Erlent

Banvæn forvitni

Sextán manns fórust og fjölmargir slösuðust þegar jeppi sprakk í loft upp í Tamil Nadu héraði á Indlangi í dag. Þetta er ekki hryðjuverk heldur slys. Jeppinn var að flytja sprengiefni og var yfirhlaðinn. Vélin ofhitnaði svo að það kviknaði í henni.

Íbúar í nærliggjandi þorpi komu á vettang til að fylgjast með, og talsverður fjöldi hafði safnast saman í kringum jeppann þegar hann sprakk í loft upp. Sprengingin var svo öflug að bíll sem var fyrir aftan jeppann þeyttist langar leiðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×