Innlent

Skýr vilji Alþingis um flugvöllinn

Mjög erfitt er að ímynda sér að Reykjavíkurflugvöllur verði rekinn með aðeins einni flugbraut. Þetta sagði samgönguráðherra í umræðum á Alþingi í dag en hann sagði þingið hafa sýnt skýran vilja til að tryggja miðstöð innanlandsflugs í Reykjavík. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, hóf umræðu um framtíð Reykjavíkurflugvallar og spurði Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra um hugmyndir um að loka norður-suður flugbraut vallarins. Hann svaraði því til að gæta yrði ítrasta öryggis og þá yrðu fleiri en ein flugbraut að vera til staðar. Samgönguráðherra sagði að Alþingi hefði fyrir fimm árum samþykkt endurnýjun flugbrauta Reykjavíkurflugvallar og afgreitt samgönguáætlun þar sem fjallað hefði verið um samgöngumiðstöð. Vilji þingsins hefði því verið afskaplega skýr að tryggja miðstöð innanlandsflugs í Reykjavík. Það kom greinilega fram í unmræðunni að málið er þverpólitískt og að í öllum flokkum eru bæði fygismenn og andstæðingar flugvallar í Vatnsmýri. Helgi Hjörvar Samfylkingunni talaði harðast gegn flugvellinum. Hann kvaðst, til sátta við landsbyggðina, leggja til að söluandvirði af landareignum ríkisins í Vatnsmýrinni, allt að tíu milljörðum króna, verið varið til að efla byggðarlögin á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Vestmannaeyjum. Þingmenn þessara svæða gáfu hins vegar lítið fyrir boðið. Magnús Stefánsson Framsóknarflokki sagði grundvallaratriði að miðstöð innanlandssamganga verði í höfuðborginni. Kristján Möller Samfylkingunni hvatti til sátta á grundvelli minnisblaðs sem borgarstjóri og samgönguráðherra hefðu ritað undir en áberandi var að Suðurnesjamenn vildu gjarnan fá innanlandsflugið til sín, t.d. Hjálmar Árnason Framsóknarflokki. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, taldi hins vegar ekkert liggja á ákvörðun því öll tilskilin leyfi væru til staðar til reksturs flugvallarins til ársins 2016. „Eigum við ekki nú bara að draga andann rólega. Himin og jörð eru ekki að farast þessa dagana í þessum efnum,“ sagði Steingrímur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×