Erlent

Ekki gefa konum langt nef

Óli Tynes skrifar
Ein reið eiginkona er alveg nóg.
Ein reið eiginkona er alveg nóg.

Tvær Saudi-Arabiskar eiginkonur reiddust eiginmanni sínum svo mjög, þegar hann sagðist ætla að kvænast þriðju konunni, að þær réðust á hann og bitu hann meðal annars í nefið. Judaie Ibn Salem hélt að hann gæti leyst deilu um skiptingu á heimilisplássinu, með hótun um þriðju eiginkonuna. Það varð þó aðeins til þess að magna deiluna.

Eftir að hafa látið sauma sjö spor í sitt særða nef, sagði Ibn Salem að eina leiðin fyrir hann til þess að endurheimta virðingu sína sé að láta verða af því að fá sér enn eina konu. Samkvæmt islömskum lögum mega karlar eina fjórir eiginkonur, og fjölkvæni er ekki óalgengt í Saud-Arabíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×