Erlent

Tamíltígrar voru aðeins að vinna sér tíma

Hermenn skoða rútu sem tamíltígrar sprengdu í loft upp á mánudaginn var.
Hermenn skoða rútu sem tamíltígrar sprengdu í loft upp á mánudaginn var. MYND/AFP

Tamíltígrar skrifuðu undir vopnahléssamkomulag árið 2002 til þess að vinna tíma og verða sér úti um vopn á ný. Þetta fullyrðir fyrrum herforingi tamíltígra. Karuna hershöfðingi hefur nú sagt skilið við tígrana og stofnað stjórnmálaflokk með því markmiði að ná völdum í austurhluta Sri Lanka en tamíltígrar ráða þar stórum landssvæðum.

Talsmenn tamíltígra hafa hafnað þessum ásökunum Karuna og segja ekki hægt að treysta honum þar sem hann vinni fyrir stjórnvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×