Erlent

Jiabao ávarpaði japanska þingið

Frá undirritun samkomulags um umhverfismál.
Frá undirritun samkomulags um umhverfismál. MYND/AFP
Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, sem nú er í heimsókn í Japan, ávarpaði japanska þingið í gær. Þar sagði hann innrásir Japana á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar hafa valdið Kínverjum miklum sársauka. Þetta var í fyrsta sinn sem kínverskur forsætisráðherra ávarpar japanska þingið.

Jiabao sagði þó að aðeins væri hægt að kenna örfáum hershöfðingjum um innrásirnar og að flestir Japanar hefðu í raun verið líka verið fórnarlömb stríðs. Meira en helmingur af ræðu Jiabao var um sögu landanna tveggja. Engu að síður sagðist hann bjartsýnn á sameiginlega framtíð þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×