Viðskipti
139 140 141 142 143 144 145 146 147 … 334 ›
24 ára milljónamæringur: Með eitt par af hnífapörum, einn disk og örbylgjuofn „Ég var með einn gaffal, einn hníf, einn disk og örbylgjuofn. Ég vaskaði upp þegar að ég fór í sturtu í áhaldageymslunni í kjallaranum,“ segir Eyþór Máni Steinarsson framkvæmdastjóri og einn af eigendum Hopp rafhlaupahjólaleigunnar þegar hann rifjar upp fyrstu misserin sín í Reykjavík. Þá rétt að verða 16 ára, á leigumarkaði og í skóla. Atvinnulíf 2.1.2023 07:00
Útflutningstekjurnar aldrei meiri og vörumerkið Ísland í 21. sæti af 60 Lítil breyting hefur orðið á stöðu vörumerkisins Íslands samkvæmt mælingum markaðsrannsóknarfélagsins Anholt-Ipsos. Ísland er í 21. sæti af 60 ríkjum sem mælingin nær til; á svipuðu róli og Belgía, Wales, Grikkland og Suður-Kórea. Viðskipti innlent 2.1.2023 06:38
Margvíslegar verðhækkanir um áramót Landsmenn geta átt von á margvíslegum verðhækkunum um áramótin en misjafnt er hvað snertir hvern. Vísir fór á stúfana og skautaði yfir landslagið hvað varðar verðhækkanir á þjónustu á landinu. Eðli máls samkvæmt er listinn þó langt í frá tæmandi. Neytendur 1.1.2023 11:18
„Mér finnst ég eiginlega vera að svindla í lífinu!“ Eftir að Kolbrún Björnsdóttir leiðsögukona hætti í Bítinu á Bylgjunni hefur hún forðast að vakna mjög snemma á morgnana. Nema hún sé á leiðinni í flug. Kolbrún elskar starfið sitt, en segir vinnuna frekar fljótandi þar sem vinnutíminn er ekki fastur nema hún sé í göngu. Atvinnulíf 31.12.2022 10:01
Jónas og Áslaug kaupa Blómaborg: „Aðalfókusinn verður á að búa til eitthvað fallegt“ Hjónin Jónas Sigurðsson, sem oft er kenndur við Ritvélar framtíðarinnar, og Áslaug Hanna Baldursdóttir hafa fest kaup á Blómaborg í Hveragerði. Samhliða kaupunum flytja þau austur fyrir fjall í íbúð sem fylgir með búðinni. Viðskipti innlent 30.12.2022 21:53
Skella í lás eftir tíu ár í CooCoo's Nest Veitingastaðnum CooCoo's Nest á Granda í Reykjavík verður lokað í dag eftir að hafa framreitt mat fyrir gesti í áratug. Aðrir aðilar opna rekstur í húsnæðinu á nýju ári. Síðasti brönsinn á CooCoo's hefur verið borinn fram. Viðskipti innlent 30.12.2022 16:26
Leggja 190 milljarða króna í gasvinnsluna í Hammerfest Norska ríkisolíufélagið Equinor og samstarfsaðilar þess á Snøhvit-gasvinnslusvæðinu í Barentshafi hafa ákveðið að leggja 13,2 milljarða norskra króna, andvirði 190 milljarða íslenskra, í uppfærslu gasvinnslustöðvarinnar á Melkøya við bæinn Hammerfest í Norður-Noregi. Áætlaður líftími stöðvarinnar framlengist með þessu um áratug, til ársins 2050, auk þess sem rafvæðing hennar mun draga verulega úr losun koltvísýrings. Viðskipti erlent 30.12.2022 15:20
Aukið sjálfræði starfsfólks verður áberandi í áherslum vinnustaða 2023 „Ég tel að aukið sjálfræði starfsfólks um hvar það vinnur og hvenær það vinnur verði áberandi í áherslum vinnustaða árið 2023. Þessi þróun hófst í heimsfaraldrinum og mun halda áfram. Auk þess sé ég fyrir mér aukna áhersla á fjölbreytileika og vellíðan,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. Atvinnulíf 30.12.2022 07:01
Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi sameinast Stjórnir Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf. í Fjallabyggð hafa skrifað undir samkomulag um samruna félaganna undir nafninu Ísfélagið hf.. Sameiginleg aflahlutdeild félaganna tveggja er átta prósent heildarkvótans. Stefnt er að því að skrá félagið á markað. Viðskipti innlent 29.12.2022 20:44
