Innlent

Bandaríski herinn kveður í dag

Bandaríski herinn fer af landi brott í dag eftir fimmtíu og fimm ára veru á Miðnesheiði. Herstöðvaandstæðingar sem ætla að fagna brottför hersins við herstöðina á morgun fá ekki að draga íslenska fánann þar að húni.

Bandaríski fáninn verður dreginn niður í síðasta sinn í herstöðinni á Miðnesheiði seinnipartinn í dag og sá íslenski dreginn að húni. Að því loknu hverfa síðustu bandarísku hermennirnir af landi brott og sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli tekur þá einn við löggæslu á svæðinu sem verður áfram lokað þar til íslensk stjórnvöld ákveða annað.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir blendnar tilfinningar í huga sér á þessum sögulegu tímamótum. Vera Bandaríkjamanna hafi styrkt verkmenningu á Suðurnesjum og landinu öllu. En um leið hafi mörg vandamál fylgt veru þeirra. Hann segir Suðurnesjamenn hafa átt gott samstarf við Bandaríkjamenn á Miðnesheiði en líti á það sem áhugavert og mikilvægt verkefni að Íslendingar taki aukinn þátt í eigin vörnum. Það er hluti af sjálfstæði þjóðar, segir Árni Sigfússon.

Samtök herstöðvaandstæðinga hyggjast á morgun fagna brottför hersins og því að Miðnesheiðin sé aftur orðin íslenskt land. Lagt verður af stað frá höfuðstöðvum samtakanna á Njálsgötu 87 klukkan tólf á hádegi á morgun. Þaðan verður keyrt sem leið liggur upp á Miðnesheiði og dagurinn tekinn í að skoða minnisvarða hersetunnar.

Herstöðvaandstæðingum voru sett ströng skilyrði af hálfu stjórnvalda við þessa skoðunarferð á morgun. Sérstaklega er tekið fram á löngum lista skilyrða að þeim verði óheimilt að flagga þar sem herstöðin sé nú opinber eign og því megi einungis opinberar stofnanir flagga. Þá verður hleypt inn í hollum en ekki fleiri en 60 manns fara inn í stöðina í einu. Stefán Pálsson, talsmaður herstöðvaandstæðinga, segist vel sætta sig við þessi skilyrði en þykir þau nokkuð kúnstug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×