Erlent

Sprenging í írakska þinginu

Mikil sprenging varð í írakska þinghúsinu rétt í þessu og talið er að fjölmargir hafi látið lífið. Vitni sögðu að svo virtist sem sprengingin hefði átt sér stað á veitingastað í þinghúsinu þegar margir þingmenn voru á staðnum. Sky News segja að sex þingmenn hafi látið lífið og fjölmargir særst. Í ljós hefur komið kom að sjálfsmorðssprengjumaður var að verki.

Þingið var að störfum þegar árásin átti sér stað. Þinghúsið er staðsett í Græna svæðinu sem er vel víggirt svæði þar sem Bandaríkjamenn og ýmsar alþjóðstofnanir hafa aðsetur. Uppreisnarmenn hafa sjaldan náð að komast inn á svæðið en nýverið fundu hermenn tvö sprengjuvesti inn á því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×