Banna einnota matvælaumbúðir á skyndibitastöðum eftir áramót Bann við einnota umbúðum á skyndibitastöðum tekur brátt gildi í Frakklandi. Skyndibitastöðum mun ekki vera heimilt að framreiða mat í einnota umbúðum fyrir viðskiptavini sem ætla sér að borða á staðnum í stað þess að taka matinn með sér heim. Viðskipti erlent 29.12.2022 15:47
Geti ekki lengur látið eins og allt sé í lagi Árið sem þjóðin losnaði úr hlekkjum samkomutakmarkana hefur reynst mjög erfitt fyrir tónleikahaldara og er staðan svartari en marga hafði grunað, að sögn framkvæmdastjóra Senu Live. Talsvert algengara sé að tónleikar endi með fjárhagslegu tapi og það gerst mun oftar á þessu ári en nokkurn tímann áður. Viðskipti innlent 29.12.2022 07:00
Getum búið okkur til alls konar frí allt árið 2023 Atvinnulífið hefur áður fjallað um mikilvægi þess að kúpla sig frá vinnu þegar við erum í fríi. Í dag ætlum við hins vegar að rýna aðeins í mismunandi frí sem við getum sett okkur sem markmið að upplifa oftar frá og með árinu 2023. Sem lið í því að efla andlega vellíðan og heilsu. Atvinnulíf 29.12.2022 07:00
Baldvin kaupir erlenda starfsemi Samherja Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Öldu Seafood í Hollandi og sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, hefur keypt Öldu af Samherja Holding. Alda Seafood hefur haldið utan um erlenda starfsemi Samherja í Evrópu og Norður-Ameríku frá 2018. Viðskipti innlent 29.12.2022 06:42
Mikill fjöldi viðskiptavina hluti af hóplögsókn Viðskiptavinir rafmyntaverkvangsins FTX hafa nú stofnað til hóplögsóknar og freista þess að fá eitthvað af eignum sínum til baka eftir fall fyrirtækisins. Mögulegt er að hóplögsóknin muni ná yfir eina milljón viðskiptavina sem halda því fram að þeir eigi fyrstir rétt á greiðslu frá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 28.12.2022 15:40
Gærdagurinn sá versti í átta mánuði hjá Tesla Virði hlutabréfa rafbílaframleiðandans Tesla var í gær lægra en það hefur verið í meira en tvö ár. Fjárfestar í Tesla óttast að Musk einbeiti sér of mikið að samfélagsmiðlinum Twitter. Viðskipti erlent 28.12.2022 13:37
Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500 króna Vinadagurinn brast á með látum í Stóra flugeldamarkaðnum í dag, miðvikudag. Hægt verður að næla sér í svakalegar sprengjur á einstöku verði allan daginn en opið verður frá klukkan 10 til 22. Samstarf 28.12.2022 08:00
Fóru beinustu leið að skila og skipta gjöfum Fyrsti opnunardagur verslana eftir jól var í dag og má því gera ráð fyrir því að margir hafi nýtt tækifærið til að skila eða skipta jólagjöfum sem hentuðu ekki alveg. En hversu rúmur er skilafresturinn og er algengt að fólk skili jólagjöfum? Neytendur 27.12.2022 21:01
Jólagjöf Norðmanna sögð stór gaslind í Barentshafi Norska olíufélagið Vår Energi, sem er að meirihluta í eigu hins ítalska Eni, tilkynnti á Þorláksmessu um stóran gasfund á svokölluðu Lupa-svæði nærri Golíat-olíusvæðinu í Barentshafi. Frumathugun bendir til að stærð gaslindarinnar jafngildi 57 til 132 milljónum tunna af vinnanlegri olíu. Viðskipti erlent 27.12.2022 15:56
Bjarni Ben gúgglaður þrettán hundruð sinnum á mánuði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var gúgglaður að meðaltali þrettán hundruð sinnum á mánuði árið 2022. Elísabet heitin Bretlandsdrottning sló honum hins vegar rækilega við í september þegar hún var gúggluð 27 þúsund sinnum. Viðskipti innlent 27.12.2022 14:04
Liður í góðum viðskiptaháttum að hafa rúman skilafrest Mikil aukning er á fyrirspurnum til Neytendasamtakanna vegna of naums skilafrest á vörum. Formaður samtakanna segir að þrátt fyrir að engin eiginleg lög nái yfir skilafrest þá sé það liður í góðum viðskiptaháttum að gefa viðskiptavinum sínum rúman frest til að skila vörum sem þeir hafa ekki not fyrir. Þær verslanir sem komi vel fram við viðskiptavini séu bæði langlífar og dafni jafnan betur. Neytendur 27.12.2022 12:59
