Erlent

Farið þið norður

Robert Mugabe, forseti Zimbabwes.
Robert Mugabe, forseti Zimbabwes.

Róbert Múgabe, forseti Zimbabwes hefur brugðist við gagnrýni heimsbyggðarinnar við meðferð hans á stjórnarandstæðingum, sem var misþyrmt í vörslu lögreglunnar. Meðal annars var Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnaranstöðunnar höfuðkúpubrotinn og liggur nú á sjúkrahúsi.

Í stuttu máli sagði Múgabe gagnrýnendum sínum að fara norður og niður. Hann sagði stjórnarandstæðinga fara fram með miklu ofbeldi og að vesturlönd og þá sérstaklega Evrópuríkin styddu það ofbeldi.

Múgabe segir stjórnarandstöðuna vera leikbrúður vestrænna ríkisstjórna, sem fjármagni þá til þess að reyna að steypa sér af stóli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×