Erlent

Sautján létust í sjálfsmorðsárás

Sautján manns létu lífið í súnníabænum Muqdadiya í Írak í morgun þegar kona gyrt sprengjubelti gekk að hópi manna og sprengdi sig í loft upp. Mennirnir höfðu safnast saman fyrir utan eina af lögreglustöðvum bæjarins til að sækja um stöður í lögreglunni. Þá kom til heiftarlegra bardaga á milli hermanna og uppreisnarmanna í einu af hverfum höfuðborgarinnar Bagdad. Ein af þyrlum Bandaríkjamanna varð fyrir skoti en flugmönnum hennar tókst að fljúga henni aftur til herstöðvar sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×