Læknar meta aðstæður vistmanna 2. janúar 2007 18:30
Læknar og sérfræðingar hafa verið fengnir til að skoða aðstæður vistmanna í Byrginu. Reykjavíkurborg, eins og ríkið, bíður niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins áður en ákvörðun verður tekin um frekari styrki. Ekki hefur náðst í forstöðumann Byrgisins í dag en samkvæmt heimildum fréttastofu hafa vistmenn verið að snúa til baka að Efri Brú eftir jólafrí. Eins og áður hefur komið fram hafa greiðslur ríkisins til Byrgisins verið frystar að tillögu Ríkisendurskoðunar, þar til niðurstaða fæst í skoðun á fjármálum líknarfélagsins. Samkvæmt forstöðumanni Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hyggjast menn þar á bæ einnig bíða átekta en Byrgið fékk röska þrjár og hálfa milljón frá borginni á síðasta ári. Meirihluti vistmanna í Byrginu eru á framfæri Reykjavíkurborgar og hefur borgin milligöngu um að greiða dvalargjald þeirra, 58 þúsund krónur, beint til Byrgisins og ekki hefur verið hróflað við þeim greiðslum. Þá hefur félagsmálaráðuneytið farið þess á leit við lækna og ýmsa fleiri sérfræðinga á sviði heilbrigðis- og félagsmála að þeir meti aðstæður þeirra einstaklinga sem dvelja í Byrginu. Fleiri kærur hafa ekki borist lögreglu en ein kona kærði Guðmund í Byrginu skömmu fyrir jól. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns í Reykjavík verður sú kæra líklega rannsökuð hjá lögreglunni á Selfossi.
Fréttir Innlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira