Erlent

Átök aukast á Sri Lanka

Flugherinn á Sri Lanka gerði í morgun loftárásir á höfuðstöðvar sjóhers tamíltígra í norðurhluta landsins. Herinn skýrði frá þessu í morgun en enn hefur engin staðfesting fengist á árásinni. Í tilkynningunni sagði ennfremur að höfuðstöðvar sjóhersins, eldsneytisgeymsla og bílastæði hefðu verið eyðilögð. Ekki náðist í fulltrúa tamíltígra til þess að fá viðbrögð við árásinni en  hún er hluti af aukinni sókn stjórnarhersins gegn uppreisnarmönnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×