Skoðun

Étur þorskur laxaseiði?

Þetta er skrifað fimmtudaginn 19. júlí 2007 þegar vikuleg laxasíða birtist í sjónvarpinu. Textavarpið segir okkur á síðu 355 að enn sem komið er sé veiðin á laxi í mörgum laxveiðiám aðeins brot af því sem hún var í fyrra og verri en allt sem menn hafa séð áður eða lengi. Samt geta göngur komið enn í sumar, sérstaklega ef rignir. Enn er von á laxi. Við lifum í voninni. Laxinn kemur.

Margir hafa spurt greinarhöfund um orsakir á þessu ástandi og fer hluti skýringa hans hér á eftir, en þær eru getgátur.

Laxaseiði fóru eðlilega til sjávar í fyrra vorið 2006 en þá mætti þeim aldrei þessu vant svangur þorskur í verulegu magni sem flúið hafði inn að ströndinn í leit að æti. Öll fyrri loðna er horfin vegna ofveiði og sjórinn dauður eins og skortur á sandsíli bendir til. Kríuvarp er víða lélegt vegna skorts á æti og lítið er af lunda í Vestmannaeyjum. Ungana vantar sandsíli þriðja árið í röð. Komast ekki upp vegna ætisskorts. Deyja úr hungri.

Upp í hugann kemur frásögn af Noregi, þó nokkurra ára gömul. Þar safnaðist þorskur í torfur þar sem laxaseiðum var sleppt í sjó og hreinsaði þorskurinn þau upp. Svo mætti hann á réttum tíma næsta ár til að éta aftur laxaseiði. Þorskurinn hefur sitt vit.

Lætin í togurunum eru stórum miklu meiri á miðunum en áður. Minna er um þorsk og þess vegna þurfa togararnir að hamast og hamast með trollið út um allan sjó til að fá sama afla og áður. Þeir æra þorskinn með hávaða og trollinu og hann flykkist upp í harða land til að sleppa. Þar eru laxaseiðin að ganga út úr ánum á vorin og halda sig oft nærri landi fram eftir sumri. Það sýna rannsóknir. Þarna kemst þorskurinn í æti og étur laxaseiði glorhungraður.

Menn undrast það að tveggja ára lax er nánast horfinn. Hafa enga skýringu. Greinarhöfundur telur þetta stafa af veiðum á loðnu. Það er samhengi á milli mikilla loðnuveiða síðustu ár og minna og minna af tveggja ára laxi. Um leið og loðnuveiðar fóru að aukast verulega og stærri og stærri loðnunætur hreinsuðu loðnuna þá hrundi veiði á tveggja ára laxi.

Höfundur er hæstaréttarlögmaður.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×