Innlent

Bjarni og Árni styðja Þorgerði

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir virðist hafa yfirgnæfandi stuðning í þingliði sjálfstæðismanna til að verða varaformaður flokksins. Bæði Bjarni Benediktsson og Árni M. Mathiesen sem voru taldir líklegastir til að fara gegn henni hafa lýst yfir eindregnum stuðningi við hana. Árni, sem skipaði fyrsta sæti sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi, lýsir yfir stuðningi við Þorgerði Katrínu sem var í fjórða sæti listans. Hann segist telja það best fyrir Sjálfstæðisflokkinn að svara kröfum um meiri breidd í forystunni og þess vegna styðji hann hana. Þorgerður Katrín hefur skotist furðu fljótt upp á stjörnuhimininn í flokknum og fái hún næst valdamesta embættið þar er ljóst að það hlýtur að verða barátta um fyrsta sæti listans við næstu kosningar. Árni segist ekki óttast það og kveðst ekki sjá nein tengsl við það mál Bjarni Benediktsson skipaði fimmta sætið í suðvesturkjördæmi. Honum hefur einnig verið spáð miklum frama innan flokksins og margir áttu von á því að hann gæfi kost á sér sem varaformaður. Hann kveðst hafa tekið sér nokkra daga til að íhuga stöðuna vegna orða málsmetandi manna en hann sé eftir sem áður á þeirri skoðun að hann eigi ekki að gefa kost á sér þar sem það sé ekki tímabært. Aðspurður hverjir séu hinir „málsmetandi menn“ segir Bjarni það vera almenna stuðningsmenn sem hafi haft samband. Og Bjarni styður einnig Þorgerði Katrínu en kveðst þó fagna því að Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, skuli bjóða sig fram gegn henni því hann hlakki til að sjá Kristján blanda sér í landsmálin. Bjarni telur þó embættið standa nær Þorgerði eins og sakir standi. Bjarni segist ekki hafa orðið fyrir vonbrigðum með að fá ekki ráðherraembætti við hrókeringarnar sem áttu sér stað í kjölfar þess að Davíð Oddsson hættir í stjórnmálum, enda hafi hann aðeins verið tvö ár í stjórnmálum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×