Erlent

Íraksfrumvarp fellt í öldungadeild

Frá fréttamannafundi öldungadeildarþingmanna í dag.
Frá fréttamannafundi öldungadeildarþingmanna í dag. MYND/AFP

Frumvarp um að kalla bandaríska hermenn í Írak heim fyrir 31. mars á næsta ári var í dag fellt í öldungadeild bandaríska þingins. Fyrr í dag hafði nefnd fulltrúadeildarinnar samþykkt frumvarp sem kveður á um að bardagabúnir hermenn verði kallaðir heim fyrir september á næsta ári. Kosið verður um það í næstu viku.

Frumvarpið var að frumkvæði demókrata í öldungadeildinni. Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, hafði hótað að beita neitunarvaldi gegn frumvarpinu hefði það verið samþykkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×