Erlent

Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi

Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi á frumvarp sem felur í sér heimkvaðningu bandarískra bardagasveita frá Írak fyrir fyrsta september á næsta ári. Varaforseti Íraks segist fullviss um að hægt verði að senda erlenda hermenn heim frá Írak fyrir þann tíma.

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær frumvarp um rúmlega 8.000 milljarða króna aukafjárveitingu til stríðsrekstursins í Afganistan og Írak sem á að duga út þetta ár. Demókratar bættu ákvæði við frumvarpið sem felur í sér að bardagasveitir Bandaríkjahers verði kallaðar heim frá Írak fyrir 1. september 2008.

Atkvæði voru greidd um frumvarpið í fulltrúadeilinni síðdegis í gær og var það samþykkt með 6 atkvæða mun. Þingmenn kusu samkvæmt flokkslínum. Flestir repúblíkanar voru því andvígir og sögðu að með þessu væri nánast verið að viðurkenna ósigur í Írak. Öldungadeild á eftir að taka frumvarpið til meðferðar, og gæti það jafnvel orðið strax eftir helgi.

George Bush Bandaríkjaforseti sagði í gærkvöldi að hann ætlaði að beita neitunarvaldi sínu á frumvarpið yrði það samþykkt óbreytt og heimkvaðningarákvæðið ennþá hluti af því. Það er því ljóst að ákvæðið nær ekki fram að ganga.

Bandaríkjaforseti segir aðgerðir demókrata í fulltrúadeild aðeins tefja nauðsynlega fjárveitingu sem gagnist bandarískum hermönnum og fjölskyldum þeirra. Bush hefur ekki viljað dagsetja brotthvarf hermanna, segir það aðeins gagnast andspyrnumönnum í Írak sem hefðu þá tiltekna dagsetningu til að stefna að og benda á.

Því virðist Tareq al-Hashemi, varaforseti Íraks, ekki vera sammála. Hann sagði í morgun að hersveitir Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra ættu að geta farið frá landinu innan 18 mánaða. Þá gætu íraskar sveitir séð um öryggisgæslu í landinu án aðstoðar.

Al-Hashemi fagnaði heimkvaðningarákvæði demókrata en lagði áherslu á að erlendar hersveitir gætu ekki farið fyrr en þær írösku væru tilbúnar að taka við. Nú skorti þær fagmennsku og tryggð við ríkisstjórn landsins, auk þess sem liðsmenn væru enn of fáir. Þetta yrði breytt eftir eitt og hálft ár, jafnvel fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×