Erlent

Stjórnarerindrekar Norður-Kóreu óhlýðnast yfirvöldum

Yfirvöld í  Norður-Kóreu vilja fá börn stjórnarerindreka sem dvelja erlendis heim á ný, sem tryggingu fyrir því að þeir flýi ekki land.
Yfirvöld í Norður-Kóreu vilja fá börn stjórnarerindreka sem dvelja erlendis heim á ný, sem tryggingu fyrir því að þeir flýi ekki land. MYND/AP

Stjórnarerindrekar Norður-Kóreu sem staðsettir eru erlendis hafa neitað beinni skipun Norður-kóreskra yfirvalda um að senda börn sín heim á leið. Fréttamiðlar í Suður-Kóreu skýra frá þessu.

Skipunin var gefin fyrr á þessu ári. Samkvæmt henni mega erindrekar stjórnarinnar aðeins hafa eitt barn með sér á meðan þeir dveljast erlendis en önnur, ef þeir eiga, verða þeir að skilja eftir í Norður-Kóreu. Tilskipunin á að koma í veg fyrir að fólk flýi land.

Stöðugildi erlendis eru mjög eftirsótt í Norður-Kóreu og fá aðeins tryggustu stuðningsmenn kommúnistaflokksins þær stöður. En um leið og þeir fara erlendis og búa í vestrænu samfélagi fara stjórnvöld heima fyrir að gruna þá um græsku.

Talið er að reglugerðin eigi við um 2-3.000 börn en enn sem komið er hafa stjórnarerindrekar ekki sent mörg börn heim á leið. Sérstaklega fá börn hafa komið frá þeim sem staðsettir eru í Kína. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa því sent sérstakan rannsóknarmann til Peking til þess að athuga málið.

Fréttavefur BBC skýrir frá þessu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×