Erlent

Með byssukúlu í hjartanu í 39 ár

Úr Vietnam stríðinu.
Úr Vietnam stríðinu.

Byssukúla var á dögunum fjarlægð úr hjarta vietnamsks manns. Hann hafði gengið með hana í hjartastað í þrjátíu og níu ár, allt frá því hann var skotinn í Vietnam stríðinu. Le Dihn Hung, sem nú er sextugur mátti þola verki vegna byssukúlunnar öll þessi ár. En það var fyrst núna sem læknar treystu sér til þess að fjarlægja hana.

Læknirinn sem gerði aðgerðina sagði að hún hefði tekist í alla staði vel. En hún hafi aldrei vitað um neitt tilfelli í líkingu við þetta. Le Dinh mun á næstum dögum snúa aftur heim til eiginkonu sinna og þriggja barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×