskum lánasirkus Berlingske Tidende birtir í dag úttekt um að Morten Lund hafi keypt danska fríblaðið Nyhedsavisen af Baugi með lánsfé sem Baugur útvegaði honum í gegnum Glitni og Straum. Fyrirsögnin á úttektinni er: Morten Lund í íslenskum lánasirkus. Viðskipti erlent 11.5.2011 08:19
Dani græðir 60 milljarða á sölu Skype Danski athafnamaðurinn Janus Friis mun fá tæpa 3 milljarða danskra kr. eða um 60 milljarða kr. út úr kaupum Microsoft á netsímafyrirtækinu Skype. Þetta skýrist af því að hann og sænskur félagi hans eiga ennþá 14% hlut í Skype. Viðskipti erlent 10.5.2011 13:43
Kaup Microsoft á Skype staðfest Tímaritið Fortune hefur fengið staðfest að búið sé að ganga frá kaupum Microsoft á netsímafyrirtækinu Skype. Kaupverðið er 8,5 milljarðar dollara eða um 970 milljarðar kr. Inn í verðinu er yfirtaka á skuldum Skype. Viðskipti erlent 10.5.2011 12:08
Warren Buffett fær hlutverk í The Office Ofurfjárfestirinn Warren Buffett mun koma fram í gestahlutaverki í bandarísku útgáfunni af sjónvarpsþáttunum The Office. Verður þátturinn með Buffett sýndur á fimmtudag. Viðskipti erlent 10.5.2011 11:12
Microsoft spáir í Skype Tölvurisinn Microsoft er nú í viðræðum við eigendur Skype um að fyrirtækið kaupi forritið, sem gerir fólki kleift að tala saman í gegnum Internetið í stað þess að nota síma. Viðskipti erlent 10.5.2011 09:06
Uppgjör Danske Bank undir væntingum Danske Bank skilaði hagnaði fyrir skatt upp á 1,5 milljarð danskra kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta hefur valdið vonbrigðum meðal fjárfesta sem bjuggust við meiri hagnaði bankans. Hlutir í Danske Bank hafa fallið um 3% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun. Viðskipti erlent 10.5.2011 08:10
Grikkland þarf meiri aðstoð Embættismönnum virtist í gær hafa tekist að sannfæra fjárfesta um að Grikkir ætluðu ekki að yfirgefa evrusvæðið. Í það minnsta komst kyrrð á gengi evrunnar eftir umrót sem stafaði af ótta við afdrif Grikklands. Viðskipti erlent 10.5.2011 00:00
Tískuhús vill kaupa gjaldþrota banka Hlutabréf í eignarhaldsfélaginu Holdingselskabet af 1958 hafa átt rjómadag í kauphöllinni í Kaupmannahöfn en þau hafa hækkað um 150% í verði frá því í morgun. Ástæðan er að tískuhúsið DK Company vill kaupa eina af eignum félagsins sem er hinn gjaldþrota banki Bonusbanken. Viðskipti erlent 9.5.2011 14:50
Sænskir fjárfestar sáu 50 milljarða gufa upp í morgun Þeir sænsku fjárfestar sem höfðu keypt hlutabréf í lyfjafyrirtækinu Diamyd Medical máttu horfa á eftir tæplega 3 milljörðum sænskra kr. eða ríflega 50 milljörðum kr., gufa upp í morgun. Viðskipti erlent 9.5.2011 13:07
Þúsundir milljónamæringa borga ekki skatta Í nýrri úttekt sem birt hefur verið á vefsíðunni CNN Money kemur fram að 4.000 heimili í Bandaríkjunum sem voru með árstekjur upp á eina milljón dollara eða meira, eða tæplega 114 milljónir kr., borguðu ekki krónu í alríkisskatt í fyrra. Viðskipti erlent 9.5.2011 11:05
Sjóræningjar kosta Mærsk um 20 milljarða í ár Allt bendir til þess að sjóræningjastarfsemi undan ströndum Sómalíu muni kosta danska skipafélagið Mærsk hátt í 200 milljónir dollara, eða um 20 milljarða kr. í ár. Þetta er tvöfalt hærri upphæð en Mærsk þurfti að greiða vegna sjóræningja á síðasta ári. Viðskipti erlent 9.5.2011 09:54
Ríkustu menn Bretlands verða ríkari Efnahagslægðir og aðrir erfiðleikar virðast ekki koma sérstaklega illa við ríkustu menn Bretlands ef marka má árlegan lista Sunday Times sem kom út í gær. Viðskipti erlent 9.5.2011 08:47
Apple er verðmætasta vörumerki heimsins Apple hefur velt Google úr sessi sem verðmætasta vörumerki heimsins. Þetta kemur fram í nýrri mælingu sem birt er í dag og Financial Times greinir frá. Verðmæti Apple merkisins er talið nema 153 milljörðum dollara eða um 17.400 milljarða kr. Viðskipti erlent 9.5.2011 08:40
Heimsmarkaðsverð á olíu aftur á uppleið Heimsmarkaðsverð á olíu er aftur farið að hækka eftir verðhrunið í síðustu viku. Tunnan af Brent olíunni er komin yfir 110 dollara og bandaríska léttolían stendur í tæpum 99 dollurum eftir að hafa hækkað um 2 dollara í morgun. Viðskipti erlent 9.5.2011 07:53