Færri en eyðsluglaðari ferðamenn Heildarkortavelta erlendra ferðamanna hér á landi jókst á fyrstu tíu mánuðum ársins samanborið við 2019 þrátt fyrir að ríflega 16% færri erlendir ferðamenn hafi nú sótt landið heim. Innlend greiðslukortavelta þeirra frá janúar út október er metin rúmlega 3% meiri í krónum talið samanborið við síðasta árið fyrir heimsfaraldur. Viðskipti innlent 27.12.2022 11:40
Útsala ársins í Tölvutek – rýmingarsala á þúsund fartölvum Útsala ársins stendur nú yfir í Tölvutek. Í ár verða þúsund fartölvur á allt að 50% afslætti. Samstarf 27.12.2022 08:21
Frægir framleiða Thor´s skyr: Væntanlega í Walmart fljótlega á næsta ári „Við vorum á fundi með forstjóra Walmart um daginn. Auðvitað hefði ég ekkert fengið þann fund sísvona nema fyrir Terry Crews en mér þykir mjög líklegt að Thor‘s skyrið verði komið í um 4500 verslanir fljótlega á næsta ári,“ segir Unnar Helgi Daníelsson Beck einn af stofnendum Thor's skyr sem framleitt er í Bandaríkjunum. Atvinnulíf 27.12.2022 07:01
„Ég veit bara að ég öskraði og öskraði af öllum lífsins sálarkröftum“ „Draumurinn var þannig að ég horfi út um gluggann, sé pabba leggja bíl í stæði en mömmu vera borna út úr bílnum á börum. Lengi trúði ég því að ef ég hefði sagt frá draumnum hefði mamma ekki dáið,“ segir Katrín Gísladóttir Sedlacek þegar hún rifjar upp sektarkenndina sem hún fann lengi fyrir sem barn, eftir að móðir hennar lést í bílslysi á Hellisheiði 27.september árið 1977. Atvinnulíf 26.12.2022 08:01
„Hann gat ekki stillt sig, stóð upp, fór til hennar og kyssti hana…“ „Hann hafði farið á Adebar og þar stóð hún. Hann gat ekki stillt sig, stóð upp, fór til hennar og kyssti hana….“ Svona hefst fjölskyldusaga Katrínar Gísladóttur Sedlacek leirlistakonu. Atvinnulíf 25.12.2022 08:00
„Það er allt í einu orðið gæðastimpill að vera Íslendingur“ „Ég er farin að finna núna hvað Íslendingatengslin eru mikil í kvikmyndageiranum erlendis. Þar sem það er orðið þekkt að það að ráða Íslending í vinnu þýðir að þú ert að fá góðan starfskraft. Sem skilar alltaf einverju nýju,“ segir Árni Filippuson kvikmyndatökumaður með meiru. Atvinnulíf 24.12.2022 14:01
Bjarni gefur sjálfum sér 8,5 í einkunn fyrir jólagjafakaup fyrir frúna Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra segir margar góðar hugmyndir geta vaknað þegar hann fer í bað snemma á morgnana. Og sendir þá tölvupósta og skilaboð út um allar trissur eða hlustar á hlaðvarpsþátt. Bjarni vaknar snemma, sofnar snemma og segist standa sig vel í að velja jólagjafir fyrir frúna. Atvinnulíf 24.12.2022 10:01
Viðstöðulausar verðhækkanir dynji á landsmönnum Neytendur finna vel fyrir verðhækkunum fyrir þessi jólin, sérstaklega þegar kemur að matnum. Verðbólgan er farin að bíta hressilega og hagfræðingur ASÍ segir viðstöðulausar hækkanir dynja á landsmönnum á sama tíma og arðsemi fyrirtækja eykst. Viðskipti innlent 23.12.2022 22:54
„Maður er afklæddur í forstofunni“ Þorláksmessa og skötulykt leggur yfir landið að venju, mörgum til ama en ekki þeim sem biðu í röð eftir því að fá að bragða á ilmandi skötunni á Lauga-ás. Í síðasta sinn þar sem staðnum verður formlega lokað eftir daginn í dag. Viðskipti innlent 23.12.2022 20:31
Gagnrýndi starfsmenn fyrir að slappa af og leika sér um helgar Stofnandi kínverska samfélagsmiðla- og leikjarisans Tencent, sagði starfsmönnum nýverið að spilling, leti og lélegir stjórnarhættir hefði komið niður á rekstri fyrirtækisins og grafið undan því. Viðskipti erlent 23.12.2022 16:33