Erlent

Ahmadinejad frestar fréttamannafundi

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans. MYND/AFP

Fréttamannafundi sem Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, átti að halda í morgun, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Menningar- og íslamska ráðuneytið gaf enga ástæðu fyrir frestun fréttamannafundarins. Talið er líklegt að fundurinn fari fram á morgun.

Á fréttamannfundum sínum úthúðar Ahmadinejad venjulega vesturlöndum og talið er að fundinum hafi verið frestað svo að hægt sé að reyna að ná árangri í lausn sjóliðadeilunnar. Bæði Íranar og Bretar hafa sagt að þeir vilji leysa deiluna með viðræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×