Nýtt frumvarp breytir skattbyrði álversins í Straumsvík 6. mars 2007 18:56
Álverið í Straumsvík greiðir sömu skatta og önnur fyrirtæki hér á landi, nái nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Álverið greiðir þá tæplega helmingi minna í skatta til ríkisins en nær tvöfalt meira til Hafnarfjarðarbæjar. Frá og með gildistöku laganna ber Álverinu í Straumsvík að greiða tekjuskatt og önnur opinber gjöld sem almennt eru lögð á hér á landi samkvæmt íslenskum skattalögum. Sérsamningur hefur gilt um Álverið og hefur það óskað eftir skattalagabreytingu frá árinu 2003. Núna greiðir Álverið í Straumsvík 33 % í tekjuskatt til ríkisins af hagnaði á ári en engin fasteignagjöld til Hafnarfjarðarbæjar. Bærinn fékk hins vegar tekjur af álframleiðslunni fyrir hvert framleitt tonn. Eftir að lögin taka gildi greiðir álverið 18 % í tekjuskatt til ríkisins og fasteignagjöld til sveitarfélagsins eins og önnur fyrirtæki. Hafnarfjarðarbær hefur fengið um 100 milljónir á ári frá álverinu en fær rúmlega 200 milljónir á ári eftir gildistöku laganna. Bærinn fær því meira í sinn vasa með fasteignagjöldum en með framleiðslugjöldunum sem hann hefur fengið hingað til. Samningur milli ríkisins og álversins yrði afturvirkur og tæki gildi frá og með 1.janúar 2005. Hafnarfjarðarbær fengi því endurgreitt tvö ár aftur í tímann en ekki þrjú ár eins og hann gerði kröfu um. Ríkið og Hafnarfjarðarbær hafa deilt um frá hvaða tíma skattgreiðslur álversins ættu að taka gildi en álverið og Hafnarfjarðarbær vildu að skattgreiðslurnar tækju gildi frá ársbyrjun 2004 en ekki 2005. Frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi á næstu dögum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira