Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar 5. júní 2026 07:30 Um persónumiðaða umönnun á íslenskum hjúkrunarheimilum Það sem heilbrigðisstarfmenn er annast heilabilaða kalla stundum „erfiða hegðun" er oftast svar einstaklingsins við aðstæðum sínum; viðbragð við ótta, sársauka, vanlíðan eða þörf sem ekki er mætt. Þessi staðreynd hefur orðið æ meira áberandi í umræðu um umönnun fólks með heilabilun. Hornsteinn persónumiðaðrar umönnunar (e. person-centred care) á rætur að rekja til Toms Kitwood og hefur lengi verið alþjóðlegt viðmið um góða heilabilunarþjónustu. Hugmyndafræðin sem Jane Verity, stofnandi Dementia Care International, kennir undir heitinu Spark of Life hvílir á sama grunni: að spyrja ekki hvað sé að einstaklingnum, heldur hvaða ólíkar þarfir liggi að baki hegðun hans. Markmiðið er að bæta líðan og draga úr lyfjaþörf. Hugmyndafræðin er mannúðleg og vel rökstudd. Vandinn liggur ekki í fræðunum, heldur þeirri staðreynd að þau eru kennd hér á landi án þess að spurt sé hvort grundvöllur sé til að nýta þau. Og afleiðingar þessa eru ekki fræðilegar, þær eru mælanlegar. Persónumiðuð umönnun gerir kröfur. Til að skynja þörf einstaklingsins þarf starfsmaður að þekkja viðkomandi, sögu hans og venjur, geta tjáð sig við viðkomandi á tungumáli sem báðir skilja, og hafa tíma til að staldra við. Þetta eru ekki aukaatriði heldur forsendur. Þar sem þær vantar verður persónumiðuð umönnun ekki stunduð. Víða er pottur brotinn. Mönnunarvandi í hjúkrun hefur verið viðvarandi hér á landi um langt árabil og ógnar bæði gæðum þjónustunnar og öryggi þeirra sem hennar njóta. Viðmið velferðaryfirvalda gera ráð fyrir að um 78% þeirra sem sinna umönnun séu faglærð, en úttektir hafa sýnt dæmi um heimili þar sem hlutfallið er aðeins um 41%. Íslenskukunnátta er víða ekki lengur skilyrði við ráðningu, enda reiða hjúkrunarheimili hér á landi sig á erlent starfsfólk. Ljóst er að tungumálaörðugleikar hafa bitnað á þjónustunni. Skýrasta vitnið um afleiðingar þessa er lyfjanotkunin. Sé persónumiðuð umönnun rétt útfærð á hún að draga úr lyfjaþörf en að jafnaði gengur íslenskur veruleiki í þveröfuga átt. Samkvæmt rannsókn Páls Biering og Ingibjargar Hjaltadóttur sem birt var í Læknablaðinu jókst neysla geðlyfja á íslenskum hjúkrunarheimilum að meðaltali úr 66% árið 2003 í 72,5% árið 2018, sem er í hærri kantinum á heimsvísu. Þetta eru landsmeðaltöl og að baki þeim er talsverður munur milli heimila; sum standa sig betur en önnur. Tæpur fimmtungur íbúa hjúkrunarheimila fær geðlyf að staðaldri án þess að geðsjúkdómagreining liggi fyrir og um þriðjungur tekur lyf úr tveimur eða þremur geðlyfjaflokkum samtímis. Mest notaði geðlyfjaflokkurinn eru þunglyndislyf, um 52% íbúa fá þau, samanborið við um 40% að jafnaði í tólf Evrópulöndum. Það er sláandi því sterkar vísbendingar eru um að þunglyndislyf dragi ekki úr þunglyndiseinkennum hjá fólki með heilabilun og um 70% íbúa íslenskra hjúkrunarheimila eru með heilabilun á einhverju stigi. Geðrofslyfin segja sömu sögu. Um fjórðungur íbúa tekur þau, en aðeins um 14% þeirra uppfylla þau skilyrði, geðklofagreiningu eða ofskynjanir, sem réttlæta slíka lyfjagjöf. Lyfjunum er með öðrum orðum iðulega beitt við hegðun fólks með heilabilun fremur en við greindum geðsjúkdómi; það sem í alþjóðlegri umræðu kallast chemical restraint, að beita lyfjum sem hömlum fremur en meðferð. Lyf eiga sannarlega rétt á sér þegar greining er til staðar, vandinn er ekki lyfin sjálf, heldur þegar þeim er beitt í stað umönnunar sem ekki er hægt að veita. Lyfjagjöfin ræðst meira af umönnuninni en af íbúunum sjálfum, og það sést á því hve breytileg hún er milli heimila: í evrópskri samantekt spannaði notkun geðrofslyfja allt frá 12% upp í 59% eftir heimilum, munur sem höfundar röktu ekki til ólíkrar samsetningar íbúa heldur ólíkrar nálgunar við umönnun, fjárhags og afstöðu til lyfjaávísana. Lyfin eru ekki gallalaus. Geðrofslyf auka hættu á dauðsföllum, sykursýki, sljóleika og mjaðmagrindarbrotum hjá öldruðum með heilabilun, og róandi lyf og svefnlyf auka hættu á föllum, beinbrotum og skertri vitrænni getu. Til samanburðar og samkvæmt sömu mæliaðferð nota um 14% íbúa bandarískra hjúkrunarheimila geðrofslyf á móti um fjórðungi hér á landi, og um 20% róandi lyf. Þegar starfsfólk hefur hvorki tíma, tungumál né þekkingu til að mæta þeirri þörf sem hegðunin lýsir, verður lyfið það sem fyllir tómarúmið. Það er fljótlegra að deyfa einkennin en að spyrja hvað liggi að baki. Þetta er ekki gagnrýni á starfsfólkið sem sinnir krefjandi starfi af alúð við aðstæður sem það ræður engu um. Og þetta er ekki heldur gagnrýni á að hugmyndafræðin séu kennd, það er gott og sjálfsagt að fagfólk læri þau. Vandinn liggur í bilinu á milli þess sem kennt er og þess sem raunverulega er hægt að iðka. Starfsfólk útskrifast með þekkingu og áhuga á persónumiðaðri umönnun, en mætir svo aðstæðum þar sem hvorki mönnun, tími né sameiginlegt tungumál er til staðar og þar sem innleiðing hennar er ekki gerð að forgangsmáli í rekstri og stjórnun. Þá verður hugmyndafræðin að innantómri orðræðu, fallegum orðum sem leyfa kerfinu að telja sig mannúðlegt á meðan lyf koma í stað umönnunar. Við eigum ekki að hætta að kenna þessar nálganir, þvert á móti, þekkingin er nauðsynleg. En hún er ekki nóg ein og sér á meðan undirstöðuna vantar. Heiðarlega spurningin er því ekki hvernig fagfólk tileinkar sér hugmyndafræðina, heldur hvort þeir sem reka og fjármagna hjúkrunarheimilin séu reiðubúnir að skapa það sem gerir hana mögulega: næga mönnun, faglært starfsfólk, sameiginlegt tungumál og tíma. Á meðan ekkert breytist verður „persónumiðuð umönnun" aðeins orð á veggspjaldi. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og nemi í heilabilunarráðgjöf við háskólann á Akureyri. Helstu heimildir: Páll Biering og Ingibjörg Hjaltadóttir (Læknablaðið 2021); Janus o.fl. (International Psychogeriatrics 2016). Tölur um mönnun og íslenskukunnáttu byggðar á úttektum Embættis landlæknis og kröfulýsingu velferðarráðuneytis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Hjúkrunarheimili Mest lesið Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun