Erlent

Enn barist í Mógadisjú

Harðir bardagar héldu áfram í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í morgun, þriðja daginn í röð. Átök herskárra múslima við eþíópískar og sómalskar hersveitir hafa harnað síðustu vikur. Íbúar hafa flúið borgina í stórum hópum í gær og í morgun.

Ekki hefur komið til jafn harðra átaka frá því að hið svonefnda íslamska dómstólaráð var hrakið frá völdum síðasta sumar. Herskáir múslimar hafa frá því á miðvikudag reynt að ná höfuðborginni á sitt vald. Ætlun þeirra er að koma í veg fyrir að bráðabirgðastjórn Sómalíu nái að tryggja völd sín þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×