Erlent

Kröftugur jarðskjálfti í Japan

Mynd frá því á sunnudaginn var en þá eyðilögðust hundruð heimila.
Mynd frá því á sunnudaginn var en þá eyðilögðust hundruð heimila. MYND/AFP
Jarðskjálfti upp á 4,8 stig á Richter varð í kvöld við Noto skagann á vesturströnd Japan en ríkisfréttastöðin NHK skýrði frá þessu. Enn sem komið er hafa engar fregnir borist af tjóni á eignum eða hvort að fólk hafi slasast. Ekki hefur verið varað við flóðbylgju vegna skjálftans. Á sunnudaginn síðastliðinn varð kröftugur jarðskjálfti á sama svæði. Þá lést einn maður, fleiri en 200 slösuðust og hundruð heimila eyðilögðust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×