Erlent

Önnur umferð boðuð

Flest bendir til að Jose Ramos-Horta, forseta Austur-Tímor, hafi mistekist að bera sigur úr býtum í fyrri umferð forsetakosninganna í landinu sem fram fór í gær. Í yfirlýsingu kjörstjórnar landsins í morgun segir að bráðabirgðaúrslit bendi til að Horta og Fernarndo de Araujo, sem rétt eins og Horta tók virkan þátt í sjálfstæðisbaráttu Austur-Tímora gegn Indónesum, hafi orðið efstir og því verði að kjósa á milli þeirra síðar. Þótt kjörfundurinn hafi farið vel fram í gær er óttast að önnur umferð geti eyðilagt þann viðkvæma stöðugleika sem ríkt hefur í landinu undanfarna mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×