Erlent

Varar við árásum á Íran

Ayatollah Ali Khamenei varar ríki heims við því að ráðast gegn Íran og kjarnorkuáætlun þess.
Ayatollah Ali Khamenei varar ríki heims við því að ráðast gegn Íran og kjarnorkuáætlun þess. MYND/AFP

Æðsti trúarleiðtogi Írana, Ali Khamenei, varaði í dag við því að Íranar myndu hefna allra árása sem á þá yrðu gerðar. Khamenei hefur áður hótað því að Íranar muni ráðast gegn Bandaríkjamönnum ef þeir ráðast gegn kjarnorkuáætlunum landsins. Þetta kom fram í ræðu sem hann hélt í tilefni af nýársfagnaði Írana.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er sem stendur að íhuga nýjar refsiaðgerðir gegn landinu vegna kjarnorkuáætlunar þess. Bandaríkjamenn saka Írana um að ætla að koma sér upp kjarnorkuvopnum en Íranar þvertaka fyrir það og segjast aðeins ætla að nýta hana til raforkugerðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×