Erlent

Húðflúrsæði hjá landgönguliðum

Allir sem vettlingi geta valdið í bandaríska landgönguliðinu þyrpast nú þessa dagana á húðflúrsstofur því frá og með morgundeginum verður þeim bannað að láta tattúvera sig. Húðflúr hafa hingað til verið í hávegum höfð í landgönguliðinu og jafnvel talin jafngilta heiðurspeningum og öðrum viðurkenningum. Yfirmenn þess telja slíkar myndir hins vegar draga úr virðingu fólks fyrir stofnuninni og því hafi þeir ákveðið að banna þær. Eðli málsins samkvæmt verður þeim sem þegar eru komnir með húðflúr ekki gert að fjarlægja þau og því er mikil ásókn í þau nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×