Erlent

Hjálp - hún er handjárnuð við rúmgaflinn

Ástaleikurinn fékk vandræðanlegan endi hjá pari í Borås, í Svíþjóð í gær. Handjárnin fóru í baklás og konan var föst við rúmgaflinn. Eftir að hafa reynt allt sem þeim datt í hug, var ekki um annað að ræða en hringja í lögregluna, sem kom fljótlega á vettvang.

Fyrst reyndu lögregluþjónarnir að opna handjárnin með eigin lyklum, en það gekk ekki. Þá var ekki um annað að ræða en sækja klippurnar og klippa járnin af konunni. Talsmaður lögreglunnar sagði að þeir litu á þetta sem hvert annað þjónustu-viðvik. Þetta kæmi fyrir svona einusinni á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×