Erlent

Þáttur móður í ráninu á Natösju rannsakaður

Natasja prýddi forsíður blaða um allan  heim eftir að hún slapp úr haldi mannræningja.
Natasja prýddi forsíður blaða um allan heim eftir að hún slapp úr haldi mannræningja.

Dómstóll í Vínarborg mun í dag hefja rannsókn á því hvort móðir Austurrísku stúlkunnar Natösju Kampusch hafi átt þátt í ráni hennar. Natösju var rænt þegar hún var á leið í skólann árið 1998 og var í haldi ræningjans í átta ár. Henni tókst loks að flýja síðastliðið sumar, þá orðin nítján ára gömul. Ræningi hennar framdi þá sjálfsmorð.

Rannsókn á hugsanlegum þætti móðurinnar í ráninu er hafin fyrir tilstuðlan Martins Wabl, fyrrverandi dómara og forsetaframbjóðanda í Austurríki. Hann hefur frá upphafi haldið því fram að Brigitte Sirny hafi átt þátt í ráni dóttur sinnar.

Meðal vitna sem kölluð verða fyrir rannsóknarnefndina er nágrannakona sem segist hafa séð móðurina í fylgd með mannræningjanum. Annað vitni er fyrrverandi lögreglustjóri Vínarborgar sem segir að hann hafi séð myndir af Natösju í kynferðislegum stellingum, í myndaalbúmi fjölskyldunnar. Þær myndir voru teknar áður en stúlkunni var rænt. Brigitte Sirny hefur alltaf neitað sök